Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Side 24

Fiskifréttir - 06.06.1986, Side 24
24 föstudagur 6. júní Þegar flekarnir eru komnir inn í bátinn, er fyrsta verkið að velja nýjan bandingja. Er sá fugl, sem fyrir valinu verður, tekinn lifandi og settur í vængbragð. Hinir allir, þar á meðal fyrri bandingjar, eru snaraðir, sem gert var á þessa leið: Vinstri hendi var gripið um fugl- inn yfir vænghnúfana, en þeirri hægri um haus fuglsins. Varð nú samstillt og samvirkt starf milli handanna, sem settu lið á háls fuglsins. Þegar svo snöggt togtak var gert með hægri hendi, fór fugl- inn úr hásliðnum og lét þannig líf sitt. Þessi handtök urðu svo örugg og hröð hjá flestum, að ekki tók nema tvær til þrjár sekúndur að aflífa hvern fugl. Áherzla var líka lögð á Ieikni og hraða í þessu, og voru nýliðum sýnd handtökin á dauðum fuglum og látnir æfa þau á þeim. Það kom fyrir, að menn beittu of miklu afli við snörun fugla og rifu haminn af hálsinum eða slitu hausinn hreinlega af. Það hét að blóðsnara. Ef slíkir menn náðu ekki laginu og lipurð- inni, sem til þurfti, voru þeir ekki látnir snara. Nú var fuglinn losaður úr snör- unni og merktur þeim manni, sem niðurstöðuna átti. Merkin voru fimm. Hið fyrsta hét laus, þá var ekkert gert við fuglinn, annað var vængbragð, þ.e. vængjunum var lyft upp og vænghnúfa annars var brugðið fyrir vænghnúfa hins og skorðuðust þannig. Hið þriðja merkið var hnútur, þá var haus fuglsins lagður aftur á bakið og vængbragð sett yfir, fjórða var keðja eða strolla, þá var haus eins fugls settur á bak annars og væng- bragð yfir og þannig tengdir sam- an 5 til 8 fuglar. Fimmta rnerkið var hringur, framkvæmt alveg eins og keðjan nema að þá voru endafuglarnir tengdir saman, svo að úr varð hringur. Sízt vildu menn hafa þessi tvö síðasttöldu merki. Ef fugl slitnaði úr keðju, þá var hann þar með kominn undir merkið laus. Ef hringur slitnaði, var hann orðinn að keðju. Það þurfti að minnsta kosti að gæta varúðar við þessi merki öðrum fremur, þegar aflanum var hent aftur í eða fram í. Laus þótti besta merkið. Það átti formaðurinn og hafði sína fugla í skutnum. Laust frammi í átti hins vegar kokkur- inn, og svo aðrir hásetar hin merkin, annaðhvort í skut eða barka. Þegar fuglinn hafði verið losaður af niðurstöðunni, merkt- ur og komið fyrir aftur í eða frammi í, eftir því sem við átti, var byrjað að egna snörurnar og egndi hver sinn helming af flekan- um og voru geysilega fljótir. Það var alltaf kapp í mönnum að verða fljótari með sinn helming, en alltaf hjálpaði sá, sem fyrri varð, hinum að ljúka við egning- una, og kom þar til kapp við mennina í næsta rúmi. Að egn- ingu lokinni var niðurstaðan bandingjuð og tilbúin að setjast 0gu'9uin oldum fiotmus-viabetr^ar afurð'r a mar Kaðssl FLUGLEIDIR FLUGFRAKT SÍMI 6 90 100 aftur á sjóinn. Þannig endurtók sagan sig við hverja niðurstöðu unz umvitjun var lokið.“ Fleiri höfðu áhuga en ekki varð af framkvæmdum Sem fyrr greinir mun snöru- flekaveiðin hvergi hafa tíðast á ís- Iandi nema við Drangey. Ljóst er þó að hugur til slíkra veiða hefur verið víðar á íslandi og eru t.d. til heimildir um það að Jón Runólfs- son lögréttumaður á Höfðabrekku í Mýrdal skrifaði Sæmundi Magn- ússyni Hólm í Skagafirði og bað um upplýsingar um hvernig flek- arnir væru útbúnir og veiðarnar stundaðar. ,,Eg held hér við Reynisdranga mætti .á vorin ákoma fuglaveiði nálægum til góðra nota, með viðlíkt tilbúnum flekum og ég heyri brúkaðir séu við Drangey,“ segir í bréfi þessu. Mun þetta bréf hafa orðið hvati þess að Ólafur Ólafsson frá Frostastöðum ritaði grein í rit Lærdómslistafélagsins árið I782 þar sem hann lýsir flekaveiðunum og er lýsing hans mjög svipuð og lýsing Sölva sem rakin er hér að framan. Milli þeirra skrifa er þó langur tími þannig að ljóst má vera að litlar sem engar breytingar urðu á snöruflekaveiðunum þann tíma sem þær voru stundaðar. Það má ljóst vera að snöru- flekaveiðin þótti ekki sérlega geðsleg veiðiaðferð og kann það að hafa ráðið einhverju um að hún var lítið eða ekki stunduð annars staðar en þar sem hún var fundin upp. Þegar kom fram á þessa öld og menn urðu ekki eins háðir því sem náttúran gaf af sér sem áður dró verulega úr snöru- flekaveiðunum þótt alltaf væri þær nokkuð stundaðar. Þar kom þó að Alþingi tók af skarið og bannaði veiðarnar með Iögum sem sett voru árið 1966. Það sem einkum þótti ógeðfellt við veiðarnar var að oft leið tölu- verður tími sem ekki var hægt að vitja um flekana. Þegar veður gekk upp og braut yfir flekana drápust fuglarnir sem þar sátu fastir svo fremi að þeim tækist ekki að ná sér Iausum með því að slíta af sér Iappirnar. Þá kom það stundum fyrir að flekarnir slitn- uðu upp og týndust og fundust slíkir flekar oft löngu seinna með dauðum fuglum á. Þá þótti með- ferðin á fuglunum sem notaðir voru sem tálbeita eða bandingjun- um grimmileg. „III nauðsyn hefur það verið og hörmuleg sem rak skagfirzka mannúðarmenn til því- líkra veiðiaðferða, — sem eru raunar engum góðum dreng sæm- andi fremur en svo margir aðrir veiðihættir, er menn reka, stund- um af ærinni þörf eins og hér, en oft af miskunnarleysi veiðibræð- innar,“ segir Hallgrímur Jónasson í bók sinni um Skagafjörð er út kom 1946 og má af orðum hans marka að mönnum hefur þótt nóg um. En nú heyrir sem sagt snöru- flekaveiðin sögunni til. Vel kann að vera að sumar þær veiðar sem íslendingar stunda nú verði litnar sömu augum af framtíðinni og horft fram hjá því af hverju var gripið til allra ráða til að ná í feng- inn.

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.