Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Page 3

Fiskifréttir - 06.06.1986, Page 3
föstudagur 6. júní 3 600 kg. Tjaldanes 1,0 og Blíðfari 800 kg. Flestir þessir bátar kom- ust ekki nema í einn róður. Flat- eyri: Gyllir landaði 134 tonnum þann 27. maí eftir 7 daga og var sá afli grálúða. Jónína hafði þetta 4-5 tonn í róðri í s.l. viku og Byr 10 tonn yfir vikuna. Þessir bátar eru nú búnir að taka upp en Sifin hætti 11. maí s.l. Smærri bátar og trillur eru nú að fara af stað og höfðu samtals 1-2 tonn í vik- unni. Suðureyri: Elín Þorbjarnar- dóttir kom með 107 tonn þann 26. maí og síðan aftur þann 2. júní með 50-60 tonn en 25 tonn þess afla fór í gáma á ísafirði en restinni var landað á Suðureyri. Aflinn var grálúða og þorskur. Litlu bátarnir eru nú óðum að fara af stað enda eru gæftir heldur að batna fyrir þá.. Þeir hörðustu hafa fengið upp í 1200 kg. yfir daginn. Bolungarvík: Þar hafa gæftir verið góðar að undanförnu. Fleiðrún landaði 21 tonni af rækju úr sínum fyrsta rækjutúr þann 30. maí og var sá afli fenginn á 6 dög- um. Hugrún kom daginn eftir með 11,5 tonn einnig rækju. Línubátar hafa fengið þetta 2-3 tonn í róðri en Llosi karlinn er nú hættur enda búinn að gera það gott á þessari vertíð. í síðasta túrnum fékk hann 12,7 tonn. Þrátt fyrir góðar gæftir hefur verið tregt á færin og hafa menn komist upp í rúmt tonn á dag þegar best lætur. ísafjörður: Nokkrir togarar lönduðu afla á Isafirði í vikunni. Páll Pálsson landaði 166 tonnum þann 31. maí eftir viku veiðar og var sá afli grálúða og fóru 50 tonn í gáma. Guðbjartur landaði 150 tonnum þann 29. maí eftir 6 daga og var sá afli að mestu grálúða og var hluti hans settur í einn gám. Guðbjörg landaði c.a. 200 tonn- um þann 2. júní eftir vikuna og voru 120 tonn þess afla grálúða en 80 tonn ýsa og þorskur. Hluti þess afla hafnaði í þremur gámum. Júlíus Geirmundsson kom með 30 tonn af frystri Japansrækju þann 26. maí eftir 13 daga. Mest- ur hluti rækjunnar fór í fyrsta flokk. Nú er Júlíus kominn á grá- lúðuveiðar. Hjá Rækjuverks- miðju O.N. Ólsens bárust 46,7 tonn á land í s.l. viku. Súðavík: Bessi landaði að vanda á mánu- degi og þann 26. maí kom henn með 141 tonn af grálúðu eftir 5 daga. Bessi kom aftur mánudag- inn 2. maí með 115 tonn og var sá afli einnig grálúða. Nú eru rækju- bátar að fara af stað frá Súðavík og fóru þrír af stað í s.l. viku. Fyrsti báturinn til þess að landa var Valur sem kom með góðan rækjuafla eða 12 tonn. Hólmavík: Þar var logn og blíða þegar Fiski- fréttir höfðu samband á mánudag- inn var. Eftirtaldir bátar lönduðu afla á Hólmavík og Drangsnesi í vikunni: Sigurvon 9 tonn Donna 8, Hilmir 8, Árbjörg 4 og Grímsey 8 tonn. Hér er átt við rækjuafla en auk þess fengu þessir bátar c.a. eitt tonn af þorski með rækjunni. Arnarborgin landaði tveimur tonnum afbolfiski í vikunni. Norðurland Hvammstangi: Það var fremur dauft hljóðið í Miðfirðingum á mánudaginn þegar Fiskifréttir hringdu þangað.,,Þetta er sama og ekkert og varla orð á gerandi“, voru svörin sem fengust. Flestir eru hætti á netunum og því lítið að frétta. Þrír bátar fóru á rækju fyrir helgina og höfðu ekki land- að. Vonandi verður betra hljóðið frá Hvammstanga í næstu viku. Blönduós: Þar er það rækjan sem ,,blívur“ og landaði Sæborgin 11 tonnum af þeim ágæta góðfiski og Þuríður Halldórsdóttir 9 tonnum. Skagaströnd: Arnar landaði 11 tonnum þann 29. maí og voru 109 tonn aflans þorskur. Arnar var 7 daga að fanga þennan afla. Nú er netafiskirí að verða búið en í s.l. viku kom Haukabergið með 9 tonn af rækju og Arnarborgin með 7-8 tonn. Auðbjörg og Hafbjörg komu með 2-3 tonn af bolfiski sem landað var hjá Hólanesi. Sauðárkrókur: Hegranesið land- aði mjög góðum þorskafla þann 29. maí þegar skipið kom með 140 tonn af þorski eftir 7 daga. Framhald á bls. 26 'i A Sjómannadaginn Sendum öllum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra. t t t ! SKIPADEILD SAMBANDSINS SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SIMI 28200 P

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.