Fiskifréttir - 12.09.2003, Blaðsíða 2
2
FISKIFRETTIR 12. september 2003
SJAVARUTVEGUR
KARLINN I BRUNNI
Grálúðuafli við Isiand,
A-Grænland og
Færeyjar 1991-2002
Þús. tonn □ Afli við fsland
45 f □ Afli annana
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Ar '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 '99 '00 '01 '02
FISKMARKAÐIR
Allir markaðir (Islandsmarkaður) dagana 30. ágúst - 5. sept. 2003 (Tölur fyrir slægðan fisk eru á undan tölum fyrir óslægðan fisk) Meðal- Lægsta Hæsta Tegund Magn verð verð verð kg kr./kg kr./kg kr./kg
ÞORSKUR 92.370 155,85 7,00 300,00
ÞORSKUR 143.466 135,65 70,00 229,00
ÝSA 146.268 102,03 17,00 231,00
ÝSA 67.209 142,37 47,00 242,00
UFSI 44.471 37,37 7,00 96,00
UFSI 3.549 20,79 6,00 37,00
LÝSA 1.311 14,61 5,00 28,00
LÝSA 363 20,32 5,00 37,00
GULLKARFI ósl. 42.534 62,16 5,00 129,00
LANGA 8.964 67,83 10,00 79,00
LANGA 2.005 65,03 10,00 74,00
BLÁLANGA sl. 6.958 64,53 22,00 108,00
KEILA 23.588 58,63 6,00 78,00
KEILA 2.335 33,12 6,00 54,00
STEINBÍTUR 70.851 119,26 5,00 154,00
STEINBÍTUR 5.701 85,06 54,00 129.00
TINDASKATA 47 21,00 21,00 21,00
TINDASKATA 3.722 10,00 10,00 10,00
HLÝRI 51.866 117,84 74,00 146.00
HLÝRI 350 103,19 76,00 141,00
SKÖTUSELUR 15.323 183,03 110,00 398,00
SKÖTUSELUR 20 157,80 157,00 159,00
SKATA sl. 989 80,57 10,00 141,00
HÁFUR 56 15,00 15,00 15,00
HÁFUR 13 12,00 12,00 12,00
LÚÐA 8.619 314,54 112,00 627,00
LÚÐA 14 343,00 226,00 450,00
GRÁLÚÐA sl. 441 177,85 136,00 195.00
SKARKOLI 71.049 147,01 19,00 214.00
SKARKOLI 171 149,41 149,00 184,00
ÞYKKVALÚRA sl. 12.585 197,26 117,00 240,00
LANGLÚRA 723 96,12 14,00 105,00
LANGLÚRA 3.644 104,50 100,00 107,00
STÓRKJAFTA sl. 80 30,00 30,00 30,00
SANDKOLI 9.069 69,13 30,00 217,00
SANDKOLI 24 65,00 65,00 65,00
SKRÁPFLÚRA 1.835 53,77 5,00 100,00
SKRÁPFLÚRA 346 50,00 50,00 50,00
SANDHVERFA sl. 3 493,00 493,00 493,00
KINNFISKUR 18 632,00 632,00 632,00
GELLUR 68 614,88 581,00 626,00
NÁSKATA 470 10,29 5,00 14,00
UND.ÞORSKUR 26.598 107,56 53,00 125,00
UND.ÞORSKUR 12.184 71,33 44,00 115,00
UND.ÝSA 17.127 43,78 25,00 61,00
UND.ÝSA 3.265 37,63 23,00 59,00
KEILUBLAND 32 30,00 30,00 30,00
STEINB./HLÝRI sl. 38 52,00 11,00 93,00
SKARK. ÞYKKVAL sl. 76 134,00 134,00 134,00
BLEIKJA sl. 157 96,44 25,00 148,00
FLÖK/ÝSA 705 150,00 150,00 150,00
FLÖK/ÞORSKUR 100 587,50 550,00 700,00
HVÍTASKATA sl. 52 6,81 5,00 13,00
903.823 116,41
Arni Sigurðsson skipstjóri
á Arnari HU
Frystitogarinn Arnar HU frá Skagaströnd hefur að lík-
indum sett nýtt met í aflabrögðum á íslandsmiðum í síð-
ustu veiðiferð en skipið veiddi 1.026 tonn af fiski sem gerðu
645 tonn af afurðum. Uppistaða aflans eða rúm 700 tonn
upp úr sjó var ufsi, en auk þess fengust rúmlega 270 tonn
af þorski og sín ögnin af hverju af öðrum tegundum. Afla-
verðmætið nam 112 milljónum króna. Veiðiferðin tók alls
32 daga en skjótast þurfti í land nokkrum dögum áður en
túrnum lauk til þess að skapa rými fyrir aukinn afla.
Árni Sigurðsson skipstjóri í brúnni. (Mynd/Fiskifréttir: Heiðar
Marteinsson).
Ihuga þyrfti að loka Torg-
inu fyrir grálúðuveiðum
„Við vorum á Halanum allan
tímann og aðallega á höttunum
eftir ufsa enda áttu við eftir
nokkurn ufsakvóta. Auk þess
máttum við taka dálítið af þorski.
Halinn er reyndar þekktur fyrir
allt annað en ufsaveiði en þó var
oft mikil ufsagengd þar á árum
áður. í fyrra fór að verða vart við
ufsann í töluverðum mæli á Hal-
anum og núna er óvenjumikið af
honum á þessum slóðum og
reyndar víðar við landið. Ufsinn
er greinilega í verulegri upp-
sveiflu," sagð Árni.
Ýsuslóðin lokuð
„Ýsustofninn á líka að vera á
hraðri uppleið og kvótinn var auk-
inn í samræmi við það eða upp í
60.000 tonn núna í byrjun ný
sfiskveiðiárs. Vandinn er hins
vegar sá að erfiðlega gengur að
finna ýsuna, að minnsta kosti í
augnablikinu. Staðreyndin er sú
að ýsan er lokuð inni í gríðarstór-
um reglugerðarhólfum hérna fyrir
vestan og norðan og því náum við
ekki til hennar. Við reyndum um
daginn að fá því flýtt að stóra
hólfið norður af Horni yrði opn-
að, en það er jafnan opið frá 15.
október til áramóta. Þessi mála-
leitan okkar hefur engan árangur
borið. Það gerist ekkert. Við höf-
um fregnir af því frá trillum og
öðrum bátum að þarna sé mikið af
góðri ýsu. Þá höfum við sjálfir
orðið varir við það, þegar við höf-
um dregið í námunda við línuna,
að mjög góð ýsa hefur verið að
stinga sér þaðan út. Þrátt fyrir
þennan mikla ýsukvóta sem út-
gefinn hefur verið fáum við ekki
að sækja ýsuna þar sem hún heldur
sig. Ég skil ekki af hverju ekki má
opna hólfið strax til að auðvelda
mönnum veiðarnar og dreifa sókn-
inni yfir lengri tíma. Það mætti
hafa eftirlitsmanna á svæðinu sem
gæti lokað ef þurfa þætti. Kerfið er
ótrúlega ósveigjanlegt. Þegar þessi
reglugerðarhólf voru sett á sínum
tíma til þess að vernda ungfisk var
sjórinn miklu kaldari en hann nú
er. Með þessum aukna sjávarhita
veiðum í eitt til tvö ár eins og gert
var hérna um árið. Eins og nú er
ástatt fær lúðan aldrei frið. Það eru
alltaf einhverjir að skarka á henni.
Hún nær sér ekki upp á þessum
stað og hún fæst ekki annars staðar.
Auðvitað vonar maður að ástandið
lagist þegar líður fram á haustið.
Veiðin er ekki svipur hjá sjón mið-
að við það sem var fyrir tveimur
árum síðan. Fiskifræðingarnir
virðast ekkert vera að spá í ástand
„Fiskifræðingarnir virðast ekkert
vera að spá í
gráiúðuna. Þeir
hafa a.m.k.
ekkert samband . WI w
Arnar HU (Mynd/Fiskifrettir:
við okkur“ Heiðar Marteinsson).
hafa aðstæður breyst og þvi þarf að
taka tillit til þess,“ sagði Árni.
Hvar er grálúðan?
Árni segir að öðru máli gegni
um grálúðuna en um ufsann og ýs-
una sem nú séu í uppsveiflu. „Hvar
er grálúðan sem við eigum að
fiska? Ég skil ekki hvaða forsend-
ur liggja að baki ráðleggingum
fiskifræðinga um þennan mikla
grálúðukvóta. Grálúðan fæst hrein-
lega ekki. Ég kalla það ekki afla
þegar ekki tekst að skrapa upp
nema 4-5 tonn af grálúðu á sólar-
hring við bestu skilyrði hérna úti á
Hampiðjutorgi. Ég held að menn
verði að fara að leiða hugann að
því að loka Torginu fyrir grálúðu-
grálúðustofnins. Þeir hafa að
minnsta kosti ekkert samband við
okkur. Sjávarútvegsráðherra hafði
það á orði einhvern tímann að hann
ætlaði að taka meira tillit til fiski-
fræði sjómannsins en gert hefði
verið hingað til. Kannski rétt sé að
auglýsa eftir efndum á því fyrir-
heiti,“ sagði Árni.
Loðnan veidd frá
þorskinum
Talið best að þorskinum og seg-
ist Árni ekki taka undir með þeim
sem telju að gríðarleg þorskgengd
sé við landið. „Það var reyndar góð
veiði hjá skipunum á Halanum um
það leyti sem við vorum þar í síð-
asta túr, en skipin voru ekki mörg
og aflinn virtist vera á afmörkuðu
svæði. Það voru kannski á bilinu
6-10 skip að veiðum, en ég er
hræddur um að ef komin væru
30-40 skip á svæðið yrði harla lít-
ið að hafa. Ég er ekki viss um að
aflaráðgjöf Hafró í þorskinum sé
svo íjarri lagi þegar öllu er á
botninn hvolft. Annars er ég
þeirrar skoðunar að setja ætti
fastan kvóta á þorskveiðarnar,
svona 220-250 þúsund tonn á
ári,“ segir Árni.
Arnar HU hefur farið tvær
veiðiferðir í Barentshafið á þessu
ári, þá fyrri snemma árs í norsku
lögsöguna og þá síðari í júlímán-
uði á gráa svæðið milli lögsagna
Noregs og Rússlands. Mokafli var
í bæði skiptin. „Veiðiferðin í sum-
ar var mettúr miðað við tímann
sem hún tók. Það liðu þrjár vikur
frá því að við lögðum af stað frá
íslandi og þar til við komum heim
aftur og afraksturinn var rúm 700
tonn upp úr sjó. Það er miklu
meiri þorskgengd í Barentshafi en
hér við ísland enda hafa þeir frið-
að loðnuna í mörg ár. Hér heima
vantar æti fyrir þorskinn. Að mín-
um dómi er gengið hættulega
nærri loðnunni með veiðum hér
við land. Loðna sést varla lengur í
fiskmaga. Fiskurinn er fullur af
krabbadrasli og öðru dóti. Maður
er hættur að sjá loðnurykteppi yfir
slóðinni eins og var fyrir vestan í
gamla daga. Trollin komu kannski
bunkuð upp af loðnu en slíkt sést
ekki lengur. Ég held að menn
þurfi að fara að huga alvarlega að
því að minnka loðnuveiðarnar
með tilliti til þess að loðnan er
mikilvægasta fæða þorsksins,"
sagði Árni Sigurðsson.
Útgefandi:
Framtíðarsýn hf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
FRETTIR
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Guðjón Einarsson
gudjon@fiskifrettir.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Kjartan Stefánsson
kjartan@fiskifrettir.is
Auglýsingastjóri:
Hertha Árnadóttir
hertha@fiskifrettir.is
Ritstjórn:
Sími: 511 6625
Fax: 511 6692
gudjon@fiskifrettir.is
Sími: 511 6624
Fax: 511 6692
Auglýsingar:
Sfmi: 511 6623
Fax: 511 6692
Áskrift og innheimta:
Sími: 511 6622
Fax: 511 6692
Ljósmyndir:
Ljósmyndadeild DV
Prentvinnsla:
Gutenberg
Askriftarverð fyrir hvert tölublað:
Greitt m. greiðslukorti: 335 kr/m.vsk
Greitt m. gíróseðli: 380 kr/m.vsk
Lausasöluverð: 447 kr/m.vsk
Handbókin SJÁVARFRÉTTIR fylgir
áskrift að Fiskifréttum, en hún kemur
út í byrjun september ár hvert.