Fiskifréttir


Fiskifréttir - 05.03.2004, Blaðsíða 1

Fiskifréttir - 05.03.2004, Blaðsíða 1
ISSN 1017-3609 Ört vaxandi þjónusta við sjávarútveginn Gæði vörunnar, reynsla starfsmanna og áreiðanleiki gagnvart viðskiptavinum eru okkar aðalsmerki ísfell ehf • Fiskislóð 14 • 121 Reykjavík • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is Mjög góð veiði er á úthafsrækju — Múlaberg Sl með um 50 tonn í einni veiðiferð Mjög góð veiði hefur verið á úthafsrækju fyrir norðan land að undanförnu og landaði Múla- berg SI til dæmis um og yfir 50 tonnum hjá Þormóði ramma- Sæbergi hf. á Siglufirði nú í vik- unni. Rækjan fékkst í Húnaflóa- dýpinu og fyrir miðju Norður- landi. Um 200 til 240 stykki af rækju voru í kílóinu. „Þetta var mun betri veiði í febrúar en verið hefur undanfarið og vonandi er þetta aðeins byrjunin á góðu ári. Ég held að minnsta kosti að það sé örugglega meira en ár síðan við höfum farið yfir 50 tonnin í einni veiðiferð. ÖIl „Rammaskipin“ voru að gera það gott síðustu daga og þau fengu frá 45 tonnum og upp í 50 tonn í veiði- ferð. Flest ísrækjuskip sem voru á veiðum á sama tíma fengu jafn- framt ágætan afla. Það er einnig á- nægjulegt að ísrækjuskipunum virðist vera að fjölga frá því í fyrra en hátt í 20 skip eru farin að stunda þessar veiðar,“ sagði Kristján Bjarnason, skipstjóri á Múlaberg- inu, í samtali við Fiskifréttir. Sjá einnig bls. 2. Eftir slaka veiði í netin í haust og vetur hjá bátum sunnan lands og vestan er aflinn víða að glæðast. Ágæt netaveiði hefur til dæmis verið í Breiðafirði að undanförnu og sumir bátar hafa einnig fengið þokkalegan afla í Faxaflóa. Fremur rólegt hefur verið hjá netabátum sem gera út frá Sandgerði en reitingsafli hefur fengist þegar gefur á sjó. Myndin hér að ofan er tekin í netaróðri um borð í Kristbjörgu II KE í síð- ustu viku en nánar er sagt frá róðrinum á bls. 6-7. (Mynd/Fiskifréttir: Kristinn Benediktsson). Útgerð Happasæls KE: Lætur smíða fyrir sig 32 torma plastbát — allt gert til að drepa niður einyrkja i útgerð, segir Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, útgerðarmaður Happasæls Hjá Seiglu ehf. er nú að hefj- ast smíði á 32 brúttótonna plastfiskibáti fyrir Happa ehf. í Njarðvík sem gerir út Happa- sæl KE. Þetta verður stærsti plastbáturinn sem smíðaður hefur verið hér á landi. Nýi bát- urinn verður afhentur í septem- ber í haust og fer hann á neta- veiðar. Happasæll KE er 357 brúttótonn að stærð og kom hingað nýsmíðað- ur frá Kína árið 2001. Talið er að Happasæll KE verði settur á sölu- skrá en Guðmundur Rúnar Hall- grímsson, útgerðarmaður skipsins, vildi ekki tjá sig um það á þessu stigi. „Við erum að vinna í þessum málum og það kemur í ljós síðar hvort Happasæll verði seldur. Ég er orðinn fullorðinn maður og hef fengið mig fullsaddan af fiskveiði- stjórnunarkerfinu. Ég fæ heldur ekki séð að yngra fólkið sem sest hefur á Alþingi ætli að gera nokk- uð í því að bæta stjórn fiskveiða. Allt er gert til að drepa niður ein- yrkja í útgerð og engan þarf því að undra þótt maður vildi minnka við sig,“ sagði Guðmundur Rúnar. Loðnuvertíðin: Þrefalt meira óveitt af kvóta — en í fyrra á sama tíma Ljóst er að allt þarf að ganga í haginn á næstu vikum til þess að úthlutaður loðnu- kvóti náist. Síðastlið- inn miðvikudag, 3. mars, var aðeins rúm- ur helmingur kvótans veiddur, en á sama tíma í fyrra voru 17% eftir af kvóta þeirrar vertíðar. Eftirstöðvar kvótans nú um miðja vikuna voru 360.000 tonn en um þetta leyti á síðasta ári voru 130.000 tonn óveidd af kvótanum. Þá voru um það bil þrjár vikur eftir af vertíðinni en óvíst er hversu lengi hún endist að þessu sinni. Því stjórnar veðurfarið og ástand loðnunnar. Eins og fram hefur komið í Fiskifréttum er bræðslugeta verksmiðj- anna í landinu 15-20 þúsund tonn á sólarhring en sigl- ingar með afla langa vegu valda frátöfum frá veiðum. Ummrnk ÍSl Ra n nsóKnirásv.nay; SM, fiw qlussayinaai RS(MiQjCS2S0[migQDD,[ m_______---------- EBAMIIÐIN-ER’R’A'FBRIEHil! |WÉSfmiím email: naust@naust.is

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.