Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Side 13

Fiskifréttir - 06.06.1986, Side 13
föstudagur 6. júní 13 ig á tvo aðra menn, Jón og Hafliða Kolbeinssyni, sem reyndust vera í vitorði með þeim fyrrnefndu. Jón Kolbeinsson var háseti hjá Þuríði og eitt sinn er Þuríður var að spjalla við hann um ránið og talaði um að grunaðir menn þyrftu að sverja eið og þá mundi sannast hverjir væru sekir og hverjir ekki. Hún sagði „Það er voðalegt að taka guð til vitnis þeg- ar maður lýgur,“ en Jón hafði sagt að lítið mál væri að sverja rangan eið. Jón taldi eiða ekki merkilega og sagði þá mannasetn- ingu. „Þó er samviskan alltaf í mönnum, “ svaraði Þuríður hon- um „og bendir þeim á grein góðs og ills.“ Þuríður var trúhneigð kona og trúði á hið góða í öllum mönnum. Þó Þuríður hafi komið upp um Kambsránsmenn þá kom hún áfram vel fram við þá eins og hennar var von og vísa. Hún heimsótti oft litla dóttur Jóns Geirmundssonar og stúlkan varð hænd að Þuríði. Þegar Jón ætlaði að svelta sig í hel fór Þuríður þangað sem hann var í haldi og talaði hann til. Fékk hún hann til að þiggja mjólk og matarbita og bað hann að lifa vegna litlu dóttur sinnar. „Stattu stöðugur í sann- leikanum,“ sagði hún þegar hún kvaddi hann „þá áttu vægðarvon bæði hér og annars heims.“ „Eg heiti Þormóður,“ sagði Þuríður formaður Þórður sýslumaður Sveinbjarn- arson stóð við orð sín og útvegaði Þuríði leyfi til að bera eingöngu karlbúning og kom hún aldrei í kvenmannsflík eftir það. Oft þeg- ar menn spurðu hana að nafni sagðist hún heita Þormóður. En á eftir sagði hún hið sanna og varð oft hláturaf þessu. Þuríður varð þekkt af fleiru en góðu. Hún var sífellt að kæra menn. Kom hún 8 eða 9 sinnum fyrir sáttanefnd á árunum 1824 til 1833 og var sjálf alltaf kærandi og hafði alltaf sigur, enda var hún höfðmgjadjörf og lét engan eiga hjá sér í tilsvörum. Svör hennar voru oft sem eiturörvar og hittu beint í mark. Með sjómanna- og víkingablóð í æðum Þuríður varð 86 ára og hafði ekki förlast sjón né heyrn til dauðadags. Hún varð aldrei rúm- föst og var á ferli daglega í ellinni. Hinn 13. nóvember 1863 hafði Þuríður gengið út að vanda og komið heim í rökkrinu. Lagðist hún þá i rúm sitt. Allt í einu kvartaði hún um magakrampa. Litlu síðar fékk hún svo hart við- bragð að hún tókst á loft. Á eftir annað minna og svo hið þriðja vægt. Prestur var sóttur en Þuríð- ur var látin. Á Stokkseyri hefur sjóbúð Þur- íðar formanns verið endurreist í Götu. Þuríður hafði sjálf reist bú í Götu árið 1811 og bjó hún þar í 11 ár. Þau ár voru blómaskeiðið á hennar löngu ævi, þá byrjaði hún búskap og síðar formennsku. Sjóbúðin er kennd við Þuríði og heitir Þuríðarbúð. Búðin er minn- ismerki um líf og störf horfinna kynslóða og um leið minnismerki um Þuríði formann. Þuríður var með sjómannablóð í æðum og líka víkingablóð að áliti Brynjólfs Jónssonar sem rit- aði ævisögu hennar og lýkur sög- unni um Þuríði formann með þessum orðum: „Því mjög þótti hún óvægin og eigi alls kostar friðsöm, en hafði á hinn bóginn fágæta skarpskyggni, snarræði, kjark og þrautseigju til að bera og var fús til liðsemdar, ef hún mátti. Hjá fleirum mætti benda á ýms einkenni víkinga- blóðsins. Og enn mun það eigi út- dautt með öllu. Er mjög óskandi að oss takist að útrýma ókostum þess, en halda kostum þess eftir.“ Heimildir: 1. Sagan af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum. Guðni Jóns- son gaf út. M.F.A. Rvk. 1954. 2. Guðni Jónsson, Stokkseyringa saga, I. bindi. Rvk. 1960. 3. Klemenz Jónsson, Þættir um Þuríði formann og Kambsráns- menn tii flutnings fyrir útvarp. 4. Lesbók Morgunblaðsins 17. júlí 1949: Þuríðarbúð á Stokks- eyri. 5. Páll Eggert Ólason, íslenskar æviskrár, V. bindi. H.I.B. Rvkk. 1952. 6. Þórunn Magnúsdóttir, Sjósókn sunnlenskra kvenna. Höfundur gaf út. Vestm. eyjum 1984. ® KVÆRNER KULDE as Store, moderne fiskefartoyer er avhengig av solide og driftssikre kuldeanlegg. Disse fiskefartoyer har valgt kuldeanlegg fra KVÆRNER KULDE as Referanseliste for leverte anlegg til Island i de siste ár. M/S 0rvar 2 stk. skrukompressorer 5 stk. platefrysere M/S AKUREYRIN 2 stk. skrukompressorer 4 stk. platefrysere M/S HAFTHOR 3 stk. skrukompressorer 3 stk. platefrysere M/S SIGLFIRDINGUR 4 stk. skrukompressorer 5 stk. platefrysere M/S SOLRUN 2 stk. stempelkompressorer 1 stk. platefryser Bygg nr. 18 Velsmidja Seydisfjardar 1 stk. stempelkompressor M/S STAKFELL 1 stk. skrukompressor 3 stk. platefrysere M/S SIGURBJ0RG 2 stk. skrukompressorer 3 stk. platefrysere M/S HILMIR 1 stk. skrukompressor 3 stk. platefrysere M/S JON KJARTANSSON 3 stk. skrukompressorer 2 stk. platefrysere M/S FRERI 2 stk. skrukompressorer 5 stk. platefrysere M/S ARINBJ0RN 2 stk. skrukompressorer 4 stk. platefrysere M/S JUPITER 3 stk. skrukompressorer 2 stk. platefrysere M/S STJ0RNUTINDUR 2 stk. skrukompressorer 2 stk. platefrysere M/S JULIUS HAVSTEEN 1 stk. skrukompressor 1 stk. platefryser M/S GRINDVIKUNGUR 2 stk. skrukompressorer 4 stk. platefrysere Bygg nr. 66 Slippstodin 2 stk. skrukompressorer 2 stk. platefrysere Bygg nr. 67 Slippstodin 2 stk. skrukompressorer 2 stk. platefrysere KVÆRNER KULDE as Tilsluttet Kværner konsernet Postboks 115, 1301 Sandvika, Norge Tlf. (02) 54 49 60 Telex 76 480 kulde n

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.