Fiskifréttir


Fiskifréttir - 03.11.1995, Blaðsíða 12

Fiskifréttir - 03.11.1995, Blaðsíða 12
Línuveiðar Kapphlaupið um 13,700 tonn af slægðum þorski og ýsu, sem er sá kvóti sem ætlaður er til svokallaðrar línutvöldunar á tímabilinu frá 1. nóvember til 29. febrúar nk., hófst á miðnætti sl. miðviku- dag. Að undanförnu hafa útgerðarmenn og áhafnir línuskipanna unnið myrkranna á milli við að undirbúa tvöföldunartímann. Fjárfest hefur verið í línubeitningarvélasamstæðum, nýjum lín- um og útgerðirnar hafa birgt sig upp af beitu, frystri síld og smokki, til þess að egna fyrir þorskinn og ýsuna. A síðasta fisk- veiðiári náðist ekki að klára tvöföldunarkvótann en útgerðar- menn línuskipanna efast ekki um að nú verði 13,700 tonna mark- inu náð vel fyrir lok febrúarmánaðar ef tíðarfarið verður hag- stætt. Þrátt fyrir að línuskipin eigi verulega möguleika á að slá sér rækilega upp á tvöföldunartímanum þá eru margir línuútgerðar- menn meðal hörðustu andstæðinga línutvöföldunarinnar. Meðal þeirra er Guðmundur Kristjánsson, framkvæmdstjóri útgerðar Fiskverkunar Kristjáns Guðmundssonar á Rifi, sem gerir út þrjú stærstu línuskipin, Tjald SH, Tjald II SH og Eldborgu RE. Guðmundur Kristjánsson Myndir Gunnar iÉ Fiskifréttir hittu Guðmund að máli sl. þriðjudag en hann var þá önnum kafinn við að undirbúa brottför Tjaldanna og Eldborgar en öll skipin áttu að halda til veiða þá um kvöldið. Tjaldur SH kom í síðustu viku úr tilraunaveiðiferð á Reykjaneshrygginn og var afli skipsins um 70 tonn af hausaðri og frystri keilu og karfa að verðmæti tæpar 13 milljónir króna. Utgerðin kostaði sjálf þessa tilraun og segja má að áhöfn skipsins hafi einnig lagt sitt af mörkum því hlutur hvers og eins var ekki ýkja hár þrátt fyrir að veiðiferðin hafi stað- ið í tæpan mánuð. Að sögn Guðmundar fékkst dýrmæt reynsla í veiðiferðinni og hann segir ljóst að þráðurinn verði tekinn upp að nýju næsta vor eða sumar. — Við erum reynslunni ríkari en það er þó ljóst að til þess að geta vænst þess að ná árangri á þessum slóðum þá þurfum við að kanna svæðið miklu betur. Það er slæmt að vera einskipa á tilraunaveiðum en vonandi sjá stjórnvöld eða Haf- rannsóknastofnun sér fært að styrkja veiðarnar með einum eða öðrum hætti. Við höfum átt í við- ræðum við Hafrannsóknastofnun um að taka þátt í tilraunaveiðum á Reykjaneshryggnum undanfarin þrjú ár en því miður þá virðist eng- inn áhugi vera á línuveiðum hjá stofnuninni. Við höfum boðist til að leggja til skip ef Hafrannsókna- stofnun sæi sér fært að skipuleggja veiðarnar og senda fiskifræðing með skipinu en við höfum aldrei fengið viðbrögð við þessum til- mælum, segir Guðmundur en hann segir að það sé sárt að á sama tíma, sem línuveiðarnar virðast vera algjörlega hornreka í íslenska sjávarútvegskerfinu, þá streymi japönsk línuveiðiskip til hafnar í Reykjavík eftir að hafa stundað túnfiskveiðar einhvers staðar sunnan íslensku landhelginnar. Gamlir afturhaldsseggir og niðurrifsmenn Guðmundur segir að því miður hafi lengst af verið litið á línuveið- ar sem nokkurs konar tómstunda- gaman. Umræðan um línuveiðarn- ar hafi verið einskorðuð við línu- tvöföldunina og þá fjóra mánuði sem hún hefur staðið. Floti línuskipa hélt til veiða sL þriðjudagskvöld: Línutvöföldunin er aðal- vandi iínuútgerðanna — rætt við Guðmund Kristjánsson framkvæmdastjóra útgerðar Fiskverkunar Kristjáns Guðmundssonar Tjaldur SH í Reykjavíkurhöfn að ekki skuli hafa verið pólítískur vilji til þess að málið næði fram að ganga. — Þeir, sem lögðust gegn af- námi línutvöföldunarinnar, voru gamlir afturhaldsseggir og niður- rifsmenn sem áttu engra hagsmuna að gæta í þessu máli. Einhverjir þeirra stunduðu reyndar línuveið- ar á sínum tíma í fjóra mánuði á ári og ég hef heyrt að einhverjir þeirra hyggist taka þátt í kapphlaupinu nú, segir Guðmundur en hann seg- ir að afleiðing þessa kapphlaups um tvöföldunarkvótann verði aðeins sú að hver og einn beri minna úr býtum. Aflinn hefur aukist og tilkostnaðurinn sömuleiðis Guðmundur segist sáttur við hugmynd sjávarútvegsráðherra um að skipta tvöföldunarpottinum að hluta til á milli útgerða línu- skipanna en að afgangnum verði síðan skipt á milli allra skipa. Guð- mundur vill ekki tjá sig um æski- legt hlutfall á skiptingu tvöföldun- arkvótans en segir það sársauka- laust að fleiri en línuskipin fái hluta af kökunni ef það gæti orðið til þess að sátt næðist um málið. — Ég þarf ekkert að kvarta yfir — Hvorki stjórnvöld eða aðrir virðast gera sér grein fyrir því að línuveiðarnar eru alltof dýr út- gerðarmáti til þess að aðeins sé hægt að stunda þær í fjóra mánuði á ári. Menn hafa staðið frammi fyrir því að velja og hafna en þeir, sem hafa sérhæft sig í línuveiðum, hafa því miður ennþá ekki verið teknir alvarlega af einhverjum ástæðum, segir Guðmundur en hann segir línuútgerðina vera það dýra, vegna fjárfestinga í beitning- arvélum og línum, að ekki tjái að skipta yfir á annars konar veiðar og stunda þær meðfram línuveið- unum. — Þetta er alvöru útgerð sem stunda verður árið um kring. Okk- ar aðalvandi í dag er línutvöföld- unin. Við höfum unnið að því baki brotnu undanfarin ár að aðlaga okkur að aflamarkskerfinu og það gengur ekki að inni í því kerfi sé bullandi sóknarmark í fjóra mán- uði á ári, segir Guðmundur en hann segir að það hafi verið sorg- legt að lítill hópur útgerðarmanna hafi ekki viljað hlusta á sjávarút- vegsráðherra sl. vor er hann lagði Landað úr Tjaldi SH. Aflinn var alls um 70 tonn af hausuðum karfa og keilu að verðmæti tæpar 13 milljónir til afnám línutvöföldunarinnar og króna EIMSKj^

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.