Fiskifréttir - 27.11.1987, Blaðsíða 3
föstudagur 27. nóvember
3
róðrum. Tvær togaralandanir voru
í vikunni; Haraldur Böðvarsson
landaði 16. nóvember 112 tn og var
karfi uppistaðan í aflanum 53 tn og
þorskur 38 tn. Skipaskagi landaði
20. nóvember um 50 tn. Rif:
Heildarafli vikunnar var 133,6 tn
sem fékst í 35 róðrum. Eftirtaldir
línubátar lönduðu þrisvar sinnum í
vikunni: Rifsnes 34,2 tn, Tjaldur
27,2 tn, Hamar 25,1 tn, Stapavík 7
tn og Esjar 5,2 tn. Jói á Nesi fór í
fimm róðra og landaði hann 10,2 tn
samtals. Hamrasvanur var í klöss-
un í Reykjavík en hann fer á línu
næstu daga. Ólafsvík: Heildarafli
vikunnar var 111 tn sem er með
minna móti. Eftirtaldir dragnóta-
bátar lönduðu fjórum sinnum í
vikunni: Hugborg 3,4 tn og Lómur
4.4 tn. í þrjá róðra fóru: Sigurvík
5.4 tn, Auðbjörg II 1,4 tn, Svein-
björn Jakobsson 6 tn, Tindur 1,7 tn
og Friðrik Bergmann 5 tn. Matt-
hildur landaði tvisvar sinnum sam-
tals 2,1 tn. Eftirtaldir línubátar
lönduðu einu sinni í vikunni: Sig-
urbára 1,1 tn og Sæunn 1,2 tn.
Valdimar Kristinn landaði tvisvar
samtals 4,4 tn, Fróði sem fór í þrjá
róðra landaði 12,7 tn og í fimm
róðra fóru: Garðar II 19,6 tn og
Gunnar Bjarnason 21 tn. Tólf trill-
ur á línu lönduðu átján sinnum í
vikunni og fengu þær samtals 21,7
tn. Togarinn Jökull landaði 23. nó-
vember, þ.e. á mánudaginn í þess-
ari viku 50 tn. Grundarfjörður:
Togarinn Runólfur landaði 16. nó-
vember eftir tíu daga túr 106 tn.
Þar af setti hann 14 tn í gám en 92
tn fóru til vinnslu í landi. Af því
sem fór í gáminn var um helmingur
þorskur og helmingur karfi og ufsi
en það sem fór til vinnslu í landi
var þorskur. Krossnesið landaði
22. nóvember 47 tn og var þorskur
uppistaðan eða 20 tn, ufsi 15 tn, ýsa
4 tn og karfi 2,5 tn. Sjö skelbátar
lönduðu í vikunni og fóru eftirtald-
ir í fjórar sjóferðir: Skipanes 26 tn,
Farsæll 26 tn og Haukabergið 24,3
tn. í þrjár sjóferðir fóru eftirtaldir:
Grundfirðingur 15,9 tn, Grund-
firðingur II 17,1 tn og Fanney 16,9
tn. Sóley landaði tvisvar sinnum
samtals 11,3 tn. Stykkishólmur:
Skelbátarnir komust allir fimm
sinnum út í vikunni og fengu ágæt-
an afla: Arnar 21,5 tn, Árni 22 tn,
Gísli Gunnarsson 20,3 tn, Hrímnir
33,9 tn, Jón Freyr 43,3 tn, Sigurð-
ur Sveinsson 35,9 tn, Anna 26 tn,
Sigurvon 25,4 tn, Smári 25,3 tn og
Örn 25,1 tn.
Vestfirðir
Patreksfjörður: Togarinn Sigurey
landaði 16. nóvember eftir tíu daga
útivist. Aflinn var 81.5 tn og þar af
var þorskur 70.0 tn. Þrír línubátar
lönduðu í liðinni viku, Egill kom
með 5.0 tn eftir tvær sjóferðir, Pat-
rekur komst ekki í nema eina sjó-
ferð vegna bilunar og var afli hans
6.4 tn. Vestri fór í þrjár sjóferðir
og kom með 27.9 tn að landi.
Tálknafjörður: Togarinn Tálkn-
firðingur kom að landi 17. nóvem-
ber eftir að hafa verið tvo daga á
veiðum. Aflinn var samtals 29.8
tn, mest megnis þorskur. Línubát-
urinn María Júlía landaði fimm
sinnum í vikunni og var aflinn 28.8
tn af slægðum fiski. Bíldudalur:
Veiðar innfjarðarrækju ganga vel
frá Bíldudal og eru bátarnir yfir-
leitt um þrjá daga að fiska upp í
vikukvóta sinn. Þessir bátar; Pilot,
Þröstur, Pétur Þór, Jörundur,
Elías, Ýmir, Dröfn, Trausti og
Höfrungur náðu vikukvótanum
sem er 4.0 tn. Ingólfur var eini bát-
urinn sem ekki náði öllu sínu, hann
kom með 2.4 tn að landi. Togarinn
Sölvi Bjarnason kom að landi 17.
nóvember og var hann með 60.0 tn
eftir fimm daga og var aflinn að
mestu leyti þorskur. Þingeyri: tog-
ararnir Sléttanes og Framnes lönd-
uðu báðir í liðinni viku. Sléttanes
kom inn 16. nóvember eftir að hafa
verið 5 daga á veiðum. Af aflanum
voru 10 tn af þorski og 12 tn af
karfa. Framnes kom inn 17. nó-
vember, eftir sex daga á veiðum og
var aflinn 49.5 tn, mest megnis
þorskur. Minni bátar komust ekk-
ert á sjó í liðinni viku vegna brælu.
Flateyri: Togarinn Gyllir landaði
tvisvar í vikunni. Hann kom inn 17.
nóvember með 52.5 tn og aftur 22.
nóvember með 30.0 tn. I aflanum
sáust flestar tegundir, þorskur,
ýsa, karfi, ufsi og grálúða. Allur
afli beggja veiðiferðanna fór til
vinnslu í landi. Línubátarnir Jón-
ína og Sif fóru í tvo róðra hvor
bátur og var afli hvors báts um 7.0
tn. Suðureyri: Togarinn Elín
Þorbjarnardóttir landaði 37.5 tn
11. nóvember. Aflinn var blandað-
ur, mest var af karfa. Tveir línu-
bátar Sigurvon og Ingólfur Magn-
ússon róa frá Suðureyri en ekki
tókst að fá afla þeirra í liðinni viku.
Þess má hinsvegar geta að þrjár
fyrstu vikur mánaðarins kom Sig-
urvon með samtals 93.0 tn að landi
og Ingólfur Magnússon 30.0 tn.
Bolungarvík: Togarinn Dagrún
landaði 16. nóvember eftir að hafa
verið viku á veiðum. Aflinn var
80.0 tn og uppistaða hans, eða um
70.0 tn var þorskur. Aflinn fór all-
ur til vinnslu í landi. Af öðrum tog-
urum er það að segja að Sólrún var
á Rækjuveiðum alla vikuna og
Heiðrún er ennþá í slipp. Afli línu-
báta var í meðallagi í vikunni. Þeir
stærri voru með þetta 6 til 8 tn í
róðri en þeir minni 2 til 4 tn. Flosi
var aflahæstur línubáta og Hall-
dóra Jónsdóttir kom þar næst á eft-
ir. Fjórir rækjubátar lönduðu
fimm sinnum í vikunni, þeir voru;
Páll helgi sem kom með 4.2 tn, Óli
3.2 tn, Bryndís 3.2 tn og Sædís 2.9
tn. Tveir rækjubátar réru þrisvar
sinnum í vikunni, þeir voru Haf-
björg með 2.6 tn og Draumur með
1.0 tn. ísafjörður: Þessir togarar
lönduðu í vikunni; Guðbjartur
kom inn 19. nóvember með 53.0 tn
af þorski sem fór allur til vinnslu í
landi. Júlíus landaði 16. nóvember
eftir að hafa verið sex daga á veið-
um. Aflinn var að lang mestu leiti
þorskur og fyllti hann þrjá gáma,
auk þess sem 31.5 tn fóru til vinnslu
í landi. Arnarnes fyllti einnig þrjá
gáma í vikunni og landaði að auki
40.0 tn til vinnslu í landi. Guðbjörg
landaði 17. nóvember. Upp úr
henni komu 44.0 tn sem fóru til
vinnslu í landi og þrír gámar.
Ógæftir komu að miklu leyti í veg
fyrir veiðar línubáta í vikunni,
Orri, Víkingur III og Guðný fengu
um 6.0 tn í róðri hver bátur og fóru
í þrjá róðra í vikunni. Þessir rækju-
bátar lönduðu fimm sinnum í vik-
unni.; Dóri 4.3 tn, Kolbrún 3.6 tn
og Hafrún II 3.6 tn. Tveir rækju-
bátar lönduðu fjórum sinnum;
Gissur hvíti kom með 3.9 tn og
Sæbjörn 1.6 tn. Kristín Jónsdóttir
fór í þrjá róðra og landaði 2.1 tn.
Ekki tókst að afla frétta af öðrum
rækjubátum sem lönduðu á Isa-
firði. Súðavík: Togarinn Haffari
kom að landi 16. nóvember eftir að
hafa verið þrjá sólarhringa á veið-
um. Aflinn var 44.5 tn, auk þess
sem Haffari fyllti einn gám. Aflinn
var mest megnis þorskur. Togar-
inn Bessi var í siglingu en er nú
farinn til veiða að nýju. Þrír rækju-
bátar róa frá Súðavík, Valur,
Hafrún og Sigrún. Bátarnir náðu
allir vikuskammtinum sínum, sem
er 6.0 tn fyrir hvern bát. Hólmavík:
Tveir línubátar lönduðu í liðinni
viku. Ingibjörg kom með 2.8 tn
eftir fimm sjóferðir og Sæbjörg
25.8 tn, einnig eftir fimm sjóferðir.
Þessir rækjubátar lönduðu í vik-
unni, allir eftir þ>rjár sjóferðir;
Donna 4.5 tn, Ásbjörg 4.4 tn,
Hilmir 4.0 tn og Sigurbjörg 4.4 tn.
Drangsnes: Tveir línubátar lögðu
afla sinn upp á Drangsnesi í liðinni
viku. Sundhani kom með 8.6 tn
eftir þrjár sjóferðir og Draupnir
2.0 tn efir eina sjóferð. Þessir
rækjubátar komu með afla að
landi; Gunnvör 5.6 tn efir fjórar
sjóferðir, Gunnhildur 4.2 eftir
þrjár sjóferðir og Örvar 4.2 tn,
einnig eftir þrjár sjóferðir.
Norðurland
Hvammstangi: Lélegar gæftirsetja
svip sinn á aflann sem kom að landi
á Hvammstanga í liðinni viku.
Geisli kom með 7.0 tn af djúpsjáv-
arrækju eftir fimm daga veiðiferð.
Dagbjört og Neisti voru á innfjarð-
arrækju og fór hvor bátur í sex
róðra og heildarafli þeirra var um
20.0 tn og skiptist hann nokkuð
jafnt milli bátanna. Blönduós:
Sæbjörg fór sína síðustu róðra eftir
hörpuskel í vikunni. Róðrarnir
voru tveir og aflinn samtals 7.3 tn.
Sæbjörg hefur þegar hafið rækju-
veiðar. Gissur hvíti landaði einu
sinni í vikunni, hann kom með 8.3
tn af úthafsrækju og Nökkvi kom
inn 21. nóvember með 35.0 tn af
frosinni rækju. 15 tn voru fryst til
vinnslu í landi, 20 tn fryst á markað
í Japan. Skagaströnd: Tveir togar-
ar lönduðu í síðustu viku. Örvar
kom að landi 18. nóvember og var
hann með 150 tn af frystum afurð-
um eftir 21 dag á veiðum. Af aflan-
um voru 90.0 tn af flökum, þorski
og ýsu, afgangurinn var að mestu
heilfryst grálúða. Línubáturinn
Arnarborg landaði þrisvar sinnum
í vikunni og var afli hans samtals
15.0tn. Þessirbátarlönduðurækju
þrisvar sinnum í vikunni; Auð-
björg 2.6 tn, Hafrún 5.3 tn og
Ólafur Magnússon 7.5 tn. Helga
Björg landaði tvisvar sinnum,
samtals 2.6 tn. Sauðárkrókur:
Togarinn Drangey er í slipp en
tveir togarar lönduðu í vikunni,
Hegranes landaði 17. nóvember
eftir að hafa verið sex daga á veið-
um, aflinn var 91.6 tn, aðallega
þorskur. Skapti kom einnig inn 17.
nóvember, eftir að hafa verið þrjá
daga á veiðum .og var afli hans 38.8
tn, mest megnis þorskur. Röst var
eini rækjubáturinn sem lagði upp
afla á Sauðárkróki í vikunni, hún
kom með 13.0 tn af rækju sem
fengust á djúpslóð. Siglufjörður:
„Aflinn sem hingað kom var frek-
ar rýr,“ sagði heimildamaður
Fiskifrétta og átti þá sérstaklega
við afla togaranna. Stapavík land-
aði 17. nóvember eftir 10 daga
veiðiferð. Aflinn var 55.4 tn. Þar
af var grálúða 11.0 tn og afgangur-
inn að mestu þorskur. Verðmæti
aflans var 1.6 milljón. Stálvík kom
inn 19. nóvember eftir sex daga á
veiðum og aflinn var samtals 42.5
tn og verðmæti hans 1.3 milljón.
Tveir bátar lönduðu úthafsrækju í
vikunni, Þorlákur helgi kom með
2.8 tn eftir eina sjóferð og Dröfn
kom með 10.5 tn, einnig eftir eina
sjóferð. Ólafsfjörður: Togarinn
Ólafur Bekkur sigldi að landi 16.
nóvember eftir að hafa verið 16.
daga á veiðum. Aflinn var samtals
58.3 tn, aðallega þorskur. Sólberg
kom að landi 17. nóvember eftir
viku veiðiferð. Aflinn var 75.5 tn,
mest megnis þorskur. Frystitogar-
inn Mánaberg kom einnig að landi
17. nóvember eftir 26 daga útivist.
Hann kom að landi með 150 tn af
frystum afurðum, frystum flökum
og heilfrystri grálúðu. Togarinn
Sigurbjörg var á veiðum í vikunni
og Snæbjörg í slipp í Stykkishómi.
Iíalvík: Togarinn Dalborg landaði
84.0 tn 15. nóvember og fóru tæp-
lega 43 tn til vinnslu í landi, af-
gangurinn fyllti þrjá gáma. Uppi-
staða aflans var þorskur, um 65 tn.
Baldur landaði 18. nóvember og
var afli hans fluttur út í þremur og
hálfum gámi. Trollbáturinn Sænes
landaði einu sinni í vikunni og var
aflinn 8.4 tn. Þessir bátar komu
með rækju að landi, allir eftir eina
sjóferð; Bliki 14.2 tn, Eyborg 14.2
tn og Sólfell 13.8 tn. Árskógssan-
dur: Óvenju lítill afli barst að landi
á Árskógssandi í vikunni. Arnþór
er ennþá á síld og illa hefur gengið
með ufsanetin hjá Hafbjörginni.
Særúnu hefur hinsvegar gengið
ágætlega á línunni, hún fór í þrjá
róðra og kom samtals með 22.0 tn
að landi í liðinni viku. Akureyri :
Fjórir togarar Útgerðarfélags Ak-
ureyringa lönduðu í vikunni.
Fyrstur kom að landi Harðbakur.
Hann kom 16. nóvember eftir að
hafa verið 10 daga á veiðum. Afl-
inn var 155.0 tn. Þar af var karfi
53.0 tn, ufsi 41.0 tn, þorskur 28.0
tn og grálúða 25.0 tn. Heildar
verðmæti aflans var 2.8 milljónir.
Kaldbakur kom 18. nóvember með
92.0 tn eftir 9 daga veiðiferð. Afl-
inn var blandaður, 45.0 tn af ufsa,
24.0tnafþorski.l4.0tnaf karfa og
4.5 tn af grálúðu. Verðmæti aflans
var 1.7 milljón. Hrímbakur kom
inn 19. nóvember eftir viku veiði-
ferð. Aflinn var 64.0 tn, nær ein-
göngu þorskur og verðmæti aflans
var 1.8 milljón. Frystitogarinn
Sléttbakur kom inn 21. nóvember
eftir aðeins viku útivist í sinni
fyrstu veiðiferð eftir breytingar.
Aflinn var á milli 20 og 30 tn. Eng-
in löndun var hjá Samherja í lið-
inni viku. Grenivík: Þær eru í rýr-
ara lagi aflafréttirnar frá Grenivík
fyrir síðustu viku. Tveir línubátar
lönduðu í vikunni, Sjöfn landaði
tvisvar, samtals 16.5 tn og Núpur
kom með 26.7 tn úr einni veiði-
ferð. Lítið gaf á sjó fyrir smábáta í
vikunni, samtals náðu þeir 4.8 tn
úr sjó. Hrísey: Línubáturinn Svani
kom samtals með 34.0 tn eftir sex
sjóferðir. Togarinn Sunnutindur
landaði í Hrísey 19. nóvember og
var hann með 95.0 tn, nær ein-
göngu þorsk. Allur aflinn að ein-
um gámi undanskildum fór til
vinnslu í landi. Grímsey: „Þetta er
búið að vera dapurt haust hjá okk-
ur og varla hefur verið friður fyrir
færabáta á undanförnum vikum
enda eru þeir flestir komnir á
land,“ sagði heimildamaður Fiski-
frétta í Grímsey. Alls komu 11.0 tn
að landi í eyjunni í síðustu viku.
Línubáturinn Björn kom með lang
mestan hluta þess afla eða 6.0 tn
eftir fimm sjóferðir. Netabáturinn
Bjargey fór í þrjá róðra í vikunni
og fékk 150 til 200 kg í róðri. Húsa-
vík: Alls komu 155.1 tn að landi á
Húsavík í liðinni viku, að rækjunni
meðtalinni. Togarinn Kolbeinsey
kom inn 20. nóvember eftir sex
daga veiðiferð og var aflinn sam-
tals 38.2 tn. Línubáturinn Fanney
kom með 14.3 tn eftir fimm sjó-
ferðir. Tveir línubátar lönduðu
fjórum sinnum í vikunni, Siglunes
landaði 13.7 tn og Skálaberg 19.4
tn. Tveir dragnótabátar lönduðu í
vikunni, Kristbjörg landaði 1.3 tn
eftir tvær sjóferðir og Sæborg 12.3
tn eftir sex sjóferðir. Lítið gaf fyrir
smábátar í liðinni viku en þeir
komu samtals með 14.8 tn. Þessir
rækjubátar komu með afla að
landi í vikunni. Stakkanes kom
með 17.4 tn af rækju og 1.0 tn af
bolfiski, Galti kom með 17.2 tn af
rækj uogl.OtnafbolfiskiogÞrym-
ur kom með 10.0 tn af rækju og 3.3
tn af bolfiski. Þórshöfn: Þessir
Fiskmarkaður Suðurnesja hf.
Fitjabraut 24 - Ytri-Njarðvík
Seljabót 2 - Grindavík
Uppboð daglega kl. 15.00
Hringið og leitið upplýsinga
það borgar sig
Síminn er: 92-14785
í Grindavík 92-68524
jVrnes&