Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Síða 6

Fiskifréttir - 06.06.1986, Síða 6
6 föstudagur 6. júní fékk sér sjúss þá fór meira fyrir honum en öðrum mönnum. Það fylgdi honum stormur, iíf, það þurfti að fara í sjómann, segja sög- ur, kveðast á og tala mikið. Binni í Gröf var alla tíð fjörkálfur og góðlátlegur hrekkjalómur eins og löngum hefur verið ræktað í Eyj- um þar sem menn líta ekki of al- varlegum augum á sjálfa sig í sam- spili við lífið og tilveruna þegar færi gefst. Jóraspjallið hefur löng- um loðað við Eyjamenn. Fimmtán ára í fangbrögðum við Ægi Einu sinni voru þeir félagarnir þrír, sem fyrr er getið, og einn til, á árabátnum fyrir vestan Eyjar ásamt fleiri smábátum. Það var tregt allan daginn og Binni kippir vestar og vestar. Hann er ókunn- ugur þessum miðum, en veiðinef- ið ræður för. Og skyndilega skeð- ur galdurinn, þeir lenda í óðum fiski og kapp rennur í kinn eftir allt slugsið daglangt. Fiskurinn er svo snarvitlaus að þeir vita ekki af sér fyrr en báturinn er orðinn svo hlaðinn að út af flóir. Þeir eru þá góðan spöl vestur af Brandinum og hann hefur hert í kaldann, kominn steytingur. Það er ekki meira pláss í bátnum fyrir fisk, þeir gera sjóklárt og draga segl við hún. Stefnan er á Hellutá Stór- höfða. Á morinu til fjalla má sjá að hann er hvassari í aðsigi. Bát- urinn þýtur áfram skriðþungur af farminum, það sýður við hástokk og ýlir í böndum, Siglan svignar undan átökunum. Hver maður er á sínum stað, í austri, við fal og fokku og formaðurinn heldur um völinn. Það er unnið orðalaust. Brandur er að baki og rennt Suð- ureyjasundið. Þá kemur babb í bátinn, það dúrar vindur undir Suðurey og frákastið frá berginu rótar í hafinu. Skyndilega dregur úr ferð bátsins, og það gefur á. Sjór flæðir inn aftan til á stjórn- borða. Dauðinn blasir við. í sömu andrá hendist formaðurinn æp- andi úr skutnum: Allir undir árar, allir undir árar. Blöðin kljúfa haf- flötinn, því hér eru snarir menn sem fylgja formanni sínum, augnablik óvissunnar líða en um leið og báturinn kemst til ferðar hættir að flæða inn í hann. Þeir róa af öllum lífs og sálar kröftum þar til vindur er aftur í segli, hætt- an Iiðin hjá, en það er ekkert gefið að komast að landi á litlum báti í rokveðri og þeir verða að berjast og berjast. í hörðustu hviðunum tommaði ekki á móti, en eftir þriggja tíma barning komast þeir í logn á Víkinni. Þá var haft orð á því að það væri töggur í þessum strákum, því fylgst var með þeim síðasta spölinn, farið að lengja eft- ir þeim. Fimmtán ára strákpattar náðu landi örþreyttir. Binni í Gröf, Maggi í Nýjahúsi, Kalli á Goðalandi og Geiri á Fögruvöll- um. Drukku sopa af eigin eggjaseyði Áður hafði Binni róið með karli einum smávöxnum, Koba gamla. Þá var aldrei róið langt. Kobi vildi síður blúss í siglinguna. Binni við Gullborgina. Hann var einn af þessum ljúf- lingsköllum sem elskuðu strákana sína og vildi ekki stofna lífi þeirra í hættu. Aftur á móti bauð hann þeim heim til sín þar sem allt var skúrað í hólf og gólf með ilmandi handsápu og þar átti hann til að leika sálmalög tímunum saman á tvöföldu nikkuna sína. Einhverju sinni um eggjatímann langaði Binna að skreppa í berg eftir eggj- um. Hinn frómi maður Kobi mátti ekki heyra minnst á slíkt, en fyrir þrákelkni Binna lætur sá gamli undan upp á smá smakk. Eggjaþjófnaður þótti þá til stór- glæpa. Kattliðugur kemur Binni úr berginu og stóri ketillinn er fylltur af eggjum. Vatnið er farið að sjóða þegar þeir sjá rösklega róið í áttina til þeirra. Þar fara jarðamenn og eggjaeigendur. Kobi vill nú henda þýfinu í sjóinn en Binni er ekki alveg á þeim bux- unum. Hann drífur kaffi í ketilinn og byrjar að veifa eggjaeigendun- um í gríð og erg. Þegar þeir eru komnir í kallfæri býður hann þeim upp á kaffisopa, þeir hafi verið að hella á könnuna. Við þetta góða boð hverfur öll tor- tryggni jarðamanna eins og dögg fyrir sólu og þeir söturðu í sig soð- ið af eigin eggjum og var ekki að sjá annað en þeim þætti sopinn góður. Hér í krikanum er draslið Einu sinni var það á Nansen gamla að þeir fengu línuna í skrúfuna og rétt byrjaðir að draga. Þeim þótti hart að sigla heim, en það var austan kaldi og ágæt sigl- ing. Það varð úr að binda í lapp- irnar á Binna og gefa hann niður í sjóinn með hníf í hendi. Þetta var ekki hátt, en það var mikill velt- ingur og hreint ekki auðvelt að eiga við það að murka úr skrúf- unni margtvinnað draslið. En Binni hélt áfram að sarga og sarga, saup eitthvað af þeim græna, en Ioks var allt laust og þeir gátu haldið áfram að draga. Vandamálið var leyst. Binni var góður íþróttamaður, iðkaði á sínum tíma knattspyrnu með félagi sínu, Tý, og þótti harðskeyttur liðsmaður. Hann lagði stund á leikfimi um margra ára skeið og var með bestu sýning- armönnum í þeirri grein, lunda- veiðimaður var hann góður og mikil skytta. Hann var eitilharður þegar á reyndi. Einni sinni bar svo við að hann var eitthvað lasinn, en það var sjaldgæft, og stýrimaðurinn fór með bátinn. Þeir koma að landi síðdegis og hafa orðið fyrir þvi óhappi að missa veiðarfærin, voru á snurvoð og höfðu misst voð, tog og allt heila gilið. Stýri- maðurinn fer heim til Binna og var frekar framlágur þegar hann segir tíðindin. Binni rís úr rekkju, sléttir úr sænginni og spyr hvar hann hafi verið á sjó. Stýrimaður var klár á því og greinir nákvæm- lega frá landmiðum, sker í nibbu og nibba í berg. Binni segir að þetta sé augljóst, strikar á sængina eftir lýsingu stýrimanns: Hraunið liggur svona, þú kastar svona og þess vegna verður allt fast, sjáðu, hér í krikanum er draslið. Næstu nótt rís Binni úr rekkju og fer á sjó, veiðarfæralaus. Tveimur dögum síðar kemur kall að landi með fullan bát og aflann hafði hann auðvitað fengið í týndu veiðarfærin. „Strong working — Strong living“ í bókinni Aflamenn þar sem Ási í Bæ ritar bráðskemmtilegan kafla um Binna í Gröf og m.a. er stuðst við í þessari grein, segir frá einu atviki þar sem Binni hefur rokið í að leysa málið og þá er ekki spurt um stund né stað frem- ur en hann brást því nokkurn tíma í sínu starfi að taka af skarið í skylduverkunum. Ólafur Kristj- ánsson meðeigandi Binna í Sævari segir frá söluferð til Englands: „Eitt sumarið gerðum við túr til Englands. Ég flæktist með svona meira að gamni mínu. Á leiðinni bilaði vélin og við urðum stopp í tvo sólarhringa. Mér þótti ekkert sérlega skemmtilegt að velkjast í sjálfu úthafinu á smákænu og vél- arvana í þokkabót. En þeim fannst held ég bara tilbreyting í þessu. Gerðu bara við vélina og svo var haldið áfram. Að lokinn sölu fengum við peninga hjá um- boðsmanni, eftir því sem hver bað um, og svo fóru menn að skemmta sér eins og gengur. Dag- inn eftir þegar ég kom til umboðs- mannsins til að gera upp reikning- ana fæ ég heldur óblíðar viðtökur. Binni hafði þá orðið blankur um nóttina, fundið hýbýli umboðs- manns, barið þar upp heldur hraustlega — og fengið peningana — . Þetta var í betri borgarhluta og þeir óvanir slíkum traktering- um um miðjar nætur, þó íslensk- um útgerðarmönnum bregði ekki við svona smámuni. Og vili nú karl fá skýringu á þessu háttalagi, maðurinn hefði átt þess kost að fá nóga peninga kvöldið áður. Ég reyni að útskýra fyrir honum að þetta sé dálítið sérstakur maður, Binni reri í stóra verkfallinu og sá um soðfiskinn fyrir bæjarbúa. Hér er hann nýkominn að og gefur sér tíma til að fá sér reyk. Myndin er tekin í febrúar 1961.

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.