Fiskifréttir - 09.10.1992, Síða 9
FISKIFRÉTTIR föstudagur 7. október 1992
9
Fréttir
Á að fríða stóru ýsuárgangana?
„Ég blæs á svona
reikningskúnstir“
— segir Óskar Þórarinsson skipstjóri
um útreikninga Sigurðar Einarssonar
í Eyjum
„Ég blæs nú á svona reiknings-
kúnstir. Fiskifræðingar hafa verið
að segja okkur að ýsustofninn sé í
vexti en samt náum við ekki ýsu-
kvótanum okkar. Það segir sína
sögu. Sigurður og aðrir í landi geta
reiknað eins og þeir vilja, en ýsu-
stofninn stækkar ekkert við það.
Það hefur aldrei verið eins lítið af
ýsu hér við suðurströndina eins og
undanfarin 4-5 ár,“ sagði Óskar
Þórarinsson skipstjóri og útgerð-
armaður togbátsins Frás í Vest-
mannaeyjum, er Fiskifréttir náðu
tali af honum þar sem skipið var
statt undan Vík í Mýrdal.
Tilefni þessara ummæla voru
skoðanir Sigurðar Einarssonar
forstjóra Isfélags Vestmannaeyja í
grein í Fiskifréttum í síðustu viku,
en þar sagði hann að ef stóru ýsu-
árgangarnir frá 1989 og 1990 yrðu
verndaðir og ekki sótt í þá fyrr en á
árunum 1994-1995 myndi afrakstur
þeirra aukast um 10.000 tonn hvort
ár og útflutningsverðmæti þess
magn yrði 1,5 milljarðar króna á
hvoru ári um sig.
„Það eru alls konar reikniheilar
í landi sem segja að feiknarlega
mikið sé af ýsu í kringum Vest-
mannaeyjar. Samt fá bátarnir ekki
ýsutitt á línuna þar í dag. Ef fara
ætti að ráðum þessara manna væri
alveg eins gott að hætta öllu þessu
fiskiríi. Setjast svo niður eins og
Sólon Islandus og reikna út hvað
við gætum þénað mikið eftir 10 ár,
en á meðan éta fiskarnir hvern
annan,“ sagði Oskar.
Hann kvaðst þeirrar skoðunar
að möskvinn sem notaður væri á
ýsuveiðum væri alltof stór. Skosk-
ar rannsóknir sýndu að töluvert af
þeirri ýsu sem kæmi í trollið en
smygi út um möskvana skaðast
það mikið á hreistrinu að hún
dræpist á eftir og væri því engum til
gagns. „Islendingar voru í 60-70 ár
með 120 mm möskva á togveiðum
og þaðan af minna og það var
aldrei neinn hörgull á ýsu og öðr-
um fiski. Barentshafið er ekki fullt
af fiski núna vegna þess að möskv-
arnir voru stækkaðir fyrir 15 árum
eða svo,“ sagði Oskar Þórarins-
son.
Gert að ýsu um borð í togveiðibáti (Mynd Fiskifréttir/Heiðar).
„Þetta eru raun-
hæfir útreikningar“
— segir Jakob Jakobsson forstjóri
Hafrannsóknastofnunar
„Mér sýnist fljótt á litið að þetta
séu raunhæfir útreikningar hjá
Sigurði,“ sagði Jakob Jakobsson
forstjóri Hafrannsóknastofnunar,
þegar Fiskifréttir báru undir hann
mat Sigurðar Einarssonar for-
stjóra Isfélags Vestmannaeyja á
ávinningi þess að vernda stóru ýsu-
árgangana frá 1989 og 1990.
„Með því að vernda smáýsuna
væri örugglega hægt að auka af-
rakstursgetu stofnsins. Mönnum
er ennþá í fersku minni sá hvellur
sem varð þegar uppvíst varð fyrir
nokkrum árum, að menn voru að
selja smáýsu héðan í stórum stíl allt
niður í 30 sentimetra langa á fisk-
mörkuðunum í Bretlandi. Þar var
að ferðinni stóri 1985 árgangurinn.
Hann hefi örugglega skilað miklu
meiri afrakstri ef öðru vísi hefði
verið að málum staðið,“ sagði Jak-
ob Jakobsson.
Minnkandi fylgi við veiðileyfagjald?
Samkvæmt skoðanakönnun, sem | og greint var frá í hér í blaðinu, eru
ÍM Gallup gerði fyrir Fiskifréttir I 54% þjóðarinnar fylgjandi því að
Eigum fyrirliggjandi flestar gerðir
grásleppu - og ýsuneta.
Allt til línuveiða.
Skútuvogi 13 • P.O.Box 11134 • 131 Reykjavík • Sími 91-685366 ■ Fax 91-679643
útgerðarmenn verði látnir borga
fyrir þann kvóta sem þeir fá úthlut-
að. 40,7% eru andvíg og 5,5%
hlutlaus.
Fyrir rúmu ári, eða í júní 1991,
gerði Félagsvísindastofnun könn-
un fyrir Morgunblaðið á afstöðu
þjóðarinnar m.a. til veiðileyfa-
gjalds. Af þeim sem tóku afstöðu
reyndust 66,8% fylgjandi gjald-
töku, 25,7% voru á móti og 7,6%
nefndu annað fyrirkomulag.
Séu niðurstöður þessara tveggja
kannana bornar saman virðist svo
sem fylgi við álagningu veiðileyfa-
gjalds hafi minnkar umtalsvert á
þessum tímabili. Hvort sú sé raun-
in er erfitt að fullyrða nokkuð um
því spurningin var orðuð á mis-
munandi hátt í þessum könnunum
tveimur.
Spurning IM Gallup fyrir Fiski-
fréttir var á þessa leið: „Ertu fylgj-
andi eða andvíg(ur) því að útgerð-
armenn verði látnir borga fyrir
þann kvóta sem þeir fá úthlutað?“
Spurning Félagsvísindastofnun-
ar fyrir Morgunblaðið hljóðaði
svona: „Fiskimiðin eru nú nýtt á
þann hátt, að heildarafla af miðun-
um er skipt milli fiskiskipa með
svokölluðu kvótakerfi, þ.e. ein-
stökum skipum er úthlutað veiði-
heimildum án endurgjalds fyrir
þær. Þessar veiðiheimildir eru
verðmætar og geta gengið kaupum
og sölum milli útgerðaraðila.
Finnst þér í lagi að veiðiheimild-
irnar (kvótarnir) séu veittar út-
gerðarmönnum án endurgjalds,
eða finnst þér að útgerðarmenn
ættu að greiða eitthvert gjald í
sameiginlegan sjóð fyrir veiði-
heimildirnar (kvótana)?“
IJTGERÐARMF.NN!
Eigum fyrirliggjandi til afgreiðslu,, MUSTAD-Beitningarvélar,,
Veitum einnig tæknilega aðstoð við niðursetningu á vélunum og
gerum verklýsingu fyrir útboð. Höfum þegar afgreitt fimm vélar á árinu.
SKIPAVARAHLUTIR HF:
sími 91-625580 • fax 91-625585
Exatto
Stærsti skrúfulager
á íslandi
15-25 tommu skrúfur á lager og
aðrar stærðir með stuttum
pfnrpiA<iti itímp
Grandagarði 5, Reykjavík
S 91-622950
Marel
M2000
Marel vogir
fyrir saltfiskvinnslu
Öruggar vogir
fyrir íslenskt umhverfi
Flokkunarvogir
Pökkunarvogir
Flokkunarbönd
Innvigtunarkerfi
Framleiöslueftirlitskerfi
Límmiöamerkingar
Höfðabakka 9112 Reykjavík
Sími: 91-686858 Fax: 91-672392
FRETTIR
Ferskar
w
i
hverri
viku