Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Blaðsíða 23

Fiskifréttir - 06.06.1986, Blaðsíða 23
föstudagur 6. júní 23 Drangey á Skagafirði. Kerlingin til hægri og Málmey í baksýn. I grennd við Drangey var snöruflekaveiðin stunduð og höfðu veiðimenn oftast aðsetur í eyjunni meðan á „vertíðinni“ stóð. voru vandlega bundir fremst á stjóraflekann og þess gætt að þeir gætu ekkert hreyft sig því ef fugl- inn barðist um gat hann fremur fælt aðra fugla frá en hitt. Var fuglinn hafður í svipaðri stellingu á flekanum og hann væri að synda. Meðan á veiðunum stóð var vitjað um flekana tvisvar á dag. Klukkan átta að morgni og síðan aftur klukkan níu að kvöldi. Stóðu vitjanirnar oftast í þrjár til fjórar klukkustundir. Eins og við aðrar veiðar var aflinn mjög mis- munandi, sumar heimildir segja að oftast hafi verið 6-10 fuglar á fleka en aðrar að þeir hafi verið fleiri. Best mun veiðin hafa verið þegar nokkur strekkingur var og var slíkur vindur þá oft kallaður fuglagráð. í slíku veðri virtist fugl- inn hafa mesta þörf fyrir að hvíl- ast. Þegar logn var og gott veður veiddist hins vegar minna og eins í hvassviðri enda mun mikil hreyf- ing á flekunum hafa leitt til þess að snörurnar fóru úr egningu og voru þar með orðnar hættulausar þeim fugli sem skreið upp á flek- ana. Til eru nokkrar ágætar frásagn- ir manna sem tóku þátt í snöru- flekaveiðinni við Drangey um hvernig þær gengu fyrir sig. í grein sem nefnist Drangeyjarþættir eftir Albert Sölvason og birtust í ritinu Heimdragi III lýstir Albert reynslu sinni af snöruflekaveiðum og segir þar m.a. þannig frá: Snör handtök „Klukkan er um 8 að morgni. Menn hafa fengið sér morgun- drykkinn og egnt þær niðurstöður sem fara á með til að skipta um. Hver háseti hafði fjórar niður- stöður í sjón, en 2-3 aðrar voru til skipta þannig, að niðurstaða var leyst af, þegar hún hafði verið ákveðinn tíma í sjó eða hárið í snörunni var farið að trosna, var þá þurr niðurstaða með góðum snörum hnýtt á. Þetta hét að skipta um. Menn skinnklæðast, Gömul teikning af snörufleka eins og þeim sem notaðir voru í Skagafirði. og svo er ýtt á flot. Við erum á tveimur bátum, 6 á öðrum, 4 á hinum. Bátunum er snúið sólar- sinnis, fer annar t.d. á innenda bandsins, en hinn þá norður fyrir ey á þann enda bandsins, sem þar er. Menn hafa auga með niður- stöðunum, um leið og framhjá er farið og reynt er að fylgjast með hvort góður afli sé í vændum. Ef mikill fjöldi fugla sást á niður- stöðu, var svo tekið til orða, að hún væri hauguð. — Við erum komnir að fyrstu niðurstöðunni, rennt er fast meðfram keflaröð- inni, formaðurinn tekur fleka- gogginn, það er járnkrókur festur á endann á um það bil tveggja metra langri sívalri stöng, bregður honum niður í sjóinn og krækir í trássuna rétt við flekakeflið, en svo var keflið næst niðurstöðunni oft nefnt - og lyftir keflinu inn í bátinn. Áður höfðu ræðarar stungið við með árum og tekið skriðinn af. Ef veður var stillt og sjólítið var látið nægja að skorða flekakeflið við bitahöfuðið en ef hvasst var og sjór, var farið með trássuna fram á hnýfil og hún fest þar, og fer þá að verða skiljanlegt, að stjórarnir þurftu að vera þung- ir, ef koma átti í veg fyrir að sex- æringur færi á rek, þegar veðri var þannig háttað. En nú er logn. For- maðurinn lyftir fyrsta flekanum inn í bátinn og síðan hverjum af öðrum, endafleki er þá á milli andófsrúmmanna, miðfleki milli miðrúmsmanna og stjórafleki milli austurrúmsmanna. Venju- legast voru 6 til 10 fuglar á niður- stöðu, gat líka verið enginn og upp í 15. SMGGNST UNPUt yF/NBONP/P Einn liður í þeirri þjónustu Hampiðjunnar að miðla upplýsingum um eiginleika og notkun veiðarfæra, er útvqgun og dreifing myndþanda. Nú þjóðum við sjö áhugaverð myndbönd á kostnaðarverði. 1. / TIUtAUHAlANKIMUM 2. HSKUK íTKOLU 3. HSKAP M£P PKAGNÓT 4. POKSKANCT 5. TOGVeiPAKFÆKIP 6. LÍNUVUPAK VIPALASKA ?. HUMAK- OG HSKITKOLL Nánari upþlýsingar veitir söludeild Hampiðjunnar. HAMPIÐJAN Box 5136, 125 Reykjavík, sími28533

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.