Morgunblaðið - 14.07.2021, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.07.2021, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021 _ Rui Patrício, landsliðsmarkvörður Portúgals í knattspyrnu, er farinn frá enska liðinu Wolves eftir að hafa leikið með því 112 leiki í úrvalsdeildinni á undanförnum þremur árum. Hann er genginn til liðs við Roma á Ítalíu. Í staðinn er landi hans José Sa á leið til Wolves frá grísku meisturunum Olym- piacos þar sem hann hefur verið aðal- markvörður með Ögmund Kristinsson sem varamarkvörð. Ögmundur fær samt áfram harða samkeppni því Olympiacos hefur í staðinn fyrir Sa samið við Tomás Vaclík, landsliðs- markvörð Tékka, sem kemur til félags- ins án greiðslu frá Sevilla á Spáni. _ Enski knattspyrnumaðurinn Jadon Sancho mætti í gær í læknisskoðun hjá Manchester United. Hann mun á allra næstu dögum verða staðfestur sem leikmaður félagsins. Sancho kem- ur til United frá Dortmund í Þýskalandi fyrir 73 milljónir punda. Hann hefur skorað 50 mörk í 137 leikjum með Dortmund þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall. Leikmaðurinn mun skrifa undir fimm ára samning við United og fá treyju númer sjö. Sancho hefur leik- ið 20 landsleiki fyrir Englands hönd og skorað í þeim þrjú mörk. _ Karlalið Fjölnis í knattspyrnu sem leikur í 1. deild hefur fengið til sín víð- förlan sóknarmann. Það er Englend- ingurinn Michael Bakare sem síðast spilaði með Hereford í F-deildinni en hann hefur leikið með 24 liðum á ferl- inum, nær öllum í ensku utandeilda- keppninni. Hann var þó í þrjú ár með einu besta liði Wales, Connah’s Quay Nomads, í úrvalsdeildinni þar í landi og skoraði þá 30 mörk í 81 leik. _ Fimm leikmenn í úrvalsdeildarliðum karla og kvenna í fótbolta voru í gær úrskurðaðir í eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda og missa þar með af næstu leikjum sinna liða. Í úr- valsdeild karla eru þetta Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, Daníel Finns Matthíasson, kantmaður Leikn- is úr Reykjavík, og Davíð Snær Jó- hannsson, miðjumaður Keflvíkinga. Til viðbótar fer Hlynur Helgi Arngríms- son, aðstoðarþjálfari Leiknis úr Reykjavík, í eins leiks bann vegna brottvísunar í leik liðsins gegn ÍA í fyrrakvöld. _ Í úrvalsdeild kvenna eru það Del- aney Baie Pridham, bandaríski fram- herjinn hjá ÍBV, og Loena Baumann, svissneski bakvörðurinn hjá Þrótti, sem missa af einum leik hvor. _ Svissneski tennisleikarinn Roger Federer verður ekki með á Ólympíu- leikunum í Tókýó vegna hnémeiðsla en leikarnir hefjast síðar í mánuðinum. Federer staðfesti tíðindin á Twitter í gær. Federer, sem er 39 ára, hefur unnið 20 risamót á ferlinum og er af flestum talinn einn besti tennisleikari allra tíma. Svisslendingurinn varð ól- ympíumeistari í tvíliðaleik á leikunum í Peking árið 2008 með Stan Wawrinka og fékk hann silfur í einliðaleik eft- ir tap fyrir Andy Murray í úrslit- um 2012 í Lond- on. Eitt ogannað Rúnar Már Sigurjónsson og sam- herjar hans í rúmenska meistara- liðinu CFR Cluj eru komnir í aðra umferð Meistaradeildar karla í fót- bolta eftir framlengdan leik gegn Borac Banja Luka. Þeir töpuðu 2:1 en unnu einvígið 4:3 samanlagt. Alexandru Chipciu var hetja CFR þegar hann minnkaði muninn í 2:1 þegar tvær mínútur voru eftir af framlengingu. Rúnar lék allar 120 mínúturnar. CFR vann því einvígið 4:3 samanlagt og mætir meistara- liði Gíbraltar, Lincoln Red Imps, í annarri umferð. Rúnar áfram með CFR Cluj Ljósmynd/CFR Cluj Cluj Rúnar Már Sigurjónsson spilar næst með CFR á Gíbraltar. Jökull Andrésson, knattspyrnu- markvörður hjá enska B-deild- arfélaginu Reading, er líklega á leið til C-deildarliðsins Morecambe. Reading tilkynnti í gær að Jökull væri farinn til æfinga hjá More- cambe og hefði verið gefið leyfi til að spila tvo æfingaleiki. Jökull, sem er 19 ára gamall, lék tvo leiki sem lánsmaður með Morecambe í D- deildinni síðasta vetur. Hann var hins vegar stærstan hluta þess tímabils í láni hjá Exeter í sömu deild, lék 31 leik og vakti athygli fyrir frammistöðu sína. Jökull í C-deild- inni í vetur? Morgunblaðið/Eggert England Jökull Andrésson fer til nýliða í ensku C-deildinni. MEISTARADEILD Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Valsmenn færast yfir í Sambands- deild Evrópu í knattspyrnu eftir að hafa tapað öðru sinni fyrir króat- ísku meisturunum Dinamo Zagreb, 0:2, í seinni leik liðanna á Hlíðar- enda í gærkvöld. Dinamo, með sex leikmenn í sín- um hópi sem léku með þremur landsliðum á EM í sumar, vann ein- vígið 5:2 samanlagt og mætir Om- onia Nikósía frá Kýpur í annarri umferð Meistaradeildar Evrópu. Valsmenn fara hinsvegar í aðra umferð Sambandsdeildarinnar og mæta þar liðinu sem tapar einvígi Bodö/Glimt frá Noregi og Legia Varsjá frá Póllandi. Seinni leikur þeirra fer fram í Póllandi í kvöld, Legia vann fyrri leikinn í Noregi 3:2 og því eru mestar líkur á því að það verði Alfons Sampsted og sam- herjar hans í norska meistaraliðinu Bodö/Glimt sem mæta á Hlíðarenda í annnarri umferðinni þar sem leikið verður fimmtudagana 22. og 29. júlí. Óheppnir að jafna ekki Valsmenn sköpuðu sér þó nokkur ágætis marktækifæri í leiknum í gærkvöld og voru óheppnir að jafna ekki metin í síðari hálfleiknum. Bakvörðurinn Johannes Vall komst í fínt færi vinstra megin í víta- teignum en skaut framhjá markinu. Á frábærum kafla Valsliðsins um miðjan síðari hálfleik voru Kristinn Freyr Sigurðsson, Guðmundur Andri Tryggvason og Christian Köhler allir nálægt því að skora beint úr aukaspyrnu. Luka Ivanusec skoraði fyrra mark Dinamo eftir hálftíma leik og rétt fyrir leikslok var það Mislav Orsic sem skoraði eftir skyndisókn og gulltryggði króatískan sigur. _ Markaskorararnir Ivanusec og Orsic voru báðir í liði Króatíu á EM, sem og framherjinn Bruno Petkovic. Fyrirliðinn Arijan Ademi lék á EM með Norður-Makedóníu, landi hans úr sama landsliði Stefan Ristovski var á bekknum allan tím- ann og Mario Gavranovic, lands- liðsmaður Sviss sem lék á EM, spil- aði síðustu 20 mínúturnar með Dinamo. „Valur varðist heilt yfir vel í gær- kvöldi og náði að skapa sér fín færi sem á öðrum degi hefðu endað með mörkum. Birkir Heimisson er að komast betur og betur inn í Vals- liðið og hann var besti leikmaður liðsins í gærkvöldi. Hannes Þór Halldórsson varði nokkrum sinnum vel. Þá kom Andri Adolphsson með kraft inn í liðið er hann kom inn á sem varamaður hálftíma fyrir leiks- lok,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórs- son m.a. í grein um leikinn á mbl.is. Lið Vals: (4-3-3) Mark: Hannes Þór Halldórsson. Vörn: Birkir Már Sævarsson, Sebastian Hedlund, Rasmus Christiansen, Johannes Björn Vall. Miðja: Kristinn Freyr Sigurðsson, Christian Köhler (Haukur Páll Sigurðsson 80), Birkir Heimisson (Almarr Ormarsson 80). Sókn: Guðmundur Andri Tryggva- son (Arnór Smárason 83), Sverrir Páll Hjaltested (Patrick Pedersen 62), Sigurður Egill Lárusson (Andri Adolphsson 62). Góð frammistaða og næst Noregur eða Pólland - Valsmenn stóðu vel í Dinamo Zagreb en töpuðu að lokum 0:2 á Hlíðarenda Morgunblaðið/Unnur Karen Hlíðarendi Patrick Pedersen, framherji Vals, horfir á Danijel Zagorac verja úr dauðafæri í síðari hálfleiknum. Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir tók risastökk á heimslistanum í kvennaflokki sem gefinn var út í gær eftir frábæra frammistöðu á Armanco Team Series-golfmótinu í London um síðustu helgi. Guðrún hafnaði þar í tólfta sæti og fyrir vikið stekkur hún upp um hvorki meira né minna en 209 sæti á listan- um. Hún var í 878. sæti í síðustu viku en er nú í 669. sæti. Áður hafði hún best náð 868. sæti listans í árslok 2019. Valdís Þóra Jónsdóttir er enn á listanum þótt hún sé hætt keppni og er núna í 701. sæti. Ólafía Þórunn Krist- insdóttir hefur verið í fríi undanfarna mánuði vegna barneigna og er í 1.122. sæti eins og staðan er núna. Ólafía hefur komist lengst íslenskra kvenna á listanum en hún var um tíma í 170. sæti á árinu 2017. Valdís komst hæst í 313. sæti. Lexi Thompson frá Bandaríkjunum sem varð jöfn Guðrúnu í 12. sætinu í London var í níunda sæti fyrir mótið en seig niður í ellefta sæti. Nelly Korda frá Bandaríkjunum er áfram í efsta sæti og næstar koma Jin Young Ko, In Bee Park, Sei Young Kim og Hyo-Joo Kim, allar frá Suður-Kóreu. Flaug upp um 209 sæti Guðrún Brá Björgvinsdóttir Lionel Messi vann á dögunum Ameríkubikarinn í knatt- spyrnu, Copa America, í fyrsta skipti með landsliði Arg- entínu þegar það sigraði Brasilíu í úrslitaleik, 1:0. Hann var jafnframt besti leikmaður keppninnar í nánast öllum mögulegum tölfræðiþáttum. Messi varð annar tveggja markahæstu leikmanna keppninnar með fjögur mörk og átti þátt í langflestum mörkum, eða níu af þeim tólf sem Argentínumenn skor- uðu í keppninni. Hann átti flestar stoðsendingar, fimm talsins, skoraði tvisvar úr aukaspyrnu sem enginn annar lék eftir, átti flestar stungusendingar (níu), skapaði flest marktæki- færi (21), átti flestar sendingar á síðasta þriðjungi (133), átti flest markskot (28) og hitti oftast á markið (11 sinnum). Til samanburðar þá dreifðist sama tölfræði á ellefu mismunandi leik- menn í Evrópukeppninni sem fram fór á sama tíma. Eini tölfræðiþátturinn þar sem einhver Evrópubúi skákaði Messi var sendingar á síðasta þriðj- ungi þar sem hinn kornungi Pedri átti 177 slíkar fyrir Spánverja. Messi var bestur í öllu Lionel Messi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.