Fiskifréttir - 20.02.1998, Blaðsíða 4
4
FISKIFRÉTTIR föstudagur 20. febrúar 1998
FRETTIR
Frétti
Hugmyndir LS um að taka inn báta allt að 75 brL:
Mörgum sárnar misréttið sem Alþingi
_ hefur leitt í lög Ragnarsson formaður LÍÚ
ERT ÞÚ ASKRIFANDI?
Ert þú síöastur í röðinni að lesa FISKIFRÉTTIR?
Fáðu þltt eigið eintak sent í pósti og þú fylgist
með frá byrjun.
Nýir áskrifendur fá fyrsta mánuðinn frían, auk
þess sem handbókin SJÁVARFRÉTTIR fylgir
áskriftinni, en hún kemur út árlega og inniheldur
hafsjó hagnýtra upplýsinga.
Hafðu samband í síma 515 5500
og leitaðu frekari upplýsinga.
— Það er frjáls aðild að
LÍÚ og við munum aldrei
leggja neinar hömlur á okkar
félagsmenn. í þessu sambandi
má reyndar nefna að við fá-
um daglega fyrirspurnir frá
eigendum báta undir 10
brúttórúmlestum sem vilja
ganga í LÍÚ og telja sig eiga
meiri samleið með okkur en
Landssambandi smábátaeig-
enda. Þrátt fyrir það hyggj-
umst við ekki breyta okkar
samþykktum og munum eftir
sem áður gæta hagmuna fé-
lagsmanna sem gera út báta
yflr 12 brúttórúmlestum.
Þetta sagði Kristján Ragnars-
son, formaður LÍÚ, er Fiskifréttir
leituðu álits hans á áformum for-
ráðamanna LS um að fá lögum
breytt þannig að eigendur báta allt
að 75 brúttórúmlestum geti gengið
í samtökin.
— Ég skil mjög vel að eigendum
margra minni báta innan LIÚ og
reyndar aflamarksbáta innan LS
sárni misréttið sem viðgengst á
milli bátastærða. Ég vek athygli á
því að Alþingi hefur kosið að hygla
ákveðnum útgerðarflokkum og í
dag eru margir 5,9 tonna bátar á
þorskaflahámarki komnir með
margfaldar aflaheimildir ef miðað
er við minni aflamarksbátana. Það
er í hæsta máta ósanngjarnt að bát-
ar á þorskaflahámarki megi veiða
óheft með línu allar aðrar tegundir
en þorsk. Bátamenn innan LÍÚ
vilja hins vegar stundum gleyma
því að togararnir hafa misst ná-
kvæmlega jafn mikið af veiðiheim-
ildum sínum yfir til smábátaflotans
og bátar á aflamarki og það er ekki
rétt, sem haldið hefur verið fram,
að LIÚ dragi taum togaraútgerða
á kostnað bátaútgerða. í þessu
máli ber Alþingi Islendinga alia
ábyrgð og við munum eftir sem
áður berjast fyrir hagsmunum allra
okkar félagsmanna, segir Kristján
Ragnarsson en hann segist ekki
óttast að það stefni kjarasamning-
um í tvísýnu í framtíðinni þótt LS
kunni að fá samningsumboð fyrir
báta stærri en 12 brúttórúmlestir.
Þýskalandsmarkaður:
140 kr. fyrir besta karfann
Seld voru 307 tonn af íslenskum ferskfiski á markaðnum í Bremer-
haven dagana 9. til 12. febrúar sl. Yerðmæti aflans reyndist vera tæpar
40 milljónir króna og meðalverðið var 3,20 þýsk mörk fyrir kílóið eða
tæpar 130 kr/kg.
Uppistaða aflans var góður karfi, alls 224 tonn, og var meðalverðið
um 140 kr/kg. Fyrir 15 tonn af B-karfa fengust tæpar 100 kr/kg í
meðalverð. Fyrir smæsta karfann, 44 tonn, fengust hins vegar um 72
kr/kg. Lítið var selt af ufsa, aðeins sjö tonn, og var meðalverðið um
120 kr/kg.
Breytingar á Víkingi AK
fyrir 50 milljónir króna
Við óskum útgeró og áhöfn til hamingju
með skipið. Skipið er allt málað
með HEMPELS skipamálningu frá
Slippfélaginu Málningarverksmiðju.
—— Slippfélagiö
Málningarverksmiöja
Dugguvogi 4 • 104 Reykjavík • Sími: 588 8000 • Fax: 568 9255
VÍKINGUR AK 100
Nótaskipið Víkingur AK 100 er komið til loðnuveiða eftir nokkrar
breytingar sem gerðar voru á skipinu hjá Svendborg Værft í Danmörku.
Að sögn Sveins Sturlaugssonar, utgerðarstjóra hjá Haraldi Böðvarssyni
hf. á Akranesi, nam kostnaður vegna breytinganna um 50 milljónum
króna.
Víkingur AK var kominn til
Svendborg 8. desember sl. og var
verkinu lokið um miðjan janúar.
Taka þurfti upp aðalvél skipsins en
auk þess var komið fyrir nýrri 250
KW Caterpillar ljósavél frá Heklu
hf. Víkingur AK er útbúinn með
tveimur hliðarskrúfum og var skipt
um aftari hliðarskrúfuna. Nýja
hliðarskrúfan, sem er 650 hestöfl,
er af gerðinni Ulstein Propeller
90TV, sem Héðinn Smiðja hf. hef-
ur umboð fyrir, og kemur hún í
stað 370 hestafla hliðarskrúfu. Er
hún glussadrifin. Þá var skipt um
framskrúfuvél í skipinu og er nýja
vélin 600 hestafla Caterpillarvél
frá Heklu hf. Að sögn Sveins verð-
ur fremri hliðarskrúfan notuð enn
um sinn en með tilkomu nýju fram-
skrúfuvélarinnar verður hægt að
stækka skrúfuna til muna þegar
þess gerist þörf.
Af öðrum breytingum má nefna
að settur var nýr framgír frá norska
fyrirtækinu Hytak við aðalvélina
og nýtist hann fyrir dælukerfi
vegna kraftblakkar og spilkerfis.
Þá var skipið málað með Hempels
skipamálningu frá Slippfélaginu
Málningarverksmiðju.
Hönnun • smíði • viðgerðir • þjónusta
STÓRÁSI 6 • 210 GARÐABÆR • SÍIVII 565 2921 • FAX 565 2927