Fiskifréttir


Fiskifréttir - 09.10.1992, Side 1

Fiskifréttir - 09.10.1992, Side 1
ISSN 1017-3609 SKAGFJÖRÐ VEIÐARFÆRADEILD Sími 91-24120 FRETTIR 37. tbl. 10. árg. föstudagur 9. október 1992 LÍNA • ÁBÓT • BEITA Hrungnir GK: Taka upp netín í mokveiði — vegna verð- falis á ufsa — Það er blóðugt að þurfa að taka upp netin í mokafla en við erum tilneyddir. Verðið á ufsanum hefur verið í kringum 40 krónur fyrir kflóið hér heima, sem er of lágt verð, og það skilar engu betri af- komu að selja í Þýskalandi miðað við það verð sem þar fæst nú fyrir ufsann, sagði Páll Pálsson, útgerð- armaður Hrungnis GK, í samtali við Fiskifréttir en víða hefur feng- ist mjög góður ufsaafli að undan- förnu. Að sögn Páls hefur Hrungnir GK fengið um 350 tonn af ufsa á skömmum tíma. Hrungnir GK var með 50 tonn af ufsa á laugardag og þrátt fyrir 60 tonna afla í vitjun sl. þriðjudag voru netin tekin upp. Páll sagði Hrungnir GK með ágæt- an ufsakvóta en rétt væri að hætta veiðinni í bili og sjá hvort verðið rétti ekki úr kútnum. Þess má geta að Hrungnir GK átti bókaða sölu í Þýskalandi á dögunum en við hana var hætt vegna þess hve lágt ufsa- verðið hefur verið. — Það er nánast sama hvar bor- ið er niður á erlendum mörkuðum. Verðið er alls staðar í lágmarki. Við höfum sett aflann af línuskip- unum í gáma og flutt hann á mark- að í Bretlandi. Nú er pundið hins vegar alveg að fara með okkur og að öllu óbreyttu þá er tilgangslaust að flytja út fisk á Bretlandsmark- að. Við bregðumst við þessari þró- un með því að veiða fyrir aðra og fá kvóta á móti, tonn á móti tonni, sagði Páll Pálsson en hann gat þess að 20 tonn af 40 tonna afla Sighvats GK, sem landað var sl. miðviku- dag, færi til Fiskiðjunnar á Sauðár- króki á þessum kjörum. ÚA stærst áríð 1991 Útgerðarfélag Akureyringa hf. var með mesta veltu íslenskra sjávarútvegsfyrir- tækja á árinu 1991 eða 3.145 milljónir króna, samkvæmt samantekt Frjálsvar verslunar. ÚA var einnig með flest starfsfólk eða sem svarar 455 ársverkum og greiddi einn milljarð króna í laun. Næststærsta fyrirtækið var Grandi með 2.629 milljóna króna veltu og Haraldur Böðvarsson og co. hf. var í þriðja sæti með 2.032 milljóna króna veltu. Sjá nánar bls. 6 Þeir þrífast vel þorskarnir, sem Birgir Albertsson og Ingimar Jónsson hafa alið í búrum úti á Stöðvarfirði í sumar. Alls eru þetta tvö tonn af fiski. Nánar segir frá þessari nýstárlegu tilraun á bls. 6-7. (Mynd: Björn Björnsson). Hæst meðallaun hjá útgerð Júlíusar Geirmundssonar ÍS: 6,6 millj. króna fyrír ársverkið Gunnvör hf., sem gerir út frysti- togarann Júlíus Geirmundsson IS, greiddi hæst meðallaun á landinu á árinu 1991 eða 6 milljónir 567 þús- und krónur fyrir ársverkið. Hrönn hf., útgerðarfélag Guðbjargar ÍS, er í öðru sæti og greiddi 6,4 millj- ónir fyrir ársverkið. Þriðji er svo Samherji hf. með 6 milljónir 365 þús. kr. í meðallaun. Þetta eru niðurstöður árlegrar samantektar tímaritins Frjálsrar verslunar. Útgerðir eru í 37 efstu sætunum á lista yfir þau fyrirtæki á landinu sem hæst meðallaun greiddu á síðasta ári. Taka ber skýrt fram í sambandi við laun hjá útgerðarfyrirtækjum, að þegar tal- að er um ársverk er ekki átt við að einn sjómaður hafi borið tiltekin laun úr býtum nema hann hafi far- ið í allar veiðiferðirnar sem ekki tíðkast sem kunnugt er. I fjórða sæti á þessum lista er Ljósavík hf., útgerð rækjufrysti- skipsins Gissurs ÁR, með meðal- laun upp á 5 milljónir 936 þús. kr. Fimmti í röðinni er Hilmir hf., sem gerir út samnefnt loðnu- og rækju- frystiskip, með 5 millj. 815 þús. kr. að meðatali fyrir ársverkið. I sjötta sæti er Þinganes hf. á Hornafirði með 5 millj. 613 þús. kr. meðallaun en það gerir út samnefnt humar- veiðiskip. Sjöundi er Skipaklettur hf. á Reyðarfirði, sem gerir út frystitogarann Snæfugl SU, með 5 millj. 328 þús. kr. meðallaun fyrir ársverk. Áttundi er Skagstrend- ingur hf. (Örvar HU og Arnar HU) sem greiddi meðallaun upp á 5 milljónir 179 þús. kr. fyrir árs- verkið. Sjá nánar á töflu bls. 7 SIAL-matvælasýningin: íslenskir furðufiskar i París Aflakaupabankinn hefur verið beðinn um að útvega ýmsar teg- undir óvenjulegra fiska hér við land til þess að hægt verði að sýna þá á SIAL matvælasýningunni sem hefst í París 24. október nk. Það er Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda (SÍF) sem hefur lagt þessa óvenjulegu pöntun inn hjá aflakaupabankanum. Að sögn Halldórs Þorsteins- sonar, forstöðumanns aflaka- upabankans, hyggst SÍF sýna þessa furðufiska ferska á ís og meðal tegunda, sem áhugi er á að Trjónufiskur. sýna í París, eru t.d. trjónufiskur, snarphali, slétthali, gjölnir, lang- hali og geirnyt. Þessar tegundir eru ekki algengar í afla íslenskra báta en þeir slæðast oft með sem aukaafli í troll og þá oftast á grá- lúðuveiðum eða öðrum veiði- skap á miklu dýpi. Geirnytin hef- ur reyndar nokkra sérstöðu því þá tegund er hægt að veiða í dragnót á mun .minna dýpi en flest- ar hinna. SKIPAÞJÓNUSTA Fma Olíufélagið hf

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.