Fiskifréttir - 03.11.1995, Síða 1
ISSN 1017-3609
Slippfélagiö
Málningarverksmiója SIMI: 588 8000
: FRl ETTIR
41. tbl. 13. árg. föstudagur 3. nóvember 1995
Hólmadrangur hf.:
Leigir
AndeySFtil
rækjuveiða
Hólmadrangur hf. á Hólmavík hef-
ur tekið frystiskipið Andey SF 222
frá Hornafirði á leigu og er leigu-
samningurinn til háifs árs. Að sögn
Gústafs Daníelssonar, fram-
kvæmdastjóra Hólmadrangs hf.,
verður Andey SF gerð út til rækju-
veiða. Skipinu er ætlað að brúa
það bil, sem skapast hefur í rækju-
vinnslunni á Hólmavík og Drangs-
nesi, vegna tímabundinnar lokun-
ar Húnaflóa fyrir innfjarða-
rrækjuveiðum.
Hólmadrangur hf., sem er að
stærstum hluta í eigu Kaupfélags
Steingrímsfjarðar, keypti í byrjun
ársins rækjuverksmiðjur kaupfé-
lagsins á Hólmavík og Drangsnesi
og hefur fyrirtækið rekið þær síð-
an. í haust keypti Hólmadrangur
hf. togbátinn Frigg VE frá Vest-
mannaeyjum og að sögn Gústaf
var talið að með því móti væri hægt
að tryggja rækjuverksmiðjunum
nægilegt hráefni til vinnslu. Vegna
mikillar þorskseiðagengdar í
Húnaflóa ákvað Hafrannsókna-
stofnunin, í kjölfar rannsóknaleið-
angurs, að bíða með að opna
flóann fyrir innfjarðarrækjuveið-
um.
— Pað er enn ekki búið að opna
Húnaflóann fyrir innfjarðarrækju-
veiðum og menn óttast að það geti
dregist alveg fram yfir áramót að
það gerist. Þá vonast menn til þess
að seiðin verði gengin út á dýpið,
segir Gústaf en hann segir að
bannið við innfjarðarrækjuveiðun-
um komi sér sérstaklega illa fyrir
rækjubátana frá Hólmavík og
Drangsnesi enda séu þeir með ríf-
lega helming innfjarðarrækjukvót-
ans á móti bátum frá Hvamms-
tanga, Blönduósi og Skagaströnd.
Vegna þessarar stöðu var ákveðið
að taka Andey SF á leigu og segir
Gústaf að skipið muni fara fljót-
lega á úthafsrækjuveiðar og ísa afl-
ann um borð.
Línukapphlaupið hafið
Mikið hefur verið að gera í höfn-
um landsins við að undirbúa línu-
veiðitvöföldunina sem standa
mun frá 1. nóvember til 29. febr-
úar nk. Á þessum tíma er helm-
ingur þorsk- og ýsuafla línu-
skipanna utan kvóta og er búist
við miklu kapphlaupi um það
aflamagn sem stjórnvöld hafa
ákveðið að ráðstafa vegna línu-
tvöfóldunarinnar.
Til ráðstöfunar eru alls 13,810
tonn af óslægðum þorski og 3190
tonn af óslægðri ýsu eða alls um
13,700 tonn af slægðum fiski. Á
síðasta fiskveiðiári tókst ekki að ná
tvöföldunarkvótanum en miðað
við fyrirsjáanlega sókn eru allar
líkur á því að það takist að þessu
sinni. Meðfylgjandi mynd tók
Gunnar Gunnarsson af Heimi Jó-
hannssyni, starfsmanni Löndunar
hf. í Reykjavík, með tvo væna
hausaða og frysta karfa sem línu-
skipið Tjaldur SH fékk í tilrauna-
veiðiferð á Reykjaneshrygginn á
dögunum. Tjaldur SH er nú
kominn á þorsk- og ýsuveiðar.
Sjá nánar viðtal við Guðmund
Kristjánsson framkvæmdastjóra
útgerðarinnar á bls. 12.
Þjóðhagsspá um
norsk-ísl. síldina:
160 þús. tn
Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir því
í nýjustu þjóðhagsspá, að íslend-
ingar veiði 160 þús. tonn af norsk-
íslensku sfldinni á næsta ári, en ís-
lensk skip veiddu 173 þús. tonn úr
þessum stofni á nýliðnu sumri.
Verðmæti þess afla var tæplega 1,5
milljarðar króna.
Samkvæmt heimildum Fiski-
frétta voru ekki settar fram kröfur
um ákveðinn tiltekinn kvóta af ís-
lands hálfu á síldarfundinum í
Moskvu á dögunum og stjórnvöld
hafa ekki nefnt neinar tölur opin-
berlega í þessu sambandi. Hins
vegar buðu Norðmenn íslending-
um 40 þús. tonna kvóta á sfldar-
fundinum fyrr á árinu, þegar við-
ræður fóru út um þúfur.
Norsk-íslenska sfldin, sem ís-
lensku skipin veiddu nú í sumar,
fór nánast öll í bræðslu og nam
útflutningsverðmæti aflans upp úr
sjó 8-9 krónum á kflóið, að sögn
Ásgeirs Daníelssonar hagfræðings
Þjóðhagsstofnunar. Hver 10 þús.
tonn til eða frá í kvóta gera þannig
80 millj. króna miðað við bræðslu,
en fari sfldin í vinnslu má 4-5 falda
verðmætið. í síðustu viku birtu fiski-
fræðingar skýrslu um norsk-íslenska
sfldarstofninn sem lögð verður til
grundvallar í samningaviðræðunum
um skiptingu kvótans.
Sjá nánar bls. 8-9.
Tveir rækjutogarar bæt-
ast í fíota Bílddælinga
— keyptir írá Grænlandi lyrír 236 milljónir króna
Rækjufrystitogararnir tveir,
sem rækjuverksmiðjurnar á Bfldu-
dal, Blönduósi og Sauðárkróki
hafa fest kaup á, koma til landsins
nú um helgina. Togararnir verða
skráðir á Bfldudal en útgerð þeirra
verður stjórnað frá Reykjavík.
Hefur Rafn Svansson verið ráðinn
framkvæmdastjóri útgerðarinnar
en hann hefur mörg undanfarin ár
verið skipstjóri á rækjufrystitogar-
anum Skutli ÍS frá ísafirði.
m
Verksmiðjutogarinn Heinaste,
sem Sjólaskip hf. í Hafnarfirði
gera út á úthafskarfa, hefur aflað
um 3.000 tonna af frystum afurð-
um frá því að hann lagði upp í
fyrstu veiðiferðina 8. aprfl í vor,
að því er Guðmundur Þórðarson
útgerðarstjóri tjáði Fiskifréttum.
Það jafngildir um 7.000 tonnum
upp úr sjó.
Guðmundur vildi ekki ncfna
tölur um aflaverðmæti, en ef geng-
ið er út frá því að 85-90 krónur fáist
fyrir hvert kfló afurða má ætla að
það nemi 250-270 milljónum
króna. Skipið hefur landaö þrisv-
ar, einu sinni á hafí úti, einu sinni í
Kanada og einu sinni í Hafnarfirði.
Yfirstandandi veiðiferð hófst 7.
september og stendur fram í des-
ember. Að sögn Guðmundar
hafa veiðarnar ekki gengið eins
vel og vonast hafði verið til. Afla-
brögðin scinni hluta sumar og í
haust hafa verið treg og ótíð
hamlað veiðum. Skipstjóri á
Hcinaste er Páll Eyjólfsson og af-
leysingaskipstjóri Þorvarður
Jónsson. í áhöfn eru 86 menn,
þar af átta íslendingar.
Að sögn Óttars Yngvasonar,
sem er einn eigenda Rækjuvers hf.
á Bíldudal og Særúnar hf. á
Blönduósi, voru togararnir keyptir
af Royal Greenland á Grænlandi
og var kaupverðið 236 milljónir
króna. Togararnir eru 69 metra og
45 metra langir og í þeim eru full-
komnar rækjuvinnslulínur. Stærri
togarinn hefur fengið nafnið Erik
B A 204 og er frystigeta hans um 50
tonn af afurðum á sólarhring.
Minni togarinn nefnist nú Kan BA
101 og er hann með um 30 tonna
frystigetu. Báðir togararnir halda
til rækjuveiða á Flæmingjagrunni í
næstu viku og verða þeir mannaðir
íslenskum sjómönnum.
— Með kaupunum á togurunum
erum við að skapa 100 ný störf á sjó
og í landi. Það verður 35 manna
áhöfn og skipunum og 15 afleysing-
armenn og við gerum ráð fyrir því
að vinnsla á rækjunni skapi um 50
ný störf hjá Rækjuveri hf., Særúnu
hf. og Dögun hf. á Sauðárkróki,
segir Óttar en hann vekur athygli á
að það sé undir íslenskum stjórn-
völdum komið hvort þessi störf
verði til frambúðar eða ekki. Ef
stjórnvöld mótmæli ekki samþykkt
NAFO um sóknartakmarkanir á
rækjuveiðunum á Flæmingja-
grunni sé allt eins líklegt að út-^
gerð skipanna færist til ann- _
arra landa og að þau verði
mönnuð með erlend-
um láglaunaáhöfn-
um.
Sjánánar .
bis. io X SKIPAPJONUSTA
tsso
Olíufélagiðhf