Fiskifréttir


Fiskifréttir - 03.11.1995, Síða 5

Fiskifréttir - 03.11.1995, Síða 5
FISKIFRETTI 3. nóvember 1995 Ég, um mig, frá mér, til mín — eftir Helga Laxdai Við sem erum komin til vits og ára, a.m.k. ára, og vorum til sjós eilítið yngri en í dag könnumst við setningar í stöðina á borð við: Ég er að fara í land, ég er að fiska, ég er að leggja, ég er að draga, mig vantar vatn, olíu og kost þegar ég kem í land, ég fer í slipp bráðlega, o.s.frv., o.s.frv. Við getum yfirfært ummæli af þessu tagi á aðrar starfsgreinar, t.d. á bóndann sem lánar ná- grannanum nautið til þess að þjónusta kýrnar eða duglegan hrút til þess að embætta ærnar. Yrði slík sjálfsögð hjálpsemi í sveitinni ekki býsna sposk pers- ónugerð bóndanum? Áhöfnin í strangri viðgerðarvinnu Þessar setningar úr stöðinni frá í gamla daga komu í hugann þegar fréttir bárust af Hrafni Sveinbjarnarsyni GK með bilaða forþjöppu við aðalvél norður í Smugu fyrir skemmstu. Fréttir fjölmiðla báru vott um það að á þessu ágæta skipi væru engir vél- stjórar. Hamrað var á því að áhöfnin stæði neyti, yfirfæra meiri orku pr. strokk. Þotuhreyfillinn aftur á móti dælir loftinu út í andrúmsloft- ið undir yfirþrýstingi, sem knýr þotuna áfram. Forþjappa dieselvélar, líkt og þotuhreyfill, er tæknilega flókið „Þrátt fyrír aðstoð áhafnar Óðins við lækninn um borð heyrði ég aldrei frá því greint í fjölmiðlum að áhöfnin stundaði læknisverk, gæfi sjúklingum lyf, drægi úr tennur eða sett spelkur á brotna hönd“ daglangt í strangri við- gerðarvinnu vegna áður- nefndrar bil- unar. Þessum ósköpum lauk síðan með því að greina frá því að nú væri áhöfnin senn að ljúka við- gerðinni en strax að henni lokinni myndi skipstjórinn reynslukeyra forþjöppuna. Fyrir þá sem þekkja til er for- þjappa við aðalvél ákveðinn hluti af vélinni sem byggir á sama lög- máli grunnlögmáli og þotuhreyf- ill. Helsti munurinn er sá að for- þjappa við dieselvél er notuð til þess að dæla fersku lofti undir þrýstingi inn í strokka vélarinnar svo hægt sé að brenna meira elds- tæki sem ekki verður unnið við af öðrum en fagmönnum, sem hafa tileinkað sér nákvæm vinnubrögð og notkun fagbóka. Þess vegna er það nú svo, að hvort heldur for- þjöppunni er skipt út í heilu lagi, líkt og gerðist í tilviki Hrafns Sveinbjarnarsonar, eða skipt er um ákveðinn hluta hennar, þá verður það ekki unnið af þeim sem hafa það að aðalstarfi að hausa eða slægja fisk, það þarf meira til. Skipherra á stofugangi? Við skulum í þessum saman- burði taka mið af störfum læknis- ins sem var um borð í Óðni norð- ur í Smugu. Hann þurfti að glíma við fjölbreytt verkefni, allt frá því að setja plástur á skeinu upp í skurðaðgerðir. Vitaskuld veitti áhöfn Óðins lækninum þar um borð margháttaða aðstoð, — allt frá því að sækja sjúklinga yfir í önnur skip til þess að aðstoða hann við störf sín. Þrátt fyrir þessa sjálfsögðu að- stoð áhafnar Óðins við lækninn þar um borð heyrði ég aldrei frá því greint í fjölmiðlum að áhöfn- in stundaði læknisverk, gæfi sjúklingum lyf drægi úr tennur eða setti spelkur á brotna hönd eða fót og allra síst heyrði ég frá því greint að skipherra skipsins færi á nokkurs konar stofugang, kíkti upp í sjúklinga, tæki púls eða mæti hvort þeir væru hæfir til þess að yfirgefa varðskipið og hefja störf að nýju. Slíkt mat er að sjálfsögðu í höndum læknisins líkt og það eru vélstjórar skipanna sem annast við- gerðir á tækj- um og búnaði skipsins þótt vonandi veiti allir í áhöfn- inni aðstoð ef á þarf að halda í sam- ræmi við getu hverju sinni. Það hlýtur með sömu rökum að vera yfir- vélstjóri hvers skips sem reynsl- ukeyrir vélar þess og vélahluti að lokinni viðgerð hverju sinni og metur hvort allt sé í lagi en ekki skipstjórinn með fullri virðingu fyrir hans hæfileikum, þeir liggja bara á öðru sviði. Höfundur er formaður Vélstjórafélags Islands. Raufarhöfn: Sléttunúpur fær úreldingarstyrk Þróunarsjóður sjávarútvegsins hefur veitt Jökli hf. á Raufarhöfn loforð um 43 milljóna króna úreld- ingarstyrk vegna Sléttunúps ÞH. Báturinn, sem er 138 brl. að stærð og hét áður Gústi í Papey, var keyptur í maí sl. fyrir 170 milljónir króna. í dagblaðinu Degi er haft eftir Gunnlaugi Júlíussyni stjórnarfor- manni Jökuls hf. að aldrei hafi verið ætlun útgerðarinnar að eiga skipið til langframa en honum hafi fylgt góður kvóti sem sé nú 446 tonn í þorskígildum, þar af 120 tonn þorskur og 260 tonn rækja. Markmiðið með kaupunum hafi verið að ná kvótanum og fáist þokkalegt verð fyrir bátinn auk úr- eldingarstyrksins megi segja að verðlagningin á kvótanum sé ásættanleg. Útgerðinhefurþreifað fyrir sér um sölu á bátnum bæði hérlendis og erlendis. Óvíst er hvort keypt verður annað skip í stað Sléttunúps, en auk hans gerir Jökull hf. út togarann Rauðanúp og línubátinn Atlanúp. 5 TIL LÍNUVEIÐA íslensk beitusíld - Falklandseyja smokkur - Mustad krókar - Kínverskir línutaumar - Uppsett línuábót - Hampiðju lína - Línubalar - Polyform línubelgir ^)ón x^Ásbj 'óinsson kji. ÚTFLUTNINGS- OG HEILDVERSLUN Geirsgata 11 • Pósthólf 286 • 121 Reykjavík Sími 551 1747 • Fax 551 9463 Frystitogarar til sölu Höfum í einkasölu beint frá eigendum Rækjutogari smföa&ur í Noregi 1976. 1204 BT / 51 3 NT, lengd 61,8 m, breidd 10 m, 2700 ha Wichmann (1984) vib 475 snún. Vindubúnaður Hydr. Brattvaag, m.a. 2 splittvindur, 1 netavinda, ný verksmiöja (1994) m.a. 2 KM Fish vélar, 2 Japanlínur, 2 Kronborg sjóbarar / þurrkarar, allur rafeindabún. endurnýjabur '95. 814 rúmmetra frystilestir. Verbhugmynd: DKK 27 millj. kr. ST 1085 íshafsrækjufrystitogari, smíbabur í Danmörku 1982, 764 BT, lengd 57 m, breidd 11,6 m, 2300 ha B&W Alpha Diesel, 2 x 19 tn Hydr. Brattvaag splittvindur, fullkomin Kronborg verksmibja fyrir Japansrækju og sobna rækju. 640 rúmmetra rými í 2 frystilestum. Verb: Um DKK 25,5 millj. kr. Nánari upplýsingar gefur RYSENSTEENSGADE 14 DK-1564 COPENHAGEN V TELEPHONE: +45-33-32-39-97 TELEFAX: +45-33-13-00-63 Ækmttc Shlpplng a/s 8HIPe80»ŒI»8 H F1 RETTIR Askrift 5155555

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.