Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Qupperneq 12

Fiskifréttir - 06.06.1986, Qupperneq 12
12 Þuríðarbúð á Stokkseyri. Verbúð hlaðin frá grunni um miðja þessa öld á þeim stað þar sem talið er að búð Þuríðar hafi verið. (Ljósm. Björn Jónsson). Jón 21 árs gamall. Hjónabandið entist ekki lengi og fór Jón frá henni vorið 1821. Nágrannar þeirra töldu ástæðuna vera, að Þuríður leyfði honum ekki að koma í rekkju hjá sér. Þau fengu fullt skilnaðarleyfi 1829 er Jón vildi kvænast Ingunni Jónsdóttur, ekkju. Ári eftir að Jón Egilsson yfirgaf hana réði Þuríður nýjan vinnu- mann er Snorri hét. Hann var heldur seinlegur og kallaði hún oft til hans ,,Með skyndi nú, Snorri.“ Þetta varð fleyg setning og höfð að orðtaki. (Marr í skipi. Brimhljóð hækkar.) Ausið í herrans nafni, ausið. Fyrsta veturinn sem Þuríður bjó í Götu Ienti hún í hrakningum á sjó til Þorlákshafnar. Sjóveður var gott um morguninn og vildi Jón hreppstjóri róa. Það var gert. Meðal skipverja voru þuríður, vinnuhjú hennar og Jón Gamla- son. Annað skip var látið róa líka og var Jón borgari fyrir því. Sjór tók að ókyrrast, alls staðar var ófært og stefndu skipin til Þor- lákshafnar. Sjór og vindur æstust enn og er skammt var til Þorláks- hafnar fór sjór að ganga í skipin. í þætti sem Klemenz Jónsson bjó til flutnings fyrir útvarp er þessum atburði lýst á eftirfarandi hátt: „(Brimhljóð hækkar. Marr í skipi) Jón hreppstjóri: Eg heiti á ykkur að duga mér nú vel. (Kall- ar) Ausið nú hver sem betur getur. Ausið. Skipið fyllir með þessr áframhaldi. Með guðs hjálp ætt- um við að geta náð til Þorláks- hafnar. Þuríður: (Fastmælt) Já, ef þér tekst að verja skipið áföllum. Jón hreppstjóri: Ausið af öllum kröftum. Ausið. Brim og boðar vaxa sífellt. Ég reyni að fylgja nafna mínum meðan ég grilli í hann gegnum sortann. Ausið í herrans nafni, ausið. Þuríður: (Kallar) Fari Jón Gamlason undir stýrið. Það mun best duga. Jón hreppstjóri: Ha, já, já. (Bregður en lætur þó undan) Komdu þér undir stýrið lagsmað- ur. (Brimhljóð hækkar). Háseti: Guð almáttugur hjálpi okkur. Þarna hefur bátnum hvolft undir Jóni borgara í brimgarðin- um. Ætli nokkur komist af? Jón Gamlason: Haldið þið saman á ykkur kjöftunum. Þuríður: Aldrei skal æðrast drengir góðir. Með guðs hjálp tekst það. (Brimhljóð heldur áfram nokkra stund. Báturinn nær landi og allir eru ómeiddir en þjakaðir). Sögumaður: Sagt er að Jón hreppstjóri hafi ekki látið hlut sinn fyrir neinum og ekki tekið við skipunum frá öðrum. Þetta sýnir best hvaða traust Jón hefur borið til Þuríðar. Enda brá svo við að engin bára fór inn í skip Jóns hreppstjóra eftir það og lentu þeir með heilu í Þorlákshöfn um kvöldið. En frá Jóni borgara er það að segja að skip hans fyllti í lendingunni. Var flestum mönn- um bjargað, en nokkrir drukkn- uðu og rak þá strax upp. (Brim- hljóð. Þögn).“ Gönguför Þuríðar eftir hrakningana til Þorlákshafnar Þegar í Iand var komið bauðst Þuríður til að tilkynna vanda- mönnum þeirra sem drukknað höfðu tíðindin. Lagði hún af stað um kvöldið. Hún fór á ís yfir Ölfusá og austur Bakkann um nóttina. í aftureldingu kom hún að Baugstöðum og sagði fréttina. Svo gekk hún að Gaulverjabæ og tilkynnti prófasti. Þuríður sagði síðar að eftir þennan lífsháska hefði hún ekki tregað látna dóttur sína jafnmikið því ef hún sjálf hefði látið lífið þá hefði hún ekki viljað vita af Þór- dísi munaðarlausri. Snilld Þuríðar kemur best fram í sjómennskunni og eru til sögur af henni sem segja að hún hafi tvíróið sjóinn og komið með fulla farma í land þegar aðrir hafa aðeins séð sjóinn brúkanlegan í eitt skipti. En glöggskyggni og þroskuð athyglisgáfa hennar kom í Ijós í fleiru t.a.m. í sambandi við Kambsránið margfræga. Hattgarmur, sleginn járnteinn, ólitaður leður- skór og rannsókn Þuríðar á þessum hlutum Kambaránið er einstakur at- burður í íslenskri glæpasögu og málarekstur í sambandi við það einhver hinn mesti og víðtækasti í nokkru sakamáli hér á landi. Þuríður þekkti vel til allra þeirra sem tóku þátt í Kambsrán- inu og þrír þeirra höfðu verið hásetar hjá henni. Hún kom mik- ið við sögu við rannsókn málsins. Það var Jón hreppstjóri sem ráð- lagði sýslumanni að hafa tal af Þuríði „Kallið Þuríði formann til viðtals,“ sagði Jón. „Hún var svo skarpskyggn og eftirtektarsöm að ég veit engan hennar líkan. Geti hún engar bendingar gefið er ég hræddur um að hinir seku finnist ekki hér í nánd.“ Sýslumaður fór að ráðum Jóns og lætur sækja Þuríði og lofaði hann henni pappír upp á að megi ganga í karmannabúningi hvers- dagslega ef hún geti gefið honurn vísbendingu um hverjir ættu aðild að ráninu. Hann sýndi henni nokkra hluti sem fundust eftir ránið í Kambi. Hattgarm, snæris- flækju, strigadruslu, sleginn járn- tein, brúsabrot, vettling og ólitað- an leðurskó. Þuríður rannsakaði skóinn vel og vandlega og sagði „Vel hefur sú verið að sér, sem skóinn gerði. Það er sérstakt handbragð á hon- um og hef ég séð það á þremur bæjum. Hinn fyrsti er Hjálmsholt. Annar er Gaulverjabær og er ég þó viss um að ránsmenn hafa ekki verið þaðan. Hinn þriðji er Sléttir. Krístin kona Jóns Geirmundsson- ar er vel að sér og hjá henni hef ég séð skó eins gerða og þennan.“ Ennfremur tengdi Þuríður hatt- garminn við Sigurð Gottsvinsson. Þuríður rak svo smiðshöggið á verkið með því að bera saman steðja Jóns Geirmundssonar við járnteininn. Á steðja Jóns var meitilspor og sáust þess merki á járnteininum. Þuríður hafði rétt fyrir sér í þessu öllu og reyndust Jón Geir- munsson og Sigurður Gottsvins- son vera tveir af ránsmönnum. „Þó er samviskan alltaf í mönnum, “ sagði Þuríður sem trúir á hið góða. Þuríður benti sýslumanni einn- Þorlákshafnarskip. Teinæringur. Ekki ósvipað skipum sem Þuríður reri á, nema hvað á hennar tíma munu segl ekki hafa verið notuð á skipum frá Stokkseyri.

x

Fiskifréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.