Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Síða 20

Fiskifréttir - 06.06.1986, Síða 20
föstudagur 6. júní Það er staðreynd sem óþarfi er að rifja upp eða fara um mörgum orðum að í langan aldur eða allt fram á þessa öld voru Islendingar nær algjörlega háðir því sem náttúran gaf af sér til sjávar og sveita. Vitanlega má með sanni segja að við séum það enn þar sem sjávar- fengur er enn lang stærsti hluti útflutnings okkar og það sem skap- ar lang mestar tekjur fyrir þjóðarbúið. Nú eru hins vegar ytri að- stæður þannig að Islendingar geta þraukað þótt eitthvað beri út af en í „gamla daga“ var jafnan um líf eða dauða að tefla. Þá varð fólk að neyta allra bragða við að nýta sér fátækleg gæði íslenskrar náttúru og kannski finnst sumum nútímamönnum að of langt hafi verið gengið og líklegt er að Greenpeacesamtök hefðu látið til sín heyra hefðu þau þá verið til. En Islendingar eru vitanlega ekki ein- ir um slfka fortíð. Allar veiðiþjóðir urðu að beita sínum brögðum til að nálgast veiðidýrið. Þar varð tilgangurinn að helga meðalið - að forða sjálfum sér og sínum frá hungri. „Fuglinn situr á flekanum, fljúga hann ekki má “ SteinarJ. Lúðvíksson tóksaman Sjófuglaveiðin að leggjast af Tæknivæðing nútímaþjóðfé- lagsins hefur gert veiðiaðferðir er Islendingar stunduðu í langan ald- ur úreltar og þær heyra nú sög- unni til. Og það sem meira er. Veiðar sem voru á sínum tíma mjög mikilvægar og raunar héldu lífinu í mörgu fólki á ákveðnum árstíma tíðkast nú ekki lengur nema þá helst sem sportmennska. Þar má nefna veiðar á sjófugli sem eru nú orðnar mjög litlar og vart stundaðar nema á stöku stað. Aður fyrr var þarna um veigamik- inn bjargaveg að ræða - svo mik- inn að litið var á þá staði þar sem veiðin var mest og best sem eins- konar matarkistur og búseta fólks réðist m.a. af því hvernig þessar veiðar voru stundaðar. í gömlum frásögnum má lesa að fólk hefur hlakkað mjög til þess tíma er fugla-og eggjataka hófst og ný- metið var á borð borið. Ekki verður því á móti mælt að íslendingar hafa sjálfsagt verið full aðgangsharðir í öflun sinni og sem dæmi um það má nefna að árið 1844 voru síðustu geirfugl- arnir sem vitað er um að til hafi verið í heiminum drepnir við Eld- ey og fuglinum þar með útrýmt. En aðrir fuglar sem höfðu betri burði til þess að bjarga sér sluppu og svo virðist sem furðulegt jafn- vægi hafi ríkt í náttúrunni. Alla vega er það skoðun margra þeirra sem fylgst hafa um langt skeið með fuglabjörgum við fsland að fugli hafi þar ekki fjölgað þótt veiðum hafi verið hætt. Fuglinn tortímist þá á annan hátt en áður. Til eru margar frásagnir um veiðimáta fyrr á tímum og sjálf- sagt finnst mörgum nútímamann- inum nóg um sumar þeirra. Það var t.d. sagt og mun satt að þegar Mýrdælingar sigu í björg eftir fýl þá gátu þeir ekki haft nema aðra höndina lausa þar sem þeir urðu að halda hinni um sigkaðalinn. Þegar þeir fönguðu fugl og þurftu að aflífa hann höfðu þeir því ekki önnur ráð en að læsa tönnunum í haus fuglsins og brjóta þannig höfuðkúpu hans. Séríslenskt fyrirbrigði? Snöruflekaveiði mun vera al- gjörlega séríslenskt fyrirbrigði í fuglaveiðum og það sem meira er þá mun sú veiðiaðferð nánast hvergi hafa verið stunduð hér- lendis nema í grennd við Drangey á Skagafirði. Er líklegt að þar hafi veiðiaðferðin verið fundin upp en þótt merkilegt megi teljast náði hún ekki útbreiðslu - merkilegt er sagt hér vegna þess að snörufleka- veiðin virðist oft hafa verið árang- ursrík og fyrirhafnarminni en mörg önnur sjófuglaveiði. Veiði þessi var stunduð Iangt fram á þessa öld en var bönnuð með lög- um árið 1966 og var forsenda bannsins fyrst og fremst sú að þessar veiðar þóttu ómannúðleg- ar. Enginn veit með vissu hvenær Skagfirðingar hófu snörufleka- veiðina en af Passíusálmum Hall- gríms Péturssonar má þó sjá að hann þekkti veiðiaðferðina og hefur líkast til stundað hana. . . sem fugl við snúning snýst,/ sem snaran heldur . . segir Hallgrímur í 9. versi 12. Passíusálms síns og lýsir með þessum orðum nákvæmlega við- brögðum fugls sem fastur er á snörufleka. Það er því ljóst að snöruflekaveiðin var komin til FusiUnn sítur úftekumtm, lljttk'U Itann el■ ki niú: l ‘œngirnir báðir hundnír hihiílum — \otmn ith sjú Ölditnuir hntma undir Fleiónabjarö- Fualimi Mlur ú tlckuinmi I uelum ului a ilekammi. I uyjinit ulitrú tlci-.iiiiiiin Fuekinm sitia ú Úckaiunn, FlaUíj hann itm tofiin hlá. jysír i bjargið. hej.ii): Framdur haii.s numa. þar að. Flýta jK’ir baminní H i r báða hœinji Pai á hanneyy. isiim \et)a.sl við hlið:> .-g kruka hatl, — mcHHtrmrupr 'liansiioriiið bU’% honum léingum þá. annaítt néhhiirþeim. en komast ei framar ajstdð -y ogýtafram kmmnni. Ólurnarbrottm undír Heiðiiabjargt. Öldttrnar brotna undtr Heiðtmhjargi. 'Ötdurnakhfgma hndir Heiðnahjaryi Öldurnar hrjóia itndir Heiðnabjaryi. Fuylinn sílur á flekaiumt. fótutn eibeita má: Peir era baðir bu höndum — voium aðsjá. Öldurnur brotna iindir Heiðnabjaryi. I : situr á flekatium, fÍMridiúpan ntat Pað cr \m margh að mínnasi i morinu niðriþar. Öhhtrnat hrotna undir IJeiðnahjctrgi. Fughmt wlur a llekamun Fuslarmr srth, . Fríkka • liaf onbiari; ,,Faðir\. jobalaji l.vjlisl kra Hðandi hrjðsti memiirnir ttppi við .lllurisliorniö /o ■utin fn luttftð — Zijrt’ ot; emdanum /j tta I:. Öldurnar brolna undir Heiðnabjaryi. Öldiirnar hratna nndir /Jeiðnahjaryi. Futflai >::■ sitia a '/. • íinum I ra.ni iða vu\kir menn II >a> eru hrrðtr t land Fugkirni lh ■• , o Oy ökhtrnar hrolna undir Heiðnahjaryi

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.