Fiskifréttir


Fiskifréttir - 03.11.1995, Page 6

Fiskifréttir - 03.11.1995, Page 6
6 FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. nóvember 1995 Snúningsstútar og fjöldi annara aukahluta ávallt til á lager Háþrystistöðvar fyrir 2 -12 notendur samtímis Útistöðvar með fjölmarga möguleika Iðnaðar- og heimilisryksugur fyrir blaut- og þurrhreinsun International Skipamálning a£l^ Stórhöfða 44, Reykjavík. Sími 567 4400 Kaupir notað sjókæli- tankaskip á Hjaltlandi HAÞRYSTIDÆLUR OG RYKSUGUR Litlar og handhægar háþrýstidælur Þrýstingur: 10-150 bar Stórar og öflugar háþrýstidælur Þrýstingur: 10-230 bar — kaupverð rúmar 300 millj. króna SKEIFUNNI 3E-F ■ SIMI 581 2333 • FAX 568 0215 Fréttir Nóta- og togskipið Antares, sem ísfélag Vestmannaeyja hefur fest kaup á. ísfélag Vestmannaeyja hf. hefur gengið frá samningum á kaup- um á notuðu nóta- og togveiðiskipi með sjókælitönkum frá Whals- ey á Hjaltlandi. Skipið heitir Antares og er kaupverðið rúmar 300 milljónir króna. Ef allt gengur að óskum verður skipið afhent 1. apríl nk. ísfélag Vestmannaeyja hf: Antares var byggt í Noregi árið 1980 og hét skipið upphaflega Krossfjord. Það er rúmlega 58 metra langt og 9 metra breitt og mælist alls tæpar 450 brúttórúm- lestir. I skipinu, sem lengt var árið 1986, eru sex sjókælitankar fyrir aflann og er tankarýmið alls 950 rúmmetrar. Það þýðir að ef verið er að veiða síld eða loðnu til bræðslu þá er burðargetan um 1000 tonn af hráefni. Auk þess sem skipið er útbúið til nótaveiða þá hefur það stundað flottrollsveiðar á ýmsum fisktegundum s.s. makríl með góðum árangri. Ný og þó nokkuð öflug aðalvél af gerðinni B&W ALPHA (2600 hestöfl) var sett í skipið í sumar en fyrir var í því 1859 hestafla ALPHA vél. Þrátt fyrir að vélaraflið hafi þannig verið aukið til muna þá virðist það ekki hafa dugað hjaltnesku útgerð- inni því hún hefur nú samið um smíði á stærra og mun öflugara skipi. Að sögn Sigurðar Einarssonar, forstjóra ísfélags Vestmannaeyja hf., felast nokkrir fyrirvarar af hálfu kaupanda og seljanda í kaup- samningnum. Helsti fyrirvari hjaltnesku útgerðarinnar er sá að veiðileyfi skipsins fáist flutt yfir á nýja skipið. Sigurður sagði enn ekki ljóst hvernig tekið yrði á úr- eldingarmálum vegna innflutnings á Antares. — Það er þó ljóst að við munum ekki úrelda nótaskip vegna þess- ara kaupa. Valið stendur á milli annarra skipa í eigu fyrirtækisins eða kaupa á úreldingarrétti, sagði Sigurður en hann upplýsir að auk hefðbundinna loðnu- og síldveiða þá sé horft til veiða á fleiri tegund- um með kaupunum á Antares. Kolmunnaveiðar komi að sjálf- sögðu til greina sem og veiðar á makríl. Með kaupunum á Antares aukast möguleikar ísfélagsins á því að útvega ferskt og gott hráefni til vinnslu eða framleiðslu á hágæða- mjöli og þá einkum ef veiðarnar eru stundaðar á fjarlægari miðum. Þess má reyndar geta að þrátt fyrir að nótaskip fyrirtækisins séu ekki útbúin með sjókælitönkum þá hef- ur allur síldarafli þeirra farið til vinnslu á yfirstandandi vertíð. — Við höfum metið það þannig að verðið á síldarkvótunum sé of hátt til þess að veiða sfldina til bræðslu, sagði Sigurður Einars- son. Haldið FSskSfréttum tSS haga í hverri viku birtast í Fiskifréttum margvíslegar upp- lýsingar sem gagn- legt er að geta flett upp síðar. Möppur, sem rúma a.m.k. einn árgang blaðs- ins, eru fáanlegar hjá Fróða hf., Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar í síma 515-5500.

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.