Morgunblaðið - 14.07.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.07.2021, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021FRÉTTIR ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri RAFORKUFRAMLEIÐSLA Önnur tveggja túrbína Reykjanes- virkjunar, sem bilaði í lok maímán- aðar, er komin aftur í gagnið. Þetta staðfestir Jóhann Snorri Sigur- bergsson, forstöðumaður viðskipta- þróunar hjá HS Orku. Líkt og greint var frá í byrjun júní neyddust starfsmenn fyrirtækisins til þess að stöðva túrbínuna í kjölfar þess að vart varð við óeðlilegan titring í vél- búnaðinum. Lá raforkuframleiðsla með túrbínunni niðri frá 31. maí til 20. júní en þá hafði starfsmönnum fyrirtækisins tekist að gera við bún- aðinn. Að sögn Jóhanns Snorra kom í ljós að bilunin tengdist hverfilhjóli túrbínunnar. Spurður út í tjón HS Orku vegna bilunarinnar segir Jó- hann Snorri að tafir vegna minni raforkusölu séu þó nokkrar, „en í stóra samhenginu vel viðráðanlegt þar sem stoppið var jafn stutt og raun bar vitni.“ Bendir hann einnig á að heppilegt hafi verið að bilunin hafi komið upp í upphafi sumars þegar eftirspurn er með minnsta móti. Hann segir ekki liggja fyrir hver viðgerðarkostnaður sé á þessari stundu. Segir hann að kostnaðurinn sé hins vegar í lágmarki vegna þess hversu hratt og vel starfsfólk HS Orku hafi gengið til verks. ses@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Benedikt Alvarleg bilun kom upp í annarri tveggja túrbína Reykjanesvirkjunar. Túrbínan komin á fullan snúning á ný Í ár er stærstur hluti nýskráðra bif- reiða knúinn áfram með rafmagni að öllu eða einhverju leyti. Af því leiðir að eigendahópur rafbíla verður stærri og hleðslustöðva er þörf í fleiri húsbyggingum, þ. á m. fjöl- býlishúsum. Með nýrri lagabreytingu um fjöl- eignarhús var ætlunin að liðka fyrir rafbílavæðingu í fjölbýlishúsum. Þannig geta rafbílaeigendur knúið húsfélagið til að gera kostnaðar- áætlun varðandi uppbyggingu hleðslustöðva og ákveða í framhald- inu hvaða ráða eigi að grípa til. Slík- ar framkvæmdir hlaupa oft á millj- ónum króna svo aðrir félagar í húsfélaginu kunna að telja sig hlunnfarna við að borga hluta í hleðslustöð nágranna sinna. Hleðslustöð auki virði íbúða Bjarni Gnýr Hjarðar, sérfræð- ingur hjá Eignaumsjón, segir hleðslustöð gulls ígildi fyrir íbúða- eigendur, hvort sem hún er sameig- inleg eða einkastöð og segir þær auka virði íbúðanna á fast- eignamarkaðinum. Fjárfestingin muni borga sig margfalt til baka enda hleðslustöð aðdráttarafl fyrir kaupendur. Reykjavíkurborg og Orkuveitan gerðu með sér samkomulag í apríl 2019 um að styrkja húsfélög fjöl- eignarhúsa við uppsetningu hleðslu- stöðva. 40 milljónir króna renna ár- lega í sjóðinn og þegar hafa 49 húsfélög sótt um styrk og 31 fengið greitt. Í þessum 49 fjöleignarhúsum sem sótt hafa um eru alls 1.846 íbúð- ir. Styrkja framkvæmdir í fjölbýlum Styrktarfjárhæðin nemur að há- marki 1,5 milljónum króna og meðalkostnaður hvers verkefnis hljóðar upp á 2,5 milljónir króna að meðaltali með virðisaukaskatti. Hægt er að fá virðisaukaskattinn af hleðslustöðv- unum sjálfum endurgreiddan. Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri á skrifstofu um- hverfisgæða hjá Reykjavík- urborg, segir að- sóknina vera mikla miðað við það að sjóðurinn hafi hvergi verið auglýstur. 80% Reykvíkinga búi í fjölbýlishúsum og því sé um að ræða mikilvægt skref í orkuskiptunum. Guðmundur segir stóran hluta kostnaðar í mörgum framkvæmdum fela í sér stækkun eða lagningu nýrrar heimtaugar, sérstaklega í eldri húsum. Hann segir það geta reynst flöskuháls fyrir fjöleignar- húsin, bæði hvað varðar kostnað og mögulega bið eftir heimtaug í fram- tíðinni. Stækkun lagna betri kostur Jóhannes Þorleiksson, forstöðu- maður rafveitna hjá Orkuveitu Reykjavíkur, telur betra að stækka núverandi lagnir í stað þess að fjár- festa í nýjum heimtaugum. Snjallar hleðslulausnir dragi verulega úr þörf á stækkun þar sem heimtaugin nýtist betur. Bjarni Gnýr er annarrar skoð- unar: „Gömlu fjölbýlishúsin eru ein- faldlega ekki hönnuð til þess að hlaða rafbíla. Það er nánast alltaf skynsamlegt að fá sér nýja heim- taug, þessar byggingar eru bara ekki með heimtaug til hleðslu raf- bíla.“ Hann sér fram á heim- taugaskort á næstu árum ef rafbíla- væðingin heldur áfram á sömu braut. Jóhannes hjá OR hefur ekki áhyggjur af slíkum skorti: „Veitur fylgjast með afhendingartíma heim- lagna og munu bregðast við ef hann verður óeðlilega langur. Oftast dugir að stækka heimtaugar og hleðslu- lausnir með álagsstýringu draga verulega úr þörf á stækkun heim- tauga. Fjölmargir aðilar ofmeta gríðarlega hleðsluþörf vegna raf- bíla.“ Vill varast offjárfestingu Jóhannes er frekar á því að raf- bílavæðingin muni leiða til offjár- festingar og hærri verðlagningar. „Stofnkerfi rafmagnsdreifikerfis er öflugt og ræður við talsverða álags- aukningu. Veitur telja að aukin raf- bílavæðing og orkuskipti almennt muni leiða til lægri gjaldskráa ef innviðir eru nýttir vel og ekki offjár- fest í þeim,“ segir Jóhannes. Fyrirsjáanlegur skortur á heimtaugum Baldur S. Blöndal baldurb@mbl.is Flest eldri fjöleignarhús eru ekki byggð með hleðslu rafbíla í huga og því þarf í mörgum tilfellum að leggja nýjar, eða stækka eldri heimtaugar ásamt því að setja upp álagsstýringar- kerfi. 4% 47,8 11,0 6,3 3,31,7 Fjöldi íbúða í fjölbýli árið 2021 Styrkir vegna rafhleðslubúnaðar við fjöleignarhús í Reykjavík Mosfellssveit Garðabær Hafnarfjörður Kópavogur Reykjavík 1.846 íbúðir eru í þeim 49 húsfélögum sem hafa sótt um styrk Alls eru um 47.750 íbúðir í fjölbýli í Reykjavík 49 31 49 húsfélög hafa sótt um styrk 31 styrkur hefur verið afgreiddur Heildarfjöldi íbúða samkvæmt Þjóðskrá 4.342 6.631 10.543 14.739 56.179 Þar af í fjölbýli 40% 50% 60% 75% 85% Þúsundir 40 milljón kr. árlega eru í sjóði til styrktar uppsetningu hleðslubúnaðar fyrir rafbíla við fjöleignarhús Reykjavíkurborg leggur til 20 m.kr. árlega og Orkuveita Reykjavíkur (OR) 20 m.kr. Meðalkostnaður verkefna er um 2,49 milljónir kr. Hámarks styrkupphæð er 1,5 m.kr. en þó aldrei meira en sem nemur 67% af heildarkostnaði verksins 67% 33% Jóhannes Þorleiksson Bjarni Gnýr Hjarðar Guðmundur B. Friðriksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.