Morgunblaðið - 14.07.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Verbena
hinn fullkomni
sumarilmur
Á vegum Sam-
taka sveitarfé-
laga á Norður-
landi vestra er nú
hafin vinna við
nýtingu varma
frá gagnaverinu á
Blönduósi. Orku-
notkun þess er
um 40 MW. Verið
er loftkælt og
hitnar loftið í
rúmar 40°C. Loftinu er dælt beint út
úr húsunum ónotuðu.
Vilji er til að gera betur og nýlega
var María Dís Ólafsdóttir lífverk-
fræðingur ráðin í sumarstarf á veg-
um sveitarfélanna nyrðra til að sinna
glatvarmaverkefninu. Hún safnar
gögnum til greiningar á neyslu á
matvælum í landshlutanum og á
landsvísu. Hún mun jafnframt
greina neyslubundið kolefnisspor
matvæla úr ylrækt. Einnig mun hún
skoða hvað mögulegt er að framleiða
mikið að matvælum miðað við gefnar
forsendur um nýtanlegan glatvarma
frá gagnaverinu og hvað gæti verið
hagkvæmast að rækta.
Glatvarmaverkefmið er áherslu-
mál í Sóknaráætlunar Norðurlands
vestra og fékk styrk frá umhverf-
isráðuneytinu í vor. Er liður í virð-
isaukningu í héraði, bæta orkunýt-
ingu og lækka kolefnisspor.
„Við erum ánægð að fá Maríu Dís
til liðs við okkur í þetta spennandi
verkefni á Blönduósi og vonumst til
að geta nýtt niðurstöður til góðs,“
segir Magnús Jónsson hjá SSNV.
Greina glat-
varmann í
gagnaverinu
María Dís
Ólafsdóttir
Gagnaverið Ylinn verður að nýta.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Margrét, Þórhildur, Jóakim og
Henrik. Að fá sér pylsu í brauði er
nokkuð sem Íslendingar tengja
alltaf sterkt við Danaveldi og þegar
Baldur Rafnsson opnaði pylsuvagn-
inn Mæstró í Grundarfirði, kom
ekki annað til greina en nefna veit-
ingarnar sem á boðstólum eru eftir
fólki í dönsku konungsfjölskyld-
unni. Um þessar mundir eru tíu ár
síðan Baldur byrjaði að selja pyls-
ur og hann heldur upp á það nú
með því að selja valda rétti á því
verði sem gilti á upphafsárinu,
2011.
Alfreð í Amalíuborg
„Vel kryddaðar pylsur, með
bræddum osti, eru alltaf vinsælar
hér á bæ,“ segir Baldur. „Meðal
fjölmargra Íslendinga tilheyrir að
fá sér pylsu í vagni við Strikið í
Kaupmannahöfn. Mér fannst alveg
blasa við að tengja veitingarnar
hér við dönsku hirðina og fylgifiska
hennar. Þar eru ýmsir tíndir til,
hér fást til dæmis vel kryddaðar
pylsur sem kallast Alfreð, sem
nefndar eru eftir þekktum þjóni í
Amalíuborg.“
Vorið 2011 fengu þeir Baldur
Rafnsson og Gústav Alex Gúst-
avsson fengu þá hugmynd að opna
pylsuvagn í Grundarfirði, hvað þeir
og gerðu. „Svona vagn er heilmikil
græja og að koma rekstri af stað
var svolítil fyrirhöfn, en bara
skemmtilegt. Pylsurnar seldust
eins og enginn væri morgundag-
urinn. Gústav sneri sér fljótlega að
öðru svo ég og Inga Rut Ólafs-
dóttir, konan mín, tókum alfarið við
keflinu. Sjálfur segi ég að pylsusala
sé skemmtilegt sumarstarf,“ segir
Baldur sem er tónlistarkennari á
slagverk og málmblásturshljóðfæri
að aðalstarfi. Þau Inga Rut og
dóttir þeirra búa nú í Mosfellsbæ
en eru áfram viðloðandi Grundar-
fjörð – sumar sem vetur.
Skemmtileg samskipti
Vertíðin í Mæstró hófst í lok maí
og stendur til loka ágústmánaðar.
Pylsur með ýmsu meðlæti í 12-13
útfærslum fást í vagninum, alls
konar salöt og nýjasta nýtt eru
kaloríuléttar heilsuvefjur, sem
mælast vel fyrir. „Ferðamenn
stoppa mikið hjá okkur og við höf-
um eignast fjölda tryggra við-
skiptavina. Fjölskylda suður í
Kópavogi hefur til dæmis sem fast-
an lið að fara í pylsutúr á Snæfells-
nesið alltaf einu sinni á sumri og
fleiri sögur í svipuðum dúr mætti
tína til,“ segir Baldur.
„Svo flykkjast útlendingarnir
líka hingað. Sumarið 2019 komu
hingað í Grundarfjarðarhöfn alls 53
skemmtiferðaskip með þúsundum
farþega sem ófáir komu í pylsur.
Því hefur verið í nógu að snúast
hér í vagninum góða – starfi þar
sem samskipti við gott og
skemmtilegt fólk eru aðalatriðið.“
Pylsur dönsku
hirðarinnar
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Pylsusali Baldur Rafnsson og með honum, frá vinstri, Margrét Helga Guðmundsdóttir og Íris Birta Heiðarsdóttir.
Matur Pylsur standa alltaf fyrir sínu og seðja svangan maga vel.
- Góðgæti í Grundarfirði - Mæstró
í tíu ár - Bestar með bræddum osti