Fiskifréttir - 03.11.1995, Side 11
FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. nóvember 1995
11
Budget
Car Rental
^jorrienn ocj uEgarosirnibnn
Vetrartilboð á bílaleigubílum.
Afhendum allan sólarhringinn
á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
BUDGET BILALEIGA
lenskum sjávarútvegi um þessar
mundir og við trúum því ekki fyrr
en á reynir að íslensk stjórnvöld
ætli að láta nágrannaþjóðirnar,
með Norðmenn og Dani í broddi
fylkingar, setja íslenska útgerðar-
menn og sjómenn út í horn í þessu
máli. Hættan er sú að ef stjórnvöld
mótmæla ekki samþykkt NAFO
þá eru allar líkur á því að sagan úr
hvalamálinu endurtaki sig. Islend-
ingar mótmæltu ekki banni Al-
þjóða hvalveiðiráðsins á sínum
tíma og fyrir vikið höfum við ekki
getað hreyft okkur í því máli í tíu
ár. Norðmenn höfðu hins vegar vit
á að mótmæla banninu og fyrir vik-
ið standa þeir miklu betur að vígi
en íslendingar, segir Óttar en hann
segir greinilegt að Norðmenn,
Færeyingar og Grænlendingar ótt-
ist íslensku rækjuútgerðirnar því á
meðan rækjuafli þessara þjóða hafi
minnkað á Flæmingjagrunni þá
hafi íslensku skipin verið að auka
sinn hlut.
— Það stefnir í að rækjuafli Is-
lendinga verði 6000 tonn á Flæm-
ingjagrunni á þessu ári og á hinu
næsta ætti aflinn hæglega að geta
farið í 10,000 tonn. Það hafa aðeins
fátæklegar rannsóknir farið fram á
rækjustofninum á svæðinu á sl.
þremur árum og það liggja engin
marktæk vísindaleg rök að baki
samþykkt NAFO um sóknartak-
markanir. íslensk stjórnvöld eiga
að mótmæla þessu samsæri ná-
|rannaþjóðanna. Með því halda
Islendingar öllum dyrum opnum í
málinu, segir Óttar en spurningu
um það hvað gerist ef samþykkt
NAFO nær óbreytt fram að ganga
um næstu áramót svarar hann svo:
— Við höfum þegar fengið
nokkur góð kauptilboð í báða tog-
arana. Eg reikna þó ekki með því
að við seljum þá en þess í stað kem-
ur vel til greina að gera þá út frá
öðrum löndum með erlendum lág-
launaáhöfnum. Ef það yrði niður-
staðan þá myndi iðnaðarrækjan,
vegna tollaákvæða, verða seld
óunnin til Evrópusambandslanda,
t.d. Danmerkur og Englands, og
fullunnin þar, segir Óttar Ynga-
son.
Góð sala Breka í Bremerhaven
Vestmannaeyjatogarinn Breki VE
fékk mjög gott verð fyrir fisk sem
seldur var á fiskuppboði í Bremer-
haven sl. mánudag. Breki VE land-
aði alls 123,5 tonnum af fiski á
markaðinn og fyrir það magn feng-
ust 16,9 milljónir króna eða 136,54
kr/kg í meðalverð. 14 tonn af smá-
um karfa voru send áfram til
Frakklands í gámi en upplýsingar
um þá sölu höfðu ekki borist afla-
miðlun LÍÚ nú um miðja vikuna.
Samkvæmt upplýsingum afla-
miðlunar voru seld alls 112 tonn af
karfa úr Breka VE á mánudags-
uppboðinu og var meðalverðið
136,86 kr/kg. Fyrir 4 tonn af ufsa
fengust 114,98 kr/kg og rúm 2 tonn
af ýsu seldust á 153,05 kr/kg. Að
sögn Péturs Arnar Sverrissonar
hjá aflamiðlun hefur nokkrum
skipum, sem hyggjast sigla með
afla á Þýskalandsmarkað, gengið
erfiðlega að veiða karfann að und-
anförnu. Ekki hefur þó verið hætt
við siglingar af þeim sökum enn
sem komið er.
GámasöLur í Englandi
Síðasta vika verður að teljast ein
sú lélegasta í langan tíma hvað
varðar sölur á ferskum fiski frá ís-
landi á enska markaðnum. Aðeins
voru seld 156 tonn af íslenskum
fiski í vikunni, nánar til tekið dag-
ana 23. til 25. október sl., og fyrir
það magn fengust 26 milljónir
króna. Meðalverð var 167,05 kr/
kg. Sjaldan hefur jafn lítið magn af
íslenskum þorski verið í boði á
enska markaðnum. Aðeins 9 tonn
voru í boði og var meðalverðið
174,52 kr/kg. Seld voru 58 tonn af
ýsu, sem einnig er í lægri kantin-
um, og var meðalverðið 163,74 kr/
kg. Fyrir 29,5 tonn af kola fengust
181,44 kr/kg, 26 tonn af karfa seld-
ust á 116,05 kr/kg og 3 tonn af grá-
lúðu fóru á 212,30 kr/kg.
veggefni fyrir matvælaiðnað
„Gamlir veggir
verða sem nýir“
IÐNAÐARQÓLF
8miöjuvegur 70,200 Kópavogur
Slmar: 504 1740, 802 4170, Fax: 5541769
FURUNO FAR-2805
Nýr „undri“ í fullri stærð
l
Nýr 28” radar með frábærum eiginleikum
10-50 kW á X-bandi eða 30-60 kW á S-bandi.
Fáanlegur með 40 skipa ARPA og
6000 punkta plotter með sjókortum.
Brimrún hf
Hólmaslóð 4
101 Reykjavík
s: 561 0160
Ármúla 1 • Sími: 588 0880, 896 6009 eftir lokun skrifstofu
Fax: 588 1881 • Utvegum bíla erlendis