Fiskifréttir - 06.06.1986, Qupperneq 5
föstudagur 6. júní
5
„Hann Binni sótti í sjávardjúp
sextiu þúsund tonn“
1904. Hann var sonur merkis-
hjónanna Oddnýjar Benedikts-
dóttur frá Syðstu-Grund undir
Eyjafjöllum og Friðriks Benónýs-
sonar frá Núpi í sömu sveit. Þau
höfðu flutt til Vestmannaeyja
1902, reistu bú að Gröf og bjuggu
þar myndarbúi, rómuð fyrir vin-
hlýju, glaðværð og gestrisni. Frið-
rik gerðist snemma forðmaður,
heppinn og aflasæll, og sótti hann
sjó bæði á opnum skipum og vél-
bátum. Jafnframt var hann dýra-
læknir og bjó yfir mikilli færni í
þeim efnum. Þau hjón áttu 22
börn og komust mörg af þeim til
ára. Enginn sá Oddnýju bregða
við allar þessar barneignir. Hún
var síkát og ungleg, lág vexti, þrif-
leg kona, létt á fæti og hamhleypa
til verka, sem kom sér vel á þessu
mannmarga heimili. Friðrik var
kvikur á fæti og hýr í lund, fremur
lágvaxinn, dökkur á brún og brá
og samanrekinn kraftakarl til
burða. Eiginleikar þeirra hjóna
hafa gengið mjög í erfðir til barna
þeirra. Benóný ólst upp með for-
eldrum sínum og systkinum í
Gröf og varð snemma mikill fyrir
sér. Fljótlega varð auðsætt að þar
Um Binna i Gröf
eftir Árna Johnsen
Myndir: Sigurgeir Jónasson
var mikið mannsefni á ferðinni og
stefndi hugur hans snemma til
sjómennsku. Hið venjulega er að
menn gerist hásetar, en Binni í
Gröf fór beint í formannssætið,
því innan við fermingu var hann
farinn að róa á opnum bátum
ásmat félögum sínum, þeim Þor-
geiri Jóelssyni frá Fögruvöllum og
Magnúsi ísleifssyni í Nýjahúsi.
Þeir voru allir miklar aflaklær og
önnuðust formennsku á bátnum
til skiptis. Var mikið kapp um
hvern róður, þetta voru harðfrísk-
ir strákar og fastsæknir á miðin
svo að mörgum eldri manninum
þótti nóg um. Síðan var Binni
með marga báta. Fyrsti vélbátur-
inn, sem hann var með hét Frið-
þjófur Nansen,síðan tók Gulla
við, Newcastle, Gulltoppur,
Sjöstjarnan, Sævar og Andvari,
svo nokkrir séu nefndir, en árið
1954 tók hann við þeim bát sem
hann var síðan með til dauðadags,
Gullborgunni. Hann varð fyrst
aflakóngur árið 1954 á Gullborg-
unni, en síðan var hann aflakóng-
ur Vestmannaeyja og landsins alls
um langt árabil. Enginn hefur oft-
ar verið sigurvegari á vetrarvertíð-
inni, þessu íþróttamóti skipstjór-
anna. Hann var sannast sagna
undraverður fiskimaður.
Binni í Gröf var maður sögunn-
ar og þar sem hann var komst
vatnið á hreyfingu. Hann var orð-
heppinn, hann hafði gaman af að
takast á við lífið og tilveruna á
góðum stundum. Hannn gusaði í
sig einu sinni til tvisvar á vertíð til
þess að slappa af frá spennitreyju
veiðihugans. Að öllu jöfnu var
hann hæglætismaður, en ef hann
Aflakóngur upp
úr skipsstrandi
Þrettánda apríl árið 1818
strandaði á Skálafjöru á Meðal-
landi franska fiskiskútan Le Aur-
ore, eða Morgunroðinn. Strandið
varð niður af bænum Slýjum.
Mönnum var bjargað og góss hirt,
en einn skipverja sem fótbrotnaði
varð eftir í Meðallandi. Sá var á
fertugsaldri og hét Hendrik frá
Flandern. Ekki var hann nú verr
brotinn en það að hann barnaði
Valgerði Jónsdóttur vinnukonu
að Suðurbæ í Meðallandi og var
hún á fimmtugsaldri. Hendrik frá
Flandern hélt til Frakklands fyrr
en varði, en þann 27. janúar 1819
fæddist Benóný Hinriksson, hans
sonur varð síðar Friðrik Gissur og
fjórði liðurinn var aflaklóin Binni
í Gröf, Benóný Friðriksson, sem
rekur uppruna sinn til skips-
strands í hinni hafnlausu Vestur-
Skaftafellssýslu.
Einn af 22 systkinum
Binni í Gröf fæddist í Gröf í
Vestmannaeyjum 7. janúar árið
Binni í Gröf, þjóðsaga í lifanda lífi, mesti aflamaður Islands frá
upphafi, Vestmannaeyingur. Hann landaði um 60 þúsund tonnum
af fiski á sinni ævi og aflaskipið hans, Gullborg, var ævintýraskip-
ið sem fór gjarnan einskipa, en aflaði ávallt. Binni í Gröf var
aflakló af Guðs náð, og þegar reynsla hans, tilfinning og sóknar-
djörfung kristölluðust í einn fastan punkt þá var klárt að það var
fiskivon. Þegar bylgjurnar dönsuðu hvað trylltast á Eyjamiðum og
brimið kögraði hamrabeltin, þá stóð æðrulaus maður í brú á bát
sínum og hafði yndi af þessum taktfasta dansi. Binni í Gröf. Það
var sama hvernig viðraði, derhúfa og þunnprjónuð peysa voru
hlífðarfötin hans. Hann var í senn afburða skipstjóri góður
skipsfélagi og hann var hafsjór af vísum og ljóðum, sérstæður
maður á margan hátt og eftirminnilegur öllum sem kynntust hon-
um.