Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Page 11

Fiskifréttir - 06.06.1986, Page 11
föstudagur 6. júní 11 Gunnar Sigursteinsson tóksaman „Þuriður snarast þóftuámar...“ Um Þuríði formann Þuríður snarast þóftu á mar. Þýtur svar: „Menn œri!“ Stýrið hjarar. Ströndin bar strykað vara-sœri. Úr formannavísum eftir Eirík Snorrason, þar sem hann yrkir um Stokkseyrarformenn. Vísuiía má skýra á þessa leið: Þuríður snarast á þóftumar (= fer fljótlega á skip). Svar (hennar) þýtur (= heyrist snögglega): „Menn æri!“ (= leggi út árar). (Hún) hjarar stýrið (= setur stýrið á hjörin). Ströndin bar strykað varasæri (= kjalfar sást sem strykmyndað „sár“ í ijörusandinum. [Hér er gefið í skyn, að vegna flýtis hafi eigi verið gætt að hafa hlunna undir skipinu, er það var sett fram, svo að kjölurinn hafi dregizt í sandinum og sært (þ.e. rák- að) ströndina ofan að vörinni]. Svipur hennar var einbeittur og augun snör og vökul. Setningar hennar voru meitlaðar og svörin oft beitt sem örvar eða snöggsem hamarshögg. Uppeldið á sjónum mótaði þessa konu. Hún var for- maður í 25 ár. Hún var grannvaxin en nokkuð þykk um herðar og í meðallagi há. Hún var svipmikil en neðri hluti andlitsins var mjög lítill. Allt látbragð hennar lýsti óvenjulegu fjöri. Málrómur- inn var harður en ekki óviðfelldinn. Framburðurinn var djarfleg- ur. f flestu þótti hún frábrugðin og einkennileg. Þessi lýsing á Við Þuríði Einarsdóttur formann sem fæddist á Sléttum á Eyrarbakka árið 1777. Ekki er ætlunin með þessari grein að rekja allan æviferil hennar lieldur að grípa niður hér og þar til að bregða ljósi á þessa sérstæðu persónu. Þuríður var málsvari háseta og oft orðhnyttin í tilsvörum Þuríður varð háseti hjá Bjarna bróður sínum 14 ára gömul. Skipverjar tóku henni vel þó hún væri svo ung að árum. Ástæðan var sú, að hún var öllum mönnum fisknari og virtist búa yfir öllum þeim kostum sem góðir sjómenn þurfa að hafa. Þuríður var snögg, örugg, úrræðagóð, aðgætin og glöggsæ. Hún var háseti hjá Bjarna í sex ár en þá reyndi Jón hreppstjóri á Stokkseyri að fá hana í skipsrúm til sín og réðst hún til hans 1797, tvítug að aldri. Hásetar Jóns mátu Þuríði mik- ils. Ef Jón var ósanngjarn í garð háseta sinna svaraði Þuríður fyrir þeirra hönd og tókst henni yfir- leitt alltaf vel upp. Þuríður var skemmtileg, ræðin og upplifgandi jafnt á sjó sem í landi. Þuríður var stórhuga og fljót- huga. Hún var ráðrik og lét sér lít- ið óviðkomandi. Hún var góð við fátæka en óvægin við ríka menn og lét engan gera á sinn hlut. Hún var skynsöm, hnyttin í tilsvörum og gagnorð. Hún var fljót að svara fyrir sig og oft orðhvöss en notaði aldrei stóryrði eða illyrði. Aldrei missti hún stjórn á skapi sínu. Hún var ómenntuð eins og títt var um hennar daga en var eftirtektar- söm með eindæmum og mjög minnisgóð. Ráðríki Þuríðar og elskhugar hennar Þuríður átti um ævina tvo sam- býlismenn og einn eiginmann. Sambúðin var í öllum tilvikum stutt og er ástæðan iíklega ráðríki Þuríðar. Fyrst trúlofauisi hún Jóni nokkrum en hann fékk litlu að ráða í búskap þeirra og lagðist hann í drykkjuskap og fór Þuríður frá honum af þeim sökum. Næst bjó hún með Erlendi Þor- varðarsyni og átti með honum dóttur, Þórdísi. Þegar Þuríður bjó með Erlendi renndi Þórður nokkur hýru auga til hennar en hún vildi ekkert með hann hafa. Þórður greip þá tii þess ráðs að koma af stað þeim kvitti að hann sjálfur ætti barnið með Þuríði en ekki Erlendur. Berst kvitturinn til eyrna Er- lendar og brá honum mjög í brún við þau tíðindi. Þuríður reyndi að grennslast fyrir um hvers vegna Erlendur varð svona fálátur og spurði hann en hann vildi engu svara. Að Iokum heyrði Þuríður kjaftasöguna og uppgötvaði um leið ástæðuna fyrir þunglyndi Er- lendar. Hún spurði hann hvort hann tryði þessum illgirnislega kvitti. Hann svaraði, að hann vissi ekki hverju hann ætti að trúa. Þá rak Þuríður sambýlismann sinn á dyr og sagði: „Þá er það næst að þú yfirgefir mig fyrst þú trúir mér ekki betur en þetta. Ekki vil ég eiga þann mann sem tortryggir Þuríður formaður. (Eftir teikningu Finns Jónssonar á Kjörseyri, sem þekkti Þuríði á yngri árum sínum og teiknaði þá myndina). mig í því efni.“ Varð þetta endir- inn á þeirra sambúð. Þórdís dóttir Þuríðar varð ekki langlíf. Hún andaðist úr barna- veiki á þriðja ári. Harmaði Þuríð- ur hana mikið. Hvernig Þuríður varð formaður Árið 1815 bjó Þuríður í Götu í Stokkseyrarhreppi. Hún hafði hug á því að kaupa kú og hafði Jón hreppstjóri gefið í skyn að hann myndi lána henni kýrverð- ið. Þegar eigandi kýrinnar kom með kúna fór Þuríður til Jóns en Jón brást henni og segist aldrei lána peninga. Hittir Þuríður þá prófast í Gaulverjabæ að máli og lánaði prófastur henni peningana með því skilyrði að hún verði for- maður að vetri á áttæringi hjá honum sjálfum. Kaupir Þuríður kúna við svo búið. Eftir þetta ræður Þuríður sér háseta en það fór hljótt og grunaði engan og gekk þetta svo að vertíð- arlokum. Kallaði Jón þá háseta sína og Þuríði á sinn fund og bað þau að vera hjá sér næstu vetrar- vertíð. Þá svaraði Þuríður „Af því þú lánaðir mér ekki kýrverðið á dögunum er nú svo komið að ég verða að fara frá þér.“ Jón varð þá bálreiður og segir að þetta sé versta bragð sem hún hefði getað gert sér. En Þuríður hló að honum og kvaddi. Hásetar Jóns vildu ráð- ast til Þuríðar en hún hafði þegar fullráðið í öll rúm og vildi heldur ekki ráða menn Jóns. Þannig varð Þuríður formaður og entist hún í 25 vetrarvertíðir. „Með skyndi nú, Snorri.“ Það getur engin kona borið kvenbúning undir skinnklæðum á sjónum. Konur þurfa þess vegna að klæðast í karlmannaföt í róðra. Vandist Þuríður því svo að hún var í karlmannafatnaði við flest tækifæri i landi. Það kom þó ekki í veg fyrir að hennar yrði beðið. Eftir að hún flutti í Götu ætlaði hún sér að verða sjálfstæð kona til æviloka. En það kom babb í bát- inn. Jón Egilsson hafði verið vinnumaður hennar og staðið sig með prýði. Kom Þuríði og honum mjög vel saman. Kom að því að Jón hótaði að yfirgefa hana, nema hún giftist sér. Þuríður þurfti á Jóni að halda og lét tilleiðast. Jón kvæntist henni 31. október 1820. Var Þuríður þá 43 ára en

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.