Morgunblaðið - 14.07.2021, Síða 1
ERFITT AÐ SKAFFAVÖRUROPEC ÁTÍMAMÓTUM
Banfi kann að skapa alvörukenndan Brunello. 8
Klofningur gæti verið í vændum
enda kunna olíuframleiðsluríki að
vera í kapphlaupi við tímann. 10
VIÐSKIPTA
11
Dagný Guðmundsdóttir hjá Ólafi Gíslasyni & Co.
segir erlenda framleiðendur eiga fullt í fangi með að
útvega nauðsynlegan varning.
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021
Vilja 390 íbúðir við flugvöllinn
Lóðarhafar á Hlíðarenda hafa lagt fram um-
sókn til skipulagsfulltrúa í Reykjavík um leyfi
til að byggja 350-390 íbúðir í stað atvinnu-
húsnæðis, sem átti að vera alls 35 þúsund m2.
Um er að ræða reiti G og H vestan við íbúða-
reiti C-F sem eru langt komnir í byggingu.
Félagið S8 áformaði 400-450 herbergja hótel
á H-reit, eða í Haukahlíð 2, sem hefði orðið það
stærsta í herbergjum talið á landinu.
Ótímabært að ræða framhaldið
Jóhann Halldórsson, framkvæmdastjóri S8
ehf., stýrði undirbúningi vegna uppbyggingar
hótelsins. Hann sagði í samtali við Viðskipta-
Moggann að málið væri í vinnslu. Því væri
ótímabært að ræða framhaldið að svo stöddu.
Eignasjóður borgarinnar á G-reitinn.
ASK arkitektar lögðu fram umsóknina fyrir
hönd eigenda reitanna. Heimilt var að byggja
17.500 fermetra á hvorum reit á 3-4 hæðum,
auk tveggja hæða bílakjallara. Gert var ráð
fyrir 175 bílastæðum á hvorum reit.
Þess í stað er óskað eftir leyfi til að byggja
allt að 195 íbúðir á hvorum reit, alls 390 íbúðir.
Miðað við markaðsverð í hverfinu gæti lóðar-
verð á hverja íbúð verið 10 milljónir og það
skilað lóðarhöfum 3-4 milljörðum króna.
Ekki sótt um atvinnuhúsnæði á jarðhæð
Ekki er gert ráð fyrir atvinnuhúsnæði á
jarðhæð á reitum G og H en kröfur voru um
það á reitum B-F. Þá skuli vera inngarðar ofan
á bílageymslum, líkt og á reitum C-F.
Á reitum C-F verða um 670 íbúðir og á reit
B eru 40 íbúðir, alls um 710 íbúðir. Verði
byggðar 390 íbúðir á reitum G og H eykst
framboð nýrra íbúða á svæðinu því um ríflega
50%. Rætt var um að 70 íbúðir færu í almenna
sölu á A-reit en að 100 til 150 íbúðir yrðu litlar
leiguíbúðir og námsmannaíbúðir. Alls gætu því
risið 1.200 til 1.300 íbúðir á reitum A-H á
Hlíðarenda.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eigendur tveggja reita á Hlíðar-
enda hafa sótt um leyfi til að breyta
landnotkun úr atvinnu- í íbúðar-
húsnæði með allt að 390 íbúðum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reitur H er við Hringbraut en reitur G snýr til suðurs. Byggðin mun færast nær flugbrautinni.
Gunnar Hákonarson, framkvæmda-
stjóri Kolaportsins, segir Hafnar-
þorpið munu samanstanda af Kola-
portinu, nýju markaðs- og viðburða-
torgi og endurgerðum matar-
markaði. Þá verði matartorg með
fjölbreyttu úrvali á veitingastað og
svið fyrir hvers kyns viðburði.
Söluborðin á markaðstorginu
verða færanleg og þannig myndast
rými fyrir hvers kyns viðburði. Þá
meðal annars veislur, brúðkaup og
Iceland Airwaves-tónleikahátíðina.
Með þessum breytingum á að
auka fjölbreytni í verslun í Hafnar-
þorpinu og styrkja það í sessi sem
viðkomustað í borgarlífinu.
Meðal fjölsóttustu staða
Gunnar segir tekið mið af mark-
aðstorgum erlendis sem séu meðal
vinsælustu áfangastaða. Þar megi
nefna til dæmis hinn fjölsótta Time
Out-markað í Lissabon.
Gunnar hefur fengið fjárfesta í lið
með sér í þessu verkefni.
Meðal þeirra eru hjónin Krist-
björg Jónasdóttir og Aron Einar
Gunnarsson, fyrirliði karlalandsliðs-
ins í knattspyrnu, en þau hafa m.a.
fjárfest í hótelrekstri og húðvörum
undir merkjum AK Pure Skin.
Opinn fyrir fjárfestingu
Aron Einar segist í samtali við
ViðskiptaMoggann ekki útiloka
frekari fjárfestingu í miðborginni.
„Við ætlum að byrja á þessu. Svo
sjáum við hvað gerist í framhaldinu,
en sem stendur einbeitum við okkur
að þessu verkefni,“ segir
Aron um Hafnarþorpið.
Kolaportið verður hluti af Hafnarþorpinu
Morgunblaðið/Unnur Karen
Gunnar Hákonarson segir horft til
vinsælla markaðstorga erlendis.
Á næstu misserum mun
Kolaportið taka miklum
breytingum og það verða
hluti af Hafnarþorpinu.
6
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Betri fjármál
Bókhald | Laun | Ráðgjöf | virtus.is
EUR/ISK
14.1.'21 13.7.'21
160
155
150
145
140
135
156,45
146,35
Úrvalsvísitalan
3.300
3.100
2.900
2.700
2.500
2.300
14.1.'21 13.7.'21
2.632,94
3.285,38