Fiskifréttir - 06.06.1986, Blaðsíða 26
26
föstudagur 6. júní
Aflabrögðin
Framhald af bls. 3
Aflinn fékkst aðeins rétt utan við
ströndina. Drangey er enn í leng-
ingunni ytra en Skafti er bilaður.
Ólafsfjörður: Ólafur Bekkur land-
aði 127 tonnum af þorski og grá-
lúðu eftir 9 daga veiðar. Þetta var
þann 26. maí. Sólbergið kom inn
vegna bilunar þann 28. maí og
landaði þá 40 tonnum af grálúðu.
Sigurfari landaði einu sinni í s.l.
viku og kom þá með 17,3 tonn af
þorski eftir 3 daga. Þrír dragnóta-
bátar stunda veiðar frá Ólafsfirði
og hafa þeir fengið lítið. Trillu-
karlar eru að fara af stað sem ann-
ars staðar og fengið gott þegar gef-
ið hefur. Siglufjörður: Stálvíkin
kom með 106 tonn að landi þann
27. maí eftir nokkurra daga veiðar
og var sá afli grálúða. Sveinborgin
landaði þann 31. maí 86,9 tonn-
um af þorski. Skjöldur kom með
40 tonn af þorski þann 30. maí úr
sínum fyrsta túr með troll eftir
undanfarandi rækjuveiðar. Þetta
var eftir 3 daga. Þorlákur helgi
landaði 14,9 tonnum af rækju í
vikunni en auk þess lönduðu Sæ-
ljónið 14,7 tonnum og Þorleifur
3,2 tonnum. Dalvík: Nú eru litlu
netabátarnir óðum að hætta og
munu senn fara á rækjuveiðar.
Eftirtaldir netabátar lönduðu afla
á Dalvík í s.l. viku: Stefán Rögn-
valdsson 6,6 tonnum eftir eina
ferð, Otur 15,2 eftirtvær, Harald-
ur 19 tonnum eftir tvær, Sæljón
34 tonnum eftir tvær, Heiðrún
38,3 eftir tvær, Sænes 40,1 tonn
eftir tvær, Búi 770 kg. eftir þrjár
og Kristján 850 kg. eftir þrjár
ferðir. Björgvin landaði 15,8
tonnum af rækju þann 30. maí
eftir 6 daga, Dalborg 47,5 tonnum
sama dag eftir 5 veiðidaga og
Baldur 66 tonnum af rækju þann
29. eftir 5 daga veiðar. Akureyri:
Hrímbakur landaði 107 tonnum
þann 27. maí og var sá afli aðal-
lega þorskur eða 70 tonn en restin
var karfi og ýsa. Aflaverðmæti:
2.400.000 Svalbakur landaði
tveimur dögum seinna 256 tonn-
um af grálúðu utan fimm tonna
sem var þorskur. Aflaverðmæti:
3.942.000 Grímsey: Þar hefur
verið tregt að undanförnu og eru
nú allir bátarnir hættir netaveið-
um. Nokkrar trillur hafa stundað
róðra þegar gefið hefur en á eyj-
unni norður við heimskautabaug
hefur verið kalt, rigning og leið-
indaveður að undanförnu. Hrís-
ey: ísborgin landaði 3,7 tonnum
eftir 3 sjóferðir, Eyborgin 10
tonnum úr einni ferð og Geiri Pét-
urs 15,1 tonni úr einni ferð.
Aflinn var einungis þorskur sem
verkaður er hjá Borg í skreið sem
seld er til Ítalíu. Ekki náðist sam-
band við Kaupfélagið. Húsavík:
þar bárust 223 tonn á land í s.l.
viku en þar af var Kolbeinsey
með 107 tonn sem landað var
þann 30. maí. Aflinn var aðallega
þorskureða 104 tonn. Margirbát-
anna eru nú hættir á netum og
fara sumir þeirra á rækju á næst-
unni. Þórshöfn: Það var logn og
blíða á mánudaginn þegar Stak-
fellið kom með 40 tonn af heil-
frystri grálúðu og karfa. Auk þess
Iandaði Stakfellið 95 tonnum af
þorski sem skipið fékk á 11 dög-
um. Um 15-20 bátar stunda veið-
ar frá staðnum og hafa trillurnar
komist upp í 5-600 kg. yfir daginn
þar sem einn maður er að verki. Á
vertíðinni komu um 28 tonn af
grásleppu á land sem gerði 210
tunnur af hrognum og verður það
að teljast allsæmilegt miðað við
aðra staði á landinu. Grenivík: í
síðustu viku var veður fremur
hagstætt og fengu sex smábátar
samtals 9,5 tonn af fiski. Núpur
landaði afla í vikunni þegar hann
kom með 48,5 tonn af þorski eftir
viku veiðar. Raufarhöfn: Rauði-
núpur landaði 70 tonnum af
þorski þann 29. maí eftir 6 daga.
Lélegt hefur verið hjá trillunum
þrátt fyrir sæmilegar gæftir.
Bylting
1,8
Háþrýstidælur
24 kW með allt að 400 bara þrýstingi
(6000 psi) (400 kg/sm2)
Til háþrýstiþvotta, sandblásturs
þrýstiprófana, lagnahreinsunar
Létt
FRIEDRICHS þvottatækin eru sérlega fyrir-
ferðalitlar háþrýstidælur — minni, léttari,
hljóðlátari og handhægari en nokkur önnur
tæki með sömu afköst.
Ódýr í rekstri
FRIEDRICHS þvottatækin hafa margvíslega
kosti umfram venjulega háþrýstiþvottatæki:
— þau brenna ekki olíu.
— viðhald á óáreiðanlegum brennurum er
úr sögunni.
— flutningur á sérstökum vögnum heyrir
sögunni til.
— einn maður nægir.
Kraftmikil
FRIEDRICHS háþrýstiþvottatækin eru —
þrátt fyrir smæðina — kraftmeiri en stór-
vaxnari keppinautar þeirra. Fá má venjuleg
(standard) FRIEDRICHS tæki með há-
marksþrýstingi allt að 200 bör (3000 psi)
eða meira.
Hvar sem þarf að þrífa eða sótthreinsa er
FRIEDRICHS háþrýstidælan kjörin ...
einnig með sandblæstri og hreinsiefnum.
Enginn hávaði, enginn reykur, engin gufa.
Nágrannarnir þurfa ekki lengur að kvarta.
Tækin eru einnig kjörin til notkunar innan-
húss. Yfirborð dælunnar er slétt og safnar
ekki ísig óhreinindum — þrifaieg í notkun! t
Verkver
Sundaborg 1,
sími 688730
Rækjubátar
Eigum fyrirliggjandi
Óskum eftir rækjubátum
á djúprækju.
Útvegum góð veiðarfæri.
Vinsamlegast
leitiö nánari upplýsinga
hjá Gunnlaugi Ingvarssyni
framkvæmdastjóra
í síma 97-8880.
BÚLANDSTINDUR H.F.
Djúpavogi Sími 97-8880
• Sá sem einu sinni hefur
ríotað TRIPLE LOCK net,
notar aldrei annað.