Fiskifréttir


Fiskifréttir - 03.11.1995, Qupperneq 4

Fiskifréttir - 03.11.1995, Qupperneq 4
4 FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. nóvember 1995 JL IIII #%IPIP HRAÐASTÝRINGAR Kolmunni Franski togarínn Joseph Roty II: Er eina ESB skipið sem vinnur kolmunna í súrímí — útgerðin hefur áhyggjur af ástandi kolmunnastofnsins England - Quentin Bates Jf JOHAN RÖNNING HF SUNDABORG 15 104 REYKJAVÍK SÍMI: 568 4000 FAX: 568 8221 -Rækju- framleiðendur Hafið samband um verð og greiðslukjör íslenska útflutningsmiðstöðin hf. Sidumuli 34 • 121 Reykjavik Sími 588 7600 Franska útgerðarfyrirtækið Comapeche gerir út 95 metra lang- an togara, sem eingöngu veiðir kolmunna. Togarinn, sem heitir Joseph Roty II, er eina skipið innan Evrópusambandsins sem er með vinnslu um borð til framleiðslu á súrími úr kolmunnanum. Súrímið af Joseph Roty II er síð- an fullverkað í landi í verksmiðju fyrirtækisins í Saint Malo. Hráefn- ið er blandað með matarolíu, eggjahvítu og hvítvíni og úr því eru gerðir margs konar réttir, sem seldir eru kældir á heimamarkaði en frystir og vakúmp- akkaðir víða er- lendis. „Súrímí sem framleitt er úr kol- munna er jafngott eða jafnvel betra en súrímí úr alaska- ufsa. Til þess að framleiða fyrsta flokks súrímí þarf fyrsta flokks kol- munna. Togarinn verður að fá fisk jafnt og þétt en ekki í of stórum hölum. Þetta getur reynst erfitt því kol- munnastofninn er veikur," segir Alain Olivier sölustjóri Comapeche. Frá verksmiðju Comapeche í Saint Malo, þar sem súrímíinu er breytt í neytendavöru. rreytingarnar á skipinu STAD beitningarvélasamstœðunni! y stœkkun ........-..... ELDBORG RE-22 Mustad Borgartúni 24 • Pósthólf 8460 • 128 Reykjavík • Sími: 562 1155 • Fax: 561 6894 Franska kolmunnavinnsluskipið Joseph Roty II. (Myndir/Fiskifréttir: Quentin Bates). * Ahyggur af kolmunnastofninum Alain Olivier segist hafa miklar áhyggjur af kolmunnastofninum. „Skipstjórar okkar hafa fullvissað okkur um að ástand kolmunna- stofnsins hafi versnað töluvert síð- ustu árin enda hefur verið veitt verulega umfram úthlutaða kvóta. Evrópusambandið hefur ekki neinn áhuga á því að stjórna veið- um úr stofninum. Þvert á móti virðist bandalaginu vera meira í mun að gefa Norðmönnum kol- munnaveiðiheimildir en að hafa hemil á sókninni. Næstum öllum aflanum úr þessum stofni er land- að til bræðslu í Noregi og á írlandi. Bræðsluveiðiskipin mega nota 16 mm möskva í poka en okkar skip verður að nota trollpoka með 45 mm möskvum þar sem aflanum er landað til manneldis," sagði Oli- vier. Fram kom í máli hans að úr 10 kflóum af kolmunna væri hægt að framleiða 1 kg af fiskimjöli sem gæfi 2,5 franka eða jafnvirði 33 ísl. króna. Ef þessi 10 kíló væru unnin í súrímí fengjust 1,3 kg að verðmæti 23 frankar eða sem svarar 299 krónum. Hrun við Nýfundnaland Comapeche fyrirtækið, sem áður hét Armamaent Pleven, var stofnað á þriðja áratugnum í því augnamiði að veiða þorsk undan ströndum Nýfundnalands. Hrun þorskstofnsins við Kanada var mikið áfall fyrir franskar útgerðir sem héldu úti togurum á fjarlægum miðum. Þrjú frönsk fyrirtæki hættu alveg útgerð. Comapeche hélt hins vegar áfram en breytti áherslum sínum. Auk kolmunna- togarans gerir Comapeche nú út einn 60 metra langan togara sem veiðir þorsk í Barentshafi. Fyrir- tækið er handhafi rúmlega 70% þess kvóta sem Frakkar hafa í Bar- entshafi. Það nægir til þess að halda togaranum Grande Herm- ina á sjó frá áramótum og fram í október. Comapeche hefur hins vegar ekki viljað senda skip til veiða í „þríhyrningnum“ eins og Frakkar kalla Smuguna. Þá hefur fyrirtækið aukið umsvif sín í útgerð smærri skipa sem veiða í Ermar- sundi og landa afla sínum viku- lega. Loks má geta þess að fyrir- tækið starfrækir veiðar og vinnslu á rækju í Frönsku Guayana í Suð- ur-Ameríku. TIL SANDBLÁSTURS SAN DBLÁSTU RSSAN DU R 30 kg. sekkur kr. 420 m/vsk FINPUSSNING SF. Dugguvogur6.104 Rvk. ® 553 2500

x

Fiskifréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.