Fiskifréttir - 06.06.1986, Page 27
föstudagur 6. júní
27
Austfirðir
Seyðisfjörður: Gott veður, sól
og hiti hefur verið á Seyðisfirði
alla vikuna. Eftir aðeins 5 daga
túr kom Gullver að landi með
164.2 tonn og uppistaðan var
þorskur eða 122 tonn. Aðeins 85
% fór í fyrsta flokk. 4 smábátar
veiddu samnlagt 12 tonn og var
það aðallega þorskur og steinbít-
ur. Fáskrúðsfjörður: Hoffellið
landaði tvisvar í seinustu viku.
Annars vegar 106 tonnum eftir
viku túr og þar af var þorskur 72
tonn og ufsi 25 tonn. Hins vegar
landaði það 2. júní 45 tonnum
eftir 4 daga túr. Sex smábátar
lönduðu 20,2 tonnum og var afli
sæmilegur á línu en lélegur á færi.
Eskifjörður: 16-20 stiga hiti hefur
verið undanfarna viku á Eskifirði
en lítið sem ekkert verið róið. Sæ-
þór var með 842 kg, Dóra 384 kg,
Haffrúin 875 kg og Vöttur 5,1
tonn. Hólmatindur landaði 170
tonnum eftir 9 daga túr og var
þorskur þar af 130 tonn. Hólma-
nes landaði 30. maí eftir sjö daga
túr 84 tonnum og var þorskur tæp
60 tonn þar af. Höfn Góður hum-
arafli hefur verið á Höfn og eru
eftirtaldar tölur frá 19.-31. maí en
annar fiskur frá 25.-31 maí. Árný
1.2 tonn humar og 1,9 annar fisk-
ur, Áskell 2,4 humar, 3,1 annað,
Bjarni Gíslason 5,8 og 4,4 annað,
Erlingur 2,9 humar og 8,0 annað.
Freyr 5,7 og 5,0, Garðey 6,1 og
2,9, Haukafell 4,3 og 5,1 Heima-
berg 2,7 og 4,0, Hvanney 5,6 og
3,8, Lyngey 5,2 og 3,8, Sigurður
Ólafsson 5,7 og 3,2, Steinunn 5,2
og 4,7, Vísir 4,8 og 4,1, Þinganes
5,1 og 4,4, Æskan 5,6 og 1,8 og
Jón Bjarnason með 29 kg af
humri og 1013 kg af öðrum fiski
og Fagranesið landaði 2,6 tonnum
af blönduðum fiski. Á handfæri
voru Fáfnir með 1,8 tonn, Guðný
2,7, Kiðey 2,9, Máni 1,7 Elvar
2,6, Elín 1,9, Ingólfur 1,7 og Uggi
3,4 tonn. Allar tegundir voru
veiddar en mest af karfa, steinbít,
skötusel og smálúðu. Bakkafjörð-
ur: Ekki var hægt að fá uppgefnar
aflatölur frá Bakkafirði þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. Vopnafjörður:
Ljómandi gott veður hefur verið á
Vopnafirði og eru handfæraveiðar
að byrja, þó er þetta reytingur enn
og er það eingöngu þorskur sem
veiðist. Togarinn Brettingur land-
aði 29.maí 49 tonnum eftir 5 dag
túr og var þorskur þar af 42 tonn.
Eyvindur Vopni landaði 24 tonn-
um eftir sex daga og var þorskur
þar af 15 tonn. Neskaupsstaður:
Gott veður hefur verið á Nes-
kaupsstað og hefur veiðiskapur
gengið vel. Veitt hefur verið á línu
í net, dragnót og á færi og hafa all-
ir tiltækir bátar eða 41 verið á sjó
og fengu 104 tonn í seinustu viku.
í net hafa þeir fengið þorsk og
kola en á línu steinbít. 30.maí
landaði Bjartur 84,5 tonnum eftir
5 daga túr og var uppistaðan
þorskur eða 58 tonn. Stöðvar-
fjörður: Einmunablíða var á
Stöðvarfirði alla vikuna. 9 smá-
bátar veiddu samtals 9 tonn og
var það aðallega þorskur og stein-
bítur sem að landi kom. Kamba-
röstin landaði eftir sex daga 72
tonnum og var þorskur 58 tonn
þar af. Á Stöðvarfirði eru hand-
færaveiðar að byrja. Breiðdalsvík:
Hafnarey Iandaði 75,3 tonnum
30.maí eftir sex daga veiðitúr.
Aflinn var mjög góður og var
uppistaða aflans ýsa eða 40 tonn,
ufsi var 16 tonn. þorskur 10 tonn
og karfi 8 tonn. Fiskines var á
línuveiðum og veiddi 1395 kg og
aðallega steinbít. Djúpivogur:
Gott veður hefur verið á Djúpa-
vogi sem annrs staðar á Austfjörð-
um. Sunnutindur landaði 30.maí
85 tonnum eftir viku túr og var
uppistaðan þorskur og var hann
óvenjulega stór. Stjörnutindur
landaði 31.maí 23 tonnum af
frosinni rækju og fór 5,5 tonn á
Japansmarkað. Á humarveiðum
voru bátarnir Drífa og Akurey og
komu þeir með samanlagt 5,5
tonn. Humarinn var óvenju stór
og fallegur. Smærri bátar 20
stykki veiddu samanlagt 25 tonn
og var það aðallega þorskur.
Skipamálning
Innanhúsmálning
Utanhúsmálning
Plastbátamálning
Fúavamarefhi
X International skipamálning ísérflokki símh-iesso