Fiskifréttir - 06.06.1986, Page 9
föstudagur 6. júní
9
góður stjórnandi, mesti merkis-
maður, skapmikill og einbeittur.
Hann var bróðir síra Eggerts á
Breiðabólsstað. Skip hans var átt-
æringur, fremur lítið skip, en sjó-
skip ágætt; skipshöfnin var eliefu
eða þrettán menn. Þegar hér var
komið sögu, var allt fólkið, bæði
ungt og gamalt úr þorpinu, komið
niður í naustin. Á tímum neyðar-
innar verður fólk í litlu sjávar-
þorpi að einni fjölskyldu. Allir
eru sem ein hönd til hjálpar, allir
þrá það sama. Og enginn, sem
ekki hefir heyrt það og séð með
eigin augum, getur skilið, hvílík
angist og hryggð getur gripið heilt
byggðarlag, þegar svona stendur
á. Eins er það nú í Kikjuvogsvör-
inni; grátstafir og þungur ekki
heyrðist, en karlmenn þeir, sem
stóðu upp á Kotvogsbakkanum
svonefnda, þeir sáu betur til
skipsins. Þeir sáu, að skipið hélt
sig nokkuð utan við sundið. Var
þá sjór orðinn svo mikill, að skip-
ið hvarf alveg, og að því er manni
fannst drukklanga stund í öldu-
dalina, en snilldarlega var það þá
varið fyrir kvikum og áföllum. Þá
sáu menn líka, að til formannsins
var kominn maður. Og menn
vissu, hver það var. Það var
Stjáni; hann reri hjá Magnúsi
Skip líkt þeim sem Stjáni blái reri á. Teikning eftir Tryggva Magnússon.fÚr Islenskum sjávarháttum).
þessa vertíð. Og menn vissu, hví-
líkur snillingur hann var, og
hversu hann gat hafið sig yfir all-
an fjölda manna á svona augna-
blikum. Og það skal ekki orð-
lengja frekar, að nokkru seinna
kom lag á sundið, sem þeir tóku,
og heppnaðist vel, enda lögðu
þarna tveir snillingar saman ráð
sín, Stjáni og formaðurinn. Aldrei
minnist ég að hafa séð hjartanlegri
viðtökur né fleiri hendur draga
skip upp á þurrt land en þá. En
þegar skipið stóð á þurru, þá
mælti Magnús formaður og var þá
reiður, til þess að bæla niður í sér
klökkvan: „Hana, piltar, þakkið
þið nú honum Kristjáni fyrir líf-
gjöfina í dag.“ Magnús var dreng-
lyndur maður og vissi, hvað hann
sagði. Menn, sem voru með
Stjána þennan dag á sjó, sögðust
aldrei hafa þekkt hann alúðlegri
né skemmtilegri en þennan dag.
Það var eins og hann yxi upp úr
sjálfum sér, þegar hann horfðist í
augu við háskann./.../ Stjáni var
eins og hvert annað kuldastrá í
landi, en í ríki sjómennskunnar
var hann fæddur konungur, í rík-
inu sem leggur svo mikið til í
kjarnann í þjóðlífi okkar Islend-
inga.“
Snyrtilína frá
meka
• Stillanlegur stóll og borð • Pöntunarkerfi fyrir 3—4tegundir á sömu línu.
• Þunntljós • Bakkinn stöðvast þar sem pantað er.
• Hljóðlát og sjálfvirk lína.,
• Fullkomin vinnuaðstaða.
• Minni vöðvabólga og þreyta, aukin afköst.
meka
Skemmuvegi L-8,
200 Kópavogur
sími 72244.
I