Morgunblaðið - 14.07.2021, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021 11FRÉTTIR
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT
Í nýju starfi hefur Dagný rekið
sig á ýmis eftirköst kórónuveiru-
faraldursins. Ekki hjálpar að hið
opinbera leggur óþarflega þung-
ar byrðar á smáfyrirtækin.
Hverjar eru helstu
áskoranirnar í rekstrinum
þessi misserin?
Helstu áskoranir í dag eru að
fá vörur til landsins. Framleið-
endur eru í vanda með hráefni,
flutningur er dýrari og tekur
lengri tíma. Við seljum búnað til
slökkviliðanna og mikilvægt að
þau hafi þann búnað sem þau
þurfa.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
sem þú sóttir?
Síðasti fyrirlestur sem ég sótti
var um öryggi og nýjungar á
björgunarbúnaði. Þar var fyrir-
tækið Holmaton að kenna og
kynna nýjungar í klippibúnaði til
að klippa bíla: mjög öflugar
græjur til að ná fólki út úr bíl-
flökum á sem skemmstum tíma.
Það eru miklar tækniframfarir í
þessum bransa og mikilvægt að
fylgjast vel með til að geta miðl-
að til þeirra sem vinna við björg-
un.
Hvert væri draumastarfið
ef þú þyrftir að finna
þér nýjan starfa?
Það er erfitt að segja. Ég er í
mjög spennandi starfi í dag sem
ég er nýlega byrjuð í. Fyrir
framkvæmdastjóra í félagi skipt-
ir máli að hafa öfluga stjórn og
teymi sem er samstillt.
Hvaða hugsuður hefur haft
mest áhrif á hvernig þú starfar?
Þeir eru svo margir, en ætli
Dale Carnegie hafi ekki haft
mest áhrif á mig. Ég hef til-
einkað mér hans hugmyndafræði
í gegnum árin.
Hvernig heldurðu þekkingu
þinni við?
Ég hlusta á bækur, sit fyrir-
lestra og sæki þjálfun. Ég þjálfa
söluráðgjafa fyrir Dale Carnegie
og til að viðhalda þjálfunarrétt-
indum þar þarf ég reglulega að
sækja þjálfun og afla mér þekk-
ingar á nýjustu straumum og
stefnum í sölufræðum. Þar fæ ég
líka mikinn innblástur frá þátt-
takendum.
Hugsarðu vel um líkamann?
Það gefur mér mikla orku að
byrja daginn í ræktinni. Ég hjóla
líka, spila golf og nýt þess að
vera úti í náttúrunni með hund-
inum mínum.
Hvað myndirðu læra ef
þú fengir að bæta við
þig nýrri gráðu?
Sennilega mundi ég bæta við
mig að læra verða slökkviliðs-
maður ef ég væri tuttugu árum
yngri
Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?
Verandi í innflutningi þá hefur
maður alltaf áhyggjur af gengis-
þróuninni en þessi kórónuveiru-
mál hafa haft mikil áhrif á frakt-
málin og auðvitað efnahaginn í
heildina. Ríkissjóður hefur safn-
að miklum skuldum síðustu mán-
uði og þær þarf að greiða til
baka. Ég vona að stjórnmálin
taki skynsamlegar ákvarðandi
eftir kosningar í haust.
Hvaða lögum myndirðu
breyta ef þú værir
einráð í einn dag?
Ég myndi halda áfram að ein-
falda skattkerfið og regluverkið í
kringum fyrirtækjarekstur. Rík-
ið setur miklar kvaðir á smáfyr-
irtæki eins og okkar sem býr til
mikinn kostnað sem fer auðvitað
á endanum út í verðlagið.
SVIPMYND Dagný Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & Co, Eldvarnamiðstöðvarinnar og Rafborgar
Áskorun að fá
nauðsynlegar
vörur til landsins
Morgunblaðið/Eggert
Dagný myndi vilja einfalda skattkerfið og regluverkið í kringum fyrirtækjarekstur, öllum til hagsbóta.
NÁM: Hóf nám í hjúkrun við Háskóla Íslands en skipti síðar yfir í
viðskiptafræði hjá VT.
STÖRF: Vörustjóri hjá Opnum kerfum, þá forstöðumaður fyrir-
tækjasviðs hjá Vodafone. Framkvæmdastjóri Cintamani og síðar
framkvæmdastjóri Iceland Travel Assistance. Framkvæmdastjóri
Ólafs Gíslasonar & Co, Eldvarnamiðstöðvarinnar og Rafborgar frá
2020.
ÁHUGAMÁL: Hjól, golf og útivera
FJÖLSKYLDUHAGIR: Makinn heitir Jón Jósafat Björnsson og
dæturnar eru tvær: Aníta Ýr Strange og Sara Jósafatsdóttir.
HIN HLIÐIN
TÆKNIVÖRUR
Skakkiturn ehf. sem er umboðsaðili
Apple á Íslandi skilaði 366 milljóna
hagnaði í fyrra og jókst hann um ríf-
lega 100 milljónir milli ára. Vörusala
jókst mikið eða um tæpar 1.100
milljónir og nam tæpum sex millj-
örðum. Vörusala jókst um tæpan
milljarð. Laun og launatengd gjöld
lækkuðu milli ára um tæpar 12 millj-
ónir.
Eignir Skakkaturnsins námu 1,8
milljörðum í árslok og eigið fé fé-
lagsins stóð í 982,7 milljónum króna.
Eigandi félagsins er Guðni Rafn Ei-
ríksson. Ekki er gerð tillaga um arð-
greiðslu út úr félaginu vegna liðins
rekstrarárs.
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Vörur Apple njóta mikilla vinsælda.
Apple skil-
ar góðu búi
Allt um
sjávarútveg