Morgunblaðið - 14.07.2021, Síða 6
Annríki er þessa dagana á Reykja-
víkurflugvelli þegar einkaþotur af
ýmsum stærðum og gerðum lenda
þar, hver á fætur annarri. Viðdvöl
þeirra er mislöng, frá nokkrum
tímum upp í nokkra daga. Þegar
þessi mynd var tekin í vikunni var
erlend þyrla einnig á stæðinu, blá
að lit, hefur líklega verið í ferju-
flugi.
Í bakgrunni er Bombardier-vél
Icelandair að koma inn til lend-
ingar á flugvellinum.
Þoturnar
tíðir gestir á
Reykjavík-
urflugvelli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Esther Hallsdóttir
esther@mbl.is
Bergþór Ólason, þingmaður Mið-
flokksins, segist hafa áhyggjur af því
að kostnaður við verkefni Nýs Land-
spítala ohf. verði enn hærri en nú er
gert ráð fyrir.
Í frétt Morgunblaðsins í gær um
svör fjármála- og efnahagsráðherra
við fyrirspurn Bergþórs kom fram
að kostnaðaráætlanir um nýbygg-
ingar Landspítalans hefðu hækkað
um 16,3 milljarða frá árinu 2017.
Ástæðan er aukið umfang verkefn-
isins, meðal annars vegna stækkun-
ar meðferðakjarna spítalans.
Í svarinu segir einnig að undir-
búningur standi nú yfir að áætlana-
gerð fyrir verkefnið í heild sinni.
Vonir standi til að áætluninni verði
lokið seint á árinu 2022 en útilokað sé
að það verði fyrr því enn eigi eftir að
taka ákvarðanir um hvað af eldra
húsnæði spítalans verður nýtt og
hvaða breytingar þurfi að gera á því.
„Áhyggjur mínar eru að kostnað-
ur við verkefnið eins og það er muni
verða meiri en það lítur út fyrir
núna. Síðan held ég að menn séu að
horfa á verulegan kostnað umfram
það sem reiknað var með hvað varð-
ar lagfæringar á eldra húsnæðinu.
Það mun ekki fljóta upp fyrr en á
nýju kjörtímabili,“ segir Bergþór.
Hann segir óvissu verkefnisins
greinilega enn mikla og að brýnt sé
að stjórn Nýja Landspítalans og
stjórnvöld klári þær ákvarðanir og
greiningar sem þurfi að eiga sér stað
svo menn sjái til lands með heildar-
umfang verkefnisins.
„Það er ótrúleg staða að menn séu
núna, um mitt ár 2021, að velta því
fyrir sér hvaða húsnæði eigi að nota
af því sem eldra er og það þarfnast
auðvitað verulegra lagfæringa. Við
getum vísað þar í fréttir af myglu og
annað sem virðist vera grasserandi
allt um kring þarna,“ segir hann.
Þá sé ótækt fyrir þingið að breyt-
ingar á verkefninu séu að megin-
hluta að eiga sér stað með ógegnsæj-
um hætti innan opinbers hutafélags í
stað þess að eiga sér stað á þinginu.
Fyrirspurn Bergþórs var fyrst
lögð fram í janúar 2020 og tók því
eitt og hálft ár að fá svör.
Spurður hvort umfang verkefnis-
ins muni aukast, þegar búið verður
að taka ákvarðanir um nýtingu og
endurbætur á eldra húsnæði og
heildstæð áætlun liggur fyrir, segir
Gunnar Svavarsson, framkvæmda-
stjóri Nýs Landspítala, stefnumörk-
un stjórnvalda segja til um það.
„Nú er þegar búið að ákveða for-
sendur varðandi fyrri hluta upp-
byggingar við Hringbraut og bygg-
ingarreitir eru enn til staðar
varðandi frekari uppbyggingu. Það
mun væntanlega koma í ljós á næstu
árum hvort frekar verður byggt með
þeim krafti sem nú er,“ segir hann.
Stýrihópur á vegum heilbrigðis-
ráðuneytisins haldi utan um skipulag
framkvæmda á Landspítala í heild
sinni og muni vinna eftir þarfagrein-
ingu á þeirri þjónustu sem heilbrigð-
iskerfið á að veita í framtíðinni.
Þarfagreiningin muni segja til um
hvað þarf að gera í viðbót við nýjan
meðferðarkjarna og rannsóknahús
til að geta uppfyllt þá heilbrigðis-
þjónustu sem stefnt er að. Við þarfa-
greininguna sé meðal annars skoðað
hvaða hús eigi að byggja, hverjum á
að halda og hver henti ekki undir
starfsemi spítalans.
Bættu við starfsemiseiningum
Varðandi aukið umfang og kostn-
að verkefnisins frá árinu 2017 segir
Gunnar að eftir að nýtt hönnunar-
teymi kom að verkefninu árið 2016
hafi Landspítalinn farið í samstarf
við erlenda aðila í endurmat á ferlum
og flæði hússins.
Í framhaldinu hafi verið tekin
ákvörðun að bæta við fleiri starfsem-
iseiningum í húsið frá því sem var
áætlað 2010 og breyta gangakerfi
hússins og allri grunnuppbyggingu
til að mæta þeim kröfum sem flæði-
greiningin sýndi.
Óttast að kostnaður við
spítalann muni hækka
Morgunblaðið/Eggert
Landspítali Verktakar vinna nú að byggingu meðferðarkjarna nýs Land-
spítala, en myndin var tekin af grunninum í gær.
- Heildarkostnaðaráætlun fyrir verkefni Nýs Landspítala ohf. liggur ekki fyrir
Gunnar
Svavarsson
Bergþór
Ólason
Nýr Landspítali
ohf. hefur tekið
tilboði Háfells
ehf. í jarðvinnu á
rannsóknahúsi
sem er ein fjög-
urra nýbygginga
spítalans.
Tilboðið var
96,4 prósent af
kostnaðaráætlun
eða rúmar 164
milljónir. Í rannsóknahúsinu sam-
einast öll rannsóknastarfsemi spít-
alans á einn stað, svo sem meina-
fræði, rannsóknakjarni, klínísk
lífefnafræði og blóðmeinafræði,
sýkla- og veirufræði auk Blóðbank-
ans. Þar verður einnig líkhús,
krufning og aðstaða fyrir réttar-
meinafræði. Gert er ráð fyrir að
jarðvinna hefjist síðar í sumar og
að henni ljúki í upphafi árs 2022.
Fjórir hópar í forvali
Þá voru þátttökutilkynningar
opnaðar hjá Ríkiskaupum í gær í
forval vegna fullnaðarhönnunar á
húsi heilbrigðisvísindasviðs Há-
skóla Íslands á Hringbrautarsvæð-
inu, sem er hluti af uppbyggingu á
nýjum Landspítala. Nýbyggingin
verður um 6.600 fermetrar og gert
er ráð fyrir að öll starfsemi heil-
brigðisvísindasviðs flytjist þangað.
Fjórir hópar tilkynntu sig inn í
forvalinu en þeir eru leiddir af fyr-
irtækjunum Arkþing Nordic, Corp-
us3, Mannvit og Verkís.
NLSH og Háskóli Íslands fara nú
yfir tilkynningarnar og birta nið-
urstöðu um miðjan ágúst um hæfni
hópanna til að taka þátt í lokuðu út-
boði, sem gert er ráð fyrir að opni í
október.
Tóku til-
boði Há-
fells ehf.
Landspítali Byggt
á spítalalóðinni.