Fiskifréttir


Fiskifréttir - 27.11.1987, Blaðsíða 9

Fiskifréttir - 27.11.1987, Blaðsíða 9
föstudagur 27. nóvember 9 Fréttir_____________________________________________________ Austfjarðaskipin selja fyrir 123 m.kr. á tæpum mánuði Ekkert lát er á löndunum fiskiskipa frá Austfjöröum í Bretlandi. Vegna síldarsöltunar á Austfjörðum, hafa skipin verið látin sigla og Fiskifréttum telst til að á tæpum mánuði hafi Aust- fjarðaskipin, aðallega togararnir, selt um 1800 tonn af þorski í Bretlandi fyrir rúmar 123 milljónir króna. Meðalverð samkvæmt þessu er um 68.50 kr. fyrir kílóið en aflinn er að uppistöðu þorsk- ur. Frá því 18. nóvember til 24. nóvem- ber, seldu alls níu fiskiskip afla í Grims- by og Hull og þar af voru sjö frá Aust- fjörðum. Reyndar var þá Otto Wathne á leiðinni en skipið átti að selja afla í Bretlandi í gær. Þeir sem selt hafa afla að undanförnu eru: Barði 18. nóv. í Grimsby, alls 113 tonn fyrir 7.7 millj. króna. Meðalverð var 68.61 en uppistaða aflans var þorsk- ur og einnig var með nokkuð af ýsu. Sama dag seldi Gullver 122.5 tonn í Hull fyrir 8.2 millj. króna. Meðalverð var 66.85 kr. á kíló en uppistaða aflans var þorskur. 19. nóvember seldi Þór- hallur Daníelsson í Grimsby, 92 tonn fyrir 6.5 millj. króna. Meðalverð á kíló var 69.85 kr. Sama dag seldi Kambaröst í Hull, 113 tonn fyrir 7.8 millj. króna og var meðalverð á kíló, 69.56 kr. Loks má Síðustu tunnurnar Nú á aðeins eftir að salta í nokkur þúsund tunnur upp í samninga við Sovétmenn og fyrir innanlandsmarkað. Sl. þriðjudagsmorgun var heildarsölt- unin á vertíðinni orðin tæpar 230 þús- und tunnur. Þá átti eftir að salta í um 14 þúsund tunnur upp í staðfesta samninga við Sovétmenn og eftir var að salta í um 4 þúsund tunnur fyrir innanlandsmark- aðinn. Miðað við hina góðu veiði sem verið hefur að undanförnu, er allt eins líklegt að verið sé að salta í síðustu tunn- urnar er þetta blað berst lesendum. Samkvæmt upplýsingum frá Síldar- útvegsnefnd, var staðan í söltuninni sem hér segir sl. þriðjudagsmorgun: Húsavík 46 tunnur, Vopnafjörður 11049, Borgarfjörður eystri 2066, Seyð- isfjörður 21779, Neskaupsstaður 4456, Eskifjörður 39388, Reyðarfjörður 22866, Fáskrúðsfjörður 21561, Stöðvar- fjörður 5408, Breiðdalsvík 6497, Djúpi- vorgur 8228, Höfn 27383, Vestmanna- eyjar9708, Þorlákshöfn 10267, Grinda- vfk 25672, Keflavík 2508, Hafnarfjörður 969, Reykjavík 1440, Akranes 8603. — Samtals 229.894 tunnur. Hæstu söltunarstöðvar voru þá Pól- arsíld á Fáskrúðsfirði með 16955 tunn- ur, Fiskimjölsverksmiðja Hornafjarðar með 15979 tunnur og Strandarsíld á Seyðisfirði með 11005 tunnur. Ferskfisksölur: Austfjarðaskipin hafa selt fyrir 123 millj. kr. á tæpum mánuði Súlan EA skiptir um eigendur Súlan EA skiptir um eigendur Loðnuskipið Súlan EA hefur verið selt Krossanesverksmiðjunni við Eyjafjörð. Að sögn Geirs Zoega, framkvæmdastjóra í Krossanesi er sá fyrirvari á kaupunum að stjórn verksmiðjunnar, svo og bæjar- stjórn og bæjarráð Akureyrar, leggi blessun sína yfir kaupin. Að sögn Geirs Zoega hafa lengi verið uppi vangaveltur innan verksmiðjunnar að eignast eigin skip. Geir sagði að ekkert eitt hefði orðið þess valdandi að ráðist væri í þessi kaup nú en því væri þó ekki að leyna að nú væri unnið ötullega að uppbyggingu á fram- leiðslu á fiskafóðri og ekki væri verra að geta haft einhverja stjórn á hráefnisöfluninni. Utgerð eins skips eins og Súlunnar myndi þó aldrei skipta sköpum varðandi heildar hráefnisöflun fyrir verk- smiðjuna. Kaupverð skipsins var 160 millj. króna. Lágmarksverð á ný Lágmarksverðið á fiski, sem Verðlagsráð sjávarútvegsins ákv- að nú í vikunni, eftir að „frjálsa tímabilinu" lauk, er einna líkast því sem er í Vestfjarðasamkomu- laginu, að því er Hólmgeir Jónsson framkvæmdastjóri Sjómannasam- bands íslands tjáði Fiskifréttum. Það er þó frábrugðið að því leyti, að verð fyrir 5 kg þorsk er ekki eins hátt og á Vestfjörðum, millistærðin af karfa er einnig lægri en stærsti karfinn hærri. Að sögn Hólmgeirs er nýja lágmarksverðið lægra en á Fáskrúðsfirði og sömu- leiðis lægra en á Húsavík, Ólafs- firði og Siglufirði, en annars staðar á landinu er það svipað eða hærra en áður gildandi „frjálst“ verð. Samkvæmt ákvörðun Verðlags- ráðs er verð á helstu tegundum eft- irfarandi án kassauppbótar (í sviga með kassauppbót): 2 kg þorskur 28,56 kr. (31,42), 5 kg þorskur 38,34 (42,17); 2 kg ýsa 36,96 (4o,66); ufsi 70 cm og yfir 21,19 (23,31), ufsi að 70 cm 13,37 (14,71); karfi 1000 gr og yfir 18,04 (19,84), karfi 800-1000 gr 15,27 (16,80) og karfi 500-800 gr 12,87 (14,16). TÆKNIÞJÓNUSTA U SklPDHÓIihlilO Póathólf 202 210 Garóabn S. 01-651700 geta þess að Sigurfari VE seldi samdæg- urs í Hull, 42 tonn fyrir 2.9 millj. króna. Meðalverð var 68.81 kr. Loks seldi Álftafell í Hull 20. nóv., 92 tonn fyrir 6.3 millj. kr. ogvarmeðalverð 68.83 kr. I byrjun þessarar viku seldi svo Freyr SFí Hull, 52 tonn fyrir 3.7 millj. króna. Meðalverð 70.08 kr. Þá seldi Náttfari 93.5 tonn f Grimsby fyrir 6.7 millj. króna, meðalverð 71.11 kr. en Náttfari var með svipaða aflasamsetningu og hin skipin, þ.e. þorsk og ýsu en auk þess smávegis af kola. Loks seldi Vöttur SU í Hull, sl. þriðjudag, 89 tonn fyrir 6.7 millj. króna. Meðalverð á kt'ló var mjög gott eða 75.22 kr. Gptt verð hjá Viðey I Þýskalandi fékk Viðey mjög gott verð fyrir afla sem seldur var í Brem- erhaven sl. mánudag og þriðjudag. Alls seldi Viðey 213.5 tonn, mest karfa, fyrir tæpar 14 millj. króna. Meðalverð var 65.50 kr. á kíló. Von var á Snorra Sturlusyni með afla sem selja átti á mið- vikudag og fimmtudag. I sl. viku voru seld 835 tonn af fiski frá Islandi úr gámum í Bretlandi. Fyrir þetta magn fengust 55 millj. króna eða að jafnaði 66 kr. fyrir kílóið. Alls voru seld 422 tonn af þorski og var meðal- verðið 63.51 kr; 160 tonn af ýsu fyrir 70.82 kr; 119 tonn af kola fyrir 71.98 kr. og 68 tonn af grálúðu fyrir 63.79 kr. kílóið. Sl. mánudag var meðalverðið mun hærra eða 74.80 kr. fyrir kílóið, en þá voru seld 436 tonn af fiski fyrir 32.6 millj. króna. Þar af voru 245 tonn af þorski á 69.85 kr; 75 tonn af ýsu á 80.05 kr. og 91 tonn af kola á 85.34 kr. hvert kíló. 90 krónur fyrir kílóið af Steinbít! BARKI HF. Nýbýlavegi 22, Kópavogi Sími 4 64 99 ORBIT VÖKVAMÓTORAR Frá White hydraulics U.S.A. Eigum á lager margar gerðir á mjög hagstæðu verði. Sami öxull flangs og tengingar og á öðrum Orbit mótorum. HYDRAULICS, INC.

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.