Fiskifréttir


Fiskifréttir - 05.11.1993, Side 5

Fiskifréttir - 05.11.1993, Side 5
FISKIFRÉTTIR föstudagur 5. nóvember 1993 Kvótakaup og vextir — eftirÁrna Benediktsson Kvótakaup Órói er meðal forystu sjó- manna vegna þátttöku sjómanna í kaupum aflaheimilda. Þessi þátttaka er oft frjáls en svo virðist að stundum komi fyrir að hún sé þvinguð að meira eða minna leyti. Það geta verið hagsmunir sjómannanna sjálfra að taka þátt í kvótakaupum þegar þannig háttar til að annars yrði skipi lagt og enga atvinnu að hafa fyrr en með nýju fiskveiðiári. Hins vegar virðist að oft hafi verið farið út fyrir þau mörk og verstu dæmin sem nefnd eru benda til þess að fyrir komi að útgerð selji kvóta og láti síðan sjómennina taka þátt í að kaupa kvóta í staðinn. Það væri vissulega mjög slæmt ef örfáar útgerðir yrðu til þess með óeðlilegum vinnubrögðum að eðlilegum viðskiptum á þessu sviði verði hafnað. En svo er þess að geta að það hlýtur jafnan að teljast óeðlilegt að sjómenn taki þátt í kvótakaupum en fái enga hlutdeild í kvótasölum. En því er um þetta fjallað hér að í þeirri umræðu sem um þessi mál hefur orðið hefur ekki verið minnst á einn þátt málsins, sem þó er vert að gefa gaum. I frjáls- um viðskiptum myndast verð þannig að kaupandi og seljandi ná saman um verð sem báðir sætta sig við. Kaupandi kvóta verður að meta hagsmuni sína af kvótakaupum og verðleggja hann eftir því. Seljandi metur á hinn bóginn hvar og hvernig hann getur fengið hæsta verð, eða hvort betur borgar sig að nýta kvótann sjálfur. Ef kaup- andi þorskkvóta telur sig geta greitt allt að 20 krónur fyrir kíló af þorskkvóta, en seljandinn vill fá 35 krónur, er ólíklegt að af kaup- unum yrði. En þar sem líklegt er að aðrir kvótakaupendur gætu ekki heldur farið mikið yfir 20 krónurnar má búast við að innan tíðar verði kvótaverðið komið nið- ur undir þá fjárhæð. En ef útgerðarmaðurinn telur sig geta borgað allt að 20 krónum, og getur fengið sjómennina til þess að leggja fram svipaða upphæð á móti, liggur í augum uppi að kvótaverðið helst í 35-40 krónum. Með öðrum orðum, þátttaka sjó- manna í kvótakaupum verður til þess að verð á kvóta helst verulega hærra en raunverulegt markaðs- verð ætti að vera. Sjómennirnir taka þátt í að halda uppi kvóta- verði til útgerða, en sem þeir sjálfir fá enga hlutdeild í. Þetta er mjög óeðlilegt og verður að finna lausn á. Vextir Það eru langþráð gleðitíðindi að ríkisstjórnin beitir sér fyrir lækkun vaxta um allt að tveimur stigum. Þegar síðast var kosið til Alþingis var staða þjóðarbúsins batnandi og uppi voru miklar væntingar um betri tíð. Það gekk svo langt að farið var að tala um að taka upp kjarasamninga og hækka launin strax í maí, en kjarasamningar áttu „Þátttaka sjómanna í kvótakaupum verður til þess, að verð á kvóta helst veruiega hærra en raunveruiegt markaðsverð ætti að vera“ að gilda fram á haust. Þessar vænt- ingar urðu til þess að nokkur hætta var á verðbólgu. Til þess að slá á þessa verðbólguhættu taldi ný rík- isstjórn rétt að hækka vexti tíma- bundið og hún gerði það og fór létt með. Jafnframt lýsti forsætisráð- herra því yfir að þegar verðbólgu- hættan væri liðin hjá, þegar kæmi fram á sumarið, yrðu vextir lækk- aðir aftur. Vextirnir hækkuðu um 2-3 stig á stuttum tíma. Það var því ljóst þá þegar að forsætisráðherra taldi sig hafa ráð til þess að hækka og lækka vexti að vild sinni. En það hefur allt reynst erfiðara að lækka vextina. Hvað eftir ann- að hefur því verið lýst yfir að nú væri komið að því að vextir yrðu lækkaðir. En það hefur jafnan brugðist, mest vegna þess að það er einhver markaður sem talinn er ráða vöxtum. Þessi markaður er svo fullkominn að það ræðst ekk- ert við hann. En svo kemur föstu- dagurinn 29. október 1993 og þann dag bregður svo við að ríkisstjórn- in getur ráðið vöxtunum, rétt eins og forsætisráðherra sagði á vor- dögum 1991. Að vísu ræður ríkis- stjórn, eða Seðlabanki, vöxtunum ekki að fullu hér frekar en annars staðar, en hún getur markað ytri ramma hér eins og annars staðar. Og það hefur hún nú gert og von- andi fylgja aðrir fljótt eftir. Þetta er það jákvæðasta sem gerst hef- ur í efnahagsmálum hér á landi um langt skeið. En það var afskaplega spaugi- legt að sjá og heyra marga mæt- ustu menn þjóðarinnar birtast í sjónvarpi um kvöldið og lýsa með mörgum og hátíðlegum orðum hvað hefði gerst. Og það sem hafði gerst, sögðu þeir, var allt annað en það sem hafði gerst. Aheyrendur og áhorfendur vissu mæta vel að ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin greip nú til handa- hreyfinga var að komið var að eindaga: Aðeins örfáir dagar voru þangað til ASÍ tæki ákvörð- un um hvort samningar yrðu lausir frá áramótum. Framhjá þeirri dagsetningu varð að kom- ast. Margir telja að verkalýðs- hreyfingin sé veik um þessar mundir og jafnvel að dagar henn- ar séu senn taldir. Það hefur orð- ið til þess að margir vanda henni ekki kveðjurnar. Það held ég að sé mjög misráðið. Dæmið um vextina sýnir að vissulega er verkalýðshreyfingin sterkt afl í þjóðfélaginu og því sterkara afl sem hún beitir því af meiri hóf- semi. Það væri illa farið ef sú samstaða sem verið hefur síðustu árin innan atvinnulífsins um að þoka málum sameiginlega á rétta braut yrði brotin niður vegna óraunsærra hugmynda um að nú sé lag til þess að brjóta verkalýðs- hreyfinguna á bak aftur. Höfundur er formaður Vinnumálasambands samvinnufélaganna Karfínn fær hvergi frið (Þorsteini Vilhelmssyni svarað) — eftir Berg Kristinsson Þorsteinn Vilhelmsson, skip- stjóri á frystitogaranum Baldvini Þorsteinssyni EA, sendir mér tóninn í Fiskifréttum 22. október s.l. (39. tbl.) vegna ummæla minna um að flottrollin séu að þurrka upp karfastofninn í Skerjadýpinu. Ekki verður hjá því komist að svara honum nokkrum orðum. Þorsteinn segir, að ef banna eigi notkun flottrollsins sé alveg eins gott að banna botntrollin líka. Því er til að svara að aðeins lítill hluti karfans kemur niður undir botn og næst í botntroll. Þorsteinn talar um að flottrollin nái niður undir 2-3 faðma frá botni, en hvað ná þau langt upp? Eg veit ekki betur en að þau nái 50-80 faðma upp í sjó (100-160 m). Engin smáveiðarfæri. Botn- trollin ná hins vegar mest 6 metra upp. Að fá fjögur flottrollsskip á svæðið er eins og að fá 80-100 skip með hefðbundin troll. Ég bara spyr: Hvar fær karfinn frið? Hvergi nú orðið. Þessi flottrolls- skip eru á rúntinum vestan úr Skerjadýpi og austur fyrir Eyjar. Þetta er stanslaus rúntur fram og til baka. Ég hugsa að Þorsteinn ætti erfitt með að búa til erfingja ef hann ætti kost á því aðeins einu sinni á ári og hefði jafnvel ekki frið til þess þá. Skrýtin friðunaraðgerð Þorsteinn vill ekki að karfa- stofninn fái sömu útreið og grá- lúðustofninn. Samt vill blessaður maðurinn drepa karfann uppi í sjó á fengitímanum. Það er skrýtin friðunaraðgerð. Hann vill kannski banna allar þorskveiðar nema á hrygningartímanum. Það er svip- uð friðunaraðgerð. Hafró hefur áhyggjur af karfanum. LIU hefur áhyggjur af karfanum. Skipstjórn- armenn hafa sagt í viðtölum að djúpkanturinn S og SV af landinu verði orðinn þurrausinn eftir 3-5 ár með notkun flottrolla á þessum svæðum. En hvað gera yfirvöld? Ekki neitt. Akkúrat ekki neitt! Steini hneykslast á því að ég skuli hafa vogað mér að tala við Hafró og heimta lokun á veiði- svæðum. Ég hef aldrei beðið um „Að fá fjögur flottrolisskip á svæðið er eins og að fá 80-100 skip með hefðbundin troii“ lokun á veiðisvæðum, en aftur á móti hef ég nokkrum sinnum beð- ið þá um að banna þessi flottroll af þeirri einföldu ástæðu, að karfinn hefur hvergi frið til þess að eðla sig. Eins og staðan er í dag er ég þess fullviss að síðustu 3-4 árgang- arnir af karfaseiðum séu hreinlega ekki til, og það bitnar á okkur árið 2010. Steini segir mig hafa kvartað í útvarpinu yfir því að fá ekki að fara upp í fjöru til að ná í ýsu. Þetta er tómt rugl og bara sett fram til þess að gera menn tortryggilega. Einn- ig talar hann um að flest hafi flot- trollsskipin verið 10 talsins S og SV af Eyjum. Það er ekki lengra en um mánuður síðan ég taldi 15 flot- trollsskip á svæðinu. N æstverðmætasta físktegundin Karfinn er næstverðmætasti fiskurinn okkar. Aðeins þorskur- inn er þjóðinni mikilvægari. Á síð- asta ári skilaði karfinn meira verð- mæti en eftirfarandi fisktegundir til samans: Gljáháfur, Gjölnir, Svartháfur, Sandhverfa, Búri, hrognkelsi, hörpudiskur, humar, geirnyt, loðnuhrogn, síld, skráp- flúra, sandkoli, stórkjafta, lang- lúra, þykkvalúra, skarkoli, lúða, gulllax, hámeri, hákarl, háfur, skata, hlýri, skötuselur, tinda- skata, úthafskarfi, langhali, steinbítur, keila, blálanga, langa og lýsa, að viðbættum hrognum úr þorski, ýsu, ufsa og löngu og allri lifur og fiskhausum, auk marnings. Þrátt fyrir þetta hafa ráðandi menn í landi ekki meiri áhyggjur af stofninum en svo að sjálfsagt þykir að leyfa flottrollin. Þessar veiðar eru bara stundargleði næstu 2-3 árin og þá vakna menn upp við vondan draum. Þetta er svipað og að taka bankalán á 50% vöxtum í 1% verðbólgu til 20 ára (þá er karfinn veiðanleg- ur) og leggja ekkert fyrir til að greiða lánið. Karfinn er enginn ruslfiskur lengur eins og menn hafa talað um gegnum árin. Hann er orðinn einn mikilvæg- asti fiskurinn okkar og því verða menn að bera virðingu fyrir hon- um og ekki láta flottrollsskipin eyðileggja þessa auðlind okkar. Þessi fiskur hefur aldrei verið neinn fréttafiskur eins og síld, loðna, úthafskarfi ogþorskur. Ef karfastofninn hrynur, hvað höf- um við þá? Ég er viss um að 90% alþingismanna okkar hafa ekki hugmynd um hvað karfinn gerir fyrir ríkiskassann. Þeir hafa ör- ugglega meiri áhyggjur af því hvort hin eða þessi listamanna- spíran haldi launum sínum. Höfundur er stýrimaður á Ófeigi VE.

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.