Fiskifréttir - 09.10.1992, Síða 6
6
FISKIFRÉTTIR föstudagur 9. október 1992
FISKIFRÉ1TIR föstudagur 7. október 1992
7
Sjávarútvegsfyrirtæki 1991
Útgerðarfélag
Akureyringa
með mesta veltu
— og elnnig með flest ársverk
Útgerðarfélag Akureyringa hf. var
stærsta útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtækið á landinu á síðasta ári,
hvort sem miðað er við veltu eða
starfsmannafjölda, samkvæmt
samantekt tímaritsins Frjálsrar
verslunar, sem birt er í nýjasta töl-
ublaði þess. Velta ÚA nam rúmum
3,1 milljörðum króna á árinu 1991
en var tæplega 2,6 milljarðar
króna á árinu 1990.
I sams konar úttekt fyrir árið
1990 var Grandi hf. með mesta
veltu sjávarútvegsfyrirtækja eða
liðlega 2,8 milljarða króna en velt-
an árið 1991 var rúmir 2,6 milljarð-
ar. Síldarvinnslan hf. í Neskaup-
stað hafði flest starfsfólk í vinnu
árið 1990 eða sem svaraði 400 árs-
störfum en á árinu 1991 var ÚA
með fleira fólk eða sem nam 455
ársstörfum.
Á meðfylgjandi töflu er stærstu
fyrirtækjunum raðað eftir veltu
þeirra á árinu 1991.
Stærstu sjá varútvegsfyrírtækin ’91
Veftat niillj. króna Meðal- fjöldi starfsm. n,in laun í mil|j. krnna Mcital- laun í hús. króna
1. Útgerðarfélag Akureyringa h.f. 3144.8 455 1IMHI.3 2198
2. Grandi hf. 2628.8 411 912.0 2219
3. Har. Böðvarsson & Co. h.f. 2032.2 300 639.1 2130
4. Síldarvinnslait hf. 1976.3 360 601.2 1670
S. Samherji h.f. 1661.4 150 560.1 3734
6. Sjólastiklin h.f. Hafnarf. 1414.9 125 481.0 3848
7. Hraðfrystistöö Vestm. hf. 1258.4 368.0 •
8. Einar Guðfmassnn hf. 1176.4 132 332.4 2511
9. Hraðfrystibás Fáskrtlðsfj. M. 1129.4 136 272.5 2004
1Ö. Miðnes hf. 1092.9 157 353.7 2253
11. Þorbjöm h.f. 1052.0 93 323.7 3481
12. Fiskiðjusamlag Húsavíkur 1049.6 130 201.0 1546
13. Hraðfrystihús Eskifjarðsfr b.f. 11133.5 ; .265.:..; 328,8 1241
14. Norðurtangi h.f. 1028.0 200 299.0 1495
15. Fiskanes h.f. 1021.3 ||!!!!!!l!!l!l 272.(1
16. Fiskmiðiun Norðurlands 1021.0 4 10.2 2550
17. Frosti h.f.-Áiftfirðingur h.f. 994.8 105 220.9 2104
18. Gunnarstindtir hf. 905.3 160 234.3 1464
19. þormóður Kammi h.f. 888.2 200 237.0 1185
20. btgimundur h.f. 852.3 62 100.7 3221
21. Giettingur h.f. 847.8 127 254.1 2001
22. Skagstrendingur hf. 804 0 60 310.8 5179
23. Skcrseyri hf.. fiskverkun 795.0 50 84.7 1694
24. Sæberg hf, útgerð 771,2 75 266 6 3555
25. Hvalurh.f. 750.0 49 225.0 4592
26. Hraöfrystistöð Þorvhafuur h.f. 749.8 89 205.2 2306
27. MeitiIUnn h.f. 723.2 112 195.0 1741
28. Stálskip h.f. 714.0 43 208.6 4852
29. Bulandstindur h.f. 654.2 90 165.3 1836
30. Samland 652.4 10 12.2 1217
31. Tangi h.f. 646.6 95 131.4 1383
32. ísfélag Vestmannaeyja h.f. 632.8 !!!§!§!!!!!!! 100.7 ♦
33. Hafominn h.f. 619.8 90 149.4 1660
34. VfeirhX 615.0 : 67 ■ 136 2 2033
35. Sigurður Agustssoo bf. 606.0 85 156.6 1842
36. íshúsfélag Isfirðingá h.f. - 603.0 100 110.5 1195
37. Bergur-Huginn sf. 601.3 68 234.0 3422
38. Oddi hf - Patrekur hf. 580.4 106 161.4 1523
39. Sæhamar hf.. útgerð 579.0 30 78.5 2617
40. Fiskvinnslan á Bfldudat h.f. 5603) 94 167.6 1783
41. Hraöfrystihús Stokkseyrar 563.7 90 178.5 1983
42. Nesfiskur hf,, fiskvtrkun 526.7 116 102.9 887
43, Gunnvðr h.f., útgerð 519.5 27 177.3 6567
44. Fiskv. Krístj. Guðmundss. hf. 504.5 41 114.5 2793
45. l'tgerðarfélag HaliQdngu bf. 483.5 34 137.1 4032
46. Útgerðarfélag Flateyrar h.f. 464.4 92 192.0 2097
47. Pétur Stefánss., útgerð.útflutn. 450.0 36 156.8 4356
48. Fiskiðja Raufarh. og JökuO hf. 447.6 74 100.1 1353
49. Jökull h.f. Fiskiðj. Raufarh. hf. 447.6 74 100 1 1353
50. llraðfrystibús Grundarfi. h.f. : : 447.5 I 60 100.0 1817
Þorskeldi
St
„Það er með ólíkind-
um hve vel þorskarnir
þrífast í búrunum og
enginn þeirra hefur
drepist. I raun má líkja
þeim við heimilisdýr, því
um leið og þeir verða
varir við vélarhljóðið í
bátnum okkar eru þeir
komnir til þess að fá sinn
daglega fæðuskammt,“
sagði Birgir Albertsson
trillukarl á Stöðvarfírði í
samtali við Fiskifréttir.
Birgir og Ingimar Jóns-
son hjá Gámum hf. hófu
í maí í vor tilraun til þess
að ala þorsk í sjókvíum
úti á Stöðvarfirði. Enn-
þá er of snemmt að segja
til um árangurinn, en í
næsta mánuði er ætlunin
að vigta þann físk sem
var veginn og merktur í
sumar og þá ætti að fást
einhver vísbending um
vaxtarhraðann í búrun-
um.
En hver voru tildrög þess að
ráðist var í þessa nýstárlegu til-
raun?
„Hingað til hef ég nánast aldrei
hirt undirmálsfisk, heldur sleppt
honum,“ svaraði Birgir, „og þá
þurft að lofttæma hann með því að
setja lítið gat á kviðinn á honum
svo hanrl kæmist niður aftur. Það
var svo fyrir tveimur til þremur ár-
um að ég fór að velta því fyrir mér
hvort ekki mætti hirða þennan fisk
lifandi og ala hann áfram í búri. Ég
impraði á þessu við þáverandi
sveitarstjóra hér og hann greip
hugmyndina á lofti og dreif í að fá
fyrirgreiðslu í þetta verkefni. Hall-
dór Ásgrímsson þáverandi sjávar-
útvegsráðherra tók okkur vel og
veitti okkur 1.200 þús. kr. styrk
auk þess sem Byggðastofnun
styrkti verkefnið gegn því að við
legðum svipað fé á móti annað
hvort í formi vinnuframlags eða
peninga." Birgir kvaðst telja, að
stofnkostnaðurinn vegna þessarar
eldistilraunar væri orðinn ein og
hálf til tvær milljónir króna.
Vantar méiri físk í eldið
Þeir félagar keyptu fjórar lax-
eldiskvíar frá Fáskrúðsfirði en
nota aðeins tvær þeirra ennþá því
það vantar meiri fisk. I búrunum
eru um tvö tonn af þorski. Sjávar-
útvegsráðuneytið veitti heimild til
þess að veiða 10 tonn af smáfiski
gagngert þess að setja í búrin, en
veiðarnar báru lítinn árangur því
inni á fjörðunum fyrir austan var
engan smáfisk að fá í sumar. Uppi-
staðan í eldisfiskinum er því smá-
Sporðaköst í eldisbúrinu. Myndirnar tók Björn Björnsson fiskifræðingur.
Þorskeldi í Stöðvarfirð
— Birgir Alberts-
son trillukarl og
Ingimar Jónsson
gámaútflytjandi
ala þorsk í
búrum á
Stöðvarfirði og
þrífst fiskurinn
veL
Birgir Albertsson (til vinstri) og Ingimar Jónsson.
Háfað úr eldiskvínni.
Þorskurinn mældur og merktur.
þorskur, sem Birgir hefur hirt af
línu og handfærum og fiskur sem
Ingimar hefur veitt á stöng úti á
firðinum, auk þess sem íbúar á
Stöðvarfirði hafa lagt þeim félög-
um lið með bryggjufiski.
„Þeir sem stunda stangaveiði
hér á bryggjunni sér til gamans
hafa látið fisk í „betlarann“ svo-
kallaða, sem er lítill hringur með
neti í sem komið hefur verið fyrir
gagngert til söfnunar á fiski.
Hringurinn er síðan dreginn út að
kvíunum og fiskurinn háfaður í
þær,“ sagði Birgir.
Fóðraður með sfld,
loðnu og afskurði
Eldisþorskurinn hefur verið
fóðraður með loðnu og síld, sem
fryst hefur verið til beitu en er orð-
in of gömul til sín brúks, auk þess
sem reynt hefur verið að fá hjá
frystihúsinu afskurð sem ekki nýt-
ist í marning. Þá hafa þeir félagar
hakkað hausa og dálka ofan í
þorskinn í búrunum og ennfremur
hefur hann fengið að smakka á
slógi og afbeitu. Svo virðist sem
fiskinum hafi orðið vel af öllum
þessum krásum. Okleift er að gefa
honum þurrfóður vegna þess hve
dýrt það er.
Eins og nærri má geta fer mikil
vinna í aðdrætti og fóðrun á fiskin-
um en þeir Birgir og Ingimar telja
það ekki eftir sér, enda er þetta
fyrst og fremst tómstundaiðja enn
sem komið er. Birgir segi þó, að
eldið muni engu skila nema hægt
verði að safna meiru af fiski. Verð-
ur væntanlega reynt aftur að veiða
smáþorsk þegar vetrar og meiri
von er um afla inni á fjörðunum.
Þorskurinn vigtaður í
nóvember
Hafrannsóknastofnun hefur
fylgst með tilrauninni á Stöðvar-
firði og í júlí sl. voru 300 þorskar úr
eldiskvíunum merktir og vigtaðir
undir stjórn Björns Björnssonar
fiskifræðings. I nóvembermánuði
n.k. er ætlunin að vigta fiskana aft-
ur til þess að ganga úr skugga um
vöxt þeirra.
Björn tjáði Fiskifréttum að
Norðmenn hefðu nokkra reynslu
af þorskeldi. Eldið væri fyrst og
fremst byggt á því að veiða villtan
fisk og ala hann í búrum líkt og gert
væri á Stöðvarfirði. Fiskurinn væri
síðan seldur háu verði um jólaleyt-
ið þegar skortur væri á ferskum
þorski, en hefð væri fyrir því að
snæða jólaþorsk í nágrannalönd-
um okkar. Þetta háa verð væri for-
sendan fyrir þorskeldinu í Noregi.
Björn sagði, að vera kynni að
þorskur úr eldi hérlendis gæti selst
á slíkum markaði.
Ú: 31
Hæst meðaliaun hjé útgerð
Júlíusar Geirmundssonar ÍS
Gunnvör hf., útgerð frystitogarans
Júlíusar Geirmundssonar ÍS, er í
efsta sæti á lista Frjálsrar verslun-
ar yfír þau fyrirtæki á landinu sem
greiddu hæst meðallaun fyrir ár-
sverk á árinu 1991. Meðallaun fyrir
ársverkið námu tæpum 6,6 mill-
jónum króna.
Af 50 efstu fyrirtækjunum á list-
anum eru 46 útgerðarfyrirtæki, þar
af 37 í efstu sætunum. Til saman-
burðar má geta þess að árið 1990
voru útgerðir í 58 efstu sætunum.
Það er ekki nýlunda að útgerðar-
fyrirtæki skipi fjölmörg efstu sæt-
anna á listum yfir hæstu meðal-
launin. Þegar bornir eru saman
listarnir fyrir árin 1991 og 1990
kemur í ljós að meðallaun hjá út-
gerðarfyrirtækjum hafa ýmist
hækkað eða lækkað. Meðallaun
hjá Hrönn hf., útgerð Guðbjargar
ÍS, sem var í efsta sæti árið 1990 en
er nú í öðru sæti, lækkuðu úr rúm-
um 6,8 milljónum króna í 6,4 millj-
ónir.
Samherji hf. á Akureyri er í
þriðja sæti listans með 6 milljónir
365 þús. kr. en fyrirtækið hefur
jafnan verið í 2.-3. sæti á undan-
förnum árum. Ljósavík hf. í Þor-
lákshöfn, sem gerir út rækjufrysti-
togarann Gissur ÁR, er í fjórða
sæti með rúmlega 5,9 milljónir
fyrir ársverkið en fyrirtækið var í
23. sæti á listanum árið 1990 með
tæplega 3,9 milljóna króna meðal-
laun. í fimmta og sjötta sæti eru
útgerðir loðnu- og rækjufrysti-
skipsins Hilmis SU og humar- og
síldarskipsins Þinganess frá
Hornafirði. Síðan koma Skipa-
klettur hf. á Reyðarfirði (frysti-
togarinn Snæfugl SU), Skag-
strendingur hf. (Örvar HU og
Arnar HU), Oddeyrin hf. á Akur-
eyri (samnefnt rækjuskip). Gunn-
ar Hafsteinsson útgerð (Freyja
RE), Stálskip hf. í Hafnarfirði
(Ýmir HF og Rán HF) og útgerð
Jóhanns Halldórssonar í Vest-
mannaeyjum (Andvari VE).
Það kemur ekki á óvart að á
þessum lista eru fyrst og fremst út-
gerðir sem gera út frystiskip eða
selja afla sinn á ferskfiskmörkuð-
um hérlendis og erlendis. Af 50
efstu fyrirtækjunum á listanum eru
átta útgerðarfélög í Vestmanna-
eyjum en voru 12 á sams konar lista
fyrir árið 1990. Að öðru leyti dreif-
ast fyrirtækin um land allt.
Villa í Frj'álsri verslun
Rétt er að vekja athygli á því að
villa slæddist inn í listann um hæstu
meðallaunin í tímaritinu Frjálsri
verslun. Fyrir vikið lentu Samherji
hf. og Oddeyrin hf. mun neðar á
listanum en rétt var. Þetta hefur
verið leiðrétt á meðfylgjandi töflu
hér í Fiskifréttum og verður jafn-
framt leiðrétt í næsta tölublaði
Frjálsrar verslunar.
Hæstu meðallaun 1991
Meital. Meital- Bein
laun fjöldi laun
i l»iis starfsm. ímillj.
Sveitarfélag króna króna
1. Gunnvör h.f., útgcrð ísafjörður 6567 27 177.3
2. Hrönn h.f. ísafjörður 6400 20 128.0
3. Samherjihf. Akurcyri 6365 -X-' 88 560.1
4. Ljósavík hf. Þoríákshöfn 5936 14 83.1
5. HilmirhX Reykjavík 5815 13 75.6
6. Þingancs h.f HöfníHornafirði 5613 10 56.1
7. Skipaklettur hX Reyðarfjörður 5328 25 133.2
8. Skagstrendingur hf Skagaströnd 5179 60 310.8
o. Oddeyrinhf. Aknreyri 3014 17 904
10. Gunnar Hafsteinssnn, útg.m. Reykjavík 5129 12 61.5
11. Stálskiph.f. Hafnarfjörður 4852 43 208.6
12. Jóhano Halidórsson, útgerð Vestmannaeyjar 4822 9 43.4
13. Gunnlaugur Olafsstm, útgerð Vestmannaeyjar 4778 9 43.0
14. ÞrótturhX Grindavik 4725 8 37.8
15. Hólmadrangur h.f. Hólmavík 4663 30 139.9
16. HvalurhX llorgarfj.sýsla 4592 49 225.0
17. Húnaröst hf. útgcrð Reykjavík 4570 10 45 7
18. Garðey ht'. útgerð Höfn f Hornafirði 4541 22 99.9
19. Magnús Gamalíelss. h.f. Ólafsfjörður 4457 35 156.0
20. Huglnn hf. útgerð Vestmannaeyjar 4398 11 48.8
21. Pétur Stefánsson, útg., útn. Kópavogur 4356 36 156.8
22. Gullberg h.f. Seyðisfjörður 4286 21 900
23. 1 f. útgerð Höfn í Hornafirði 4240 10 42.4
24. Siglfirðingur h.f. Siglufiörður 4160 30 124.8
25. l'tgerðarfélag Dalvíkmga hL Oalvík 4032 34 137.1
26. Valbjörn h.f. Sandgerði 3994 16 63.9
27. Fiyjavík hf. útgerð Vestmannaeyjar 3895 19 74.0
28. Sjólastöðin h.f. Ilafnarf. Hafnarfjörður 3848 125 481 0
29. Óskar Þórarínsson, útgerð Vestmannaeyjar 3741 9 34 0
30. Gjögur hf. Grenivík Grenivík 3700 54 199.8
31. Klcifar hf., utgcrð Vestmannaeyjar 3639 18 65.5
32. Bliki hf. fiskverkun Dalvik 3624 29 : 105.1
33. Emil Andersen. útgerð Vestmannaeyjar 3565 8 30.3
34. Sæberg hf„ útgerð Ólafsfiörður 3555 75 266 6
35. Þorbjörn h.l. Críndavik 3481 93 323.7
36. Bergur-Huginn sf. Vestmannaeyjar 3422 68 234.0
37. Borgarcy hf. Þorlákshöfn 3314 7 23.2
38. Útg.fél. Norður-þingeyinga Þórshöfn 3289 35 115.1
39. H.P á íslandi lif. Reykjavfk 3286 7 23 0
40. Kögun hf. Reykjavík 3260 16 52.2
41. Ingimiimlur h.f. Reykjavík 3221 62 199.7
42. Almcnna kerfisfræðístofan hf. Hafnarfjörður 3175 8 25.4
43. F.ldey hf„ útgerðarfélag Keflavfk 3157 40 126.3
44. Sigluberg lif. uig. Grindavik Grindavfk 3119 16 49.9
45. Otur hf„ fiskverkun flalvík 3095 8 24.8
46. Verkfr.stofa Stanleys PáLss. Reykjavík 3076 17 52.3
47. Útnes hX, útgerð Hellissandur 3057 ; éu; to 32 1
48. Enni h.f. Óiafsvík 3000 24 72.0
4‘>. Njáll hf. fiskverkun Garði Garður 2982 22 65 6
50. Hafnarnes h.f. Þorláksböfn 2977 22 65.5