Fiskifréttir - 03.11.1995, Side 13
FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. nóvember 1995
13
okkar hlut á tvöföldunartímanum
undanfarin ár. Okkar reynsla er sú
að aflinn hefur aukist jafnt og þétt
en hinu er ekki að leyna að allur
tilkostnaður hefur vaxið að sama
skapi. Við erum t.d. að beita inn-
fluttum smokki, sem kostar allt að
110 krónur hvert kíló, á móti síld-
inni, sem kostar 30 krónur, til þess
að freista þess að auka þorskafl-
ann. Ef pottinum yrði skipt á milli
skipanna þá myndi tilkostnaður
vegna veiðanna minnka til muna
og stöðugleikinn aukast. Þá má
heldur ekki gleyma því að það er
slæmt að etja mönnum saman í
bullandi sóknarmarki í svartasta
skammdeginu þegar allra veðra er
von. Sóknin er komin út í öfgar og
ég er logandi hræddur um að slys
geti hlotist af. Við njótum þess
reyndar að vera með stærstu og
öflugustu skipin en það eru margir
sem róa á litlum og vanbúnum
skipum í slæmum veðrum vegna
línut vöföldunarinnar.
Að sögn Guðmundar munu
ýmsir aðrir ókostir línutvöföldun-
arinnar koma í ljós á komandi vik-
um. Hann nefnir sem dæmi að fisk-
markaðirnir hafi verið í þorsksvelti
í langan tíma en nú megi búast við
því að þorskur hrúgist inn á mark-
aðina og að verðið hrapi í kjöl-
farið.
— Pað gengur ekki, að mínu
mati, að svelta markaðina af
þorski í átta mánuði á ári en kaf-
færa þá svo í fjóra.
Óformlegur hópur
línuútgerðarmanna
innan LÍÚ
Guðmundur segir að útgerðar-
menn línuskipanna, sem gerð eru
út árið um kring, séu þokkalega
ánægðir með það hvernig forysta
Landssambands íslenskra útvegs-
manna hefur tekið á þeirra málum.
— Mér finnst forysta LIU orðin
jákvæðari gagnvart línuútgerðun-
um en húnvare.t.v. fyrir nokkrum
árum. Við, sem stundum línuút-
gerð allt árið, höfum þannig hist
innan LÍÚ og borið saman bækur
okkar. Þetta er óformlegur hópur
u.þ.b. 20 útgerðarmanna og til-
gangurinn með þessum fundum er
að leita leiða til þess að styrkja
línuútgerðina. Það vona ég að tak-
ist og að litið verði á línuveiðarnar
sem alvöru útgerðarmáta í fram-
tíðinni, segir Guðmundur Kristj-
ánsson.
Frettir
Síldarkvótmn uppseldur
„Ég held að nú sé búið að ráðstafa
öllum þeim sfldarkvótum sem á
annað borð voru í boði. Verðið
steig hærra og hærra og fór hæst í
100 tonn af þorski eða 128 tonn af
rækju á móti einum sfldarkvóta
(1.386 tonnum),“ sagði Björn Jóns-
Kolmunna-
afíinn
í tilefni umræðna um kolmunna-
veiðar hér við land birtum við
meðfylgjandi töflu lesendum til
fróðleiks um heildarkolmunnaafl-
ann í N-Atlantshafi og veiðireynslu
íslendinga frá 1972-1989.
Kolmunnaafli í
Norður-Atlantshafi
Ar ísliuid [ijiírtii-
1972 634 44.022
1973 3.212 75.564
1974 4.349 81.780
1975 1.297 80.330
1976 8.789 128.942
1977 15.778 238.013
1978 34.777 574.812
1979 19.096 1.090.726
1980 9.934 1.092.617
1981 15.021 870.808
1982 1.689 544.829
1983 7.077 539.237
1984 105 610.603
1985 - 652.776
1986 - 793.904
1987 - 631.615
1988 - 522.575
1989 4.977 591.738
Samtals 126.735
son hjá kvótamiðlun LIÚ í samtali
við Fiskifréttir. Það svarar til þess
að kílóið af óveiddri sfld hafi kom-
ist í 6,92 krónur og allur kvótinn í
9,6 milljónir króna.
Björn tók fram að sáralítið af
síldarkvóta hefði farið fyrir pen-
inga, viðskiptin hefðu fyrst og
fremst falist í skiptum á veiðiheim-
ildum. Að mati Björns hafði
loðnuleysið mikil áhrif á verðið á
sfldarkvótanum, sem næstum þre-
faldaðist í verði milli ára. Bræðsl-
urnar skorti hráefni og buðu hátt
hráefnisverð sem aftur ýtti kvóta-
verðinu upp.
„Annars er frekar rólegt yfir
kvótaviðskiptum núna. Það er dá-
lítið framboð af leiguþorski en lítil
sala undanfarna daga. Leigukvót-
inn er boðinn á 95 kr/kg. Hins veg-
ar er alltaf sama eftirspurnin eftir
varanlegum kvótum en framboðið
lítið sem ekkert. Þeir slattar sem
ég hef selt af þorskkvóta hafa farið
á 460 krónur kflóið,“ sagði Björn
Jónsson.
VINUR IS-8
Vinur (S (áður Orri ÍS)
✓
^fjskum útgerð og áhöfn til hamingju með breytingarnar á skipinu
og óskum þeim velfarnaðar með verksmiðjuuppgerðu
MUSTAD línusamstœðuna!
Atlas
Mustad
Borgartúni 24 • Pósthólf 8460 • 128 Reykjavík • Sími: 562 1155 • Fax: 561 6894
Skipa-og
kvótaskrá
Sjávarfrétta '95-'96
SKIPA- OG
KVÓTASKRA
Sjávarfrétta '95 / '96 einnig fáanleg á
TÖLVUTÆKU
FORMI
I skránni er að finna upplýsingar um
stœrð og gerð allra íslenskra skipa
ásamt heimilisföngum, símanúmcrum,
faxnúmerum og kennitölum útgerða,
- svo og kvóta skipanna.
□ FRÓÐI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Seljavegi 2,
101 Reykjavík,
sími 515 5500