Fiskifréttir


Fiskifréttir - 05.03.2004, Blaðsíða 9

Fiskifréttir - 05.03.2004, Blaðsíða 9
FISKIFRÉTTIR 5. mars 2004 FRÉTTIR Mynd: Jón Páll Ásgeirsson Seigla afhendir nýja Ósk KE 5: 25 tonna plast- bátur með fellikili — knúinn tveimur 450 ha vélum Ný Osk KE 5 var afhent fyrir skömmu. Báturinn var smíðaður hjá bátasmiðjunni Seiglu ehf. fyrir Utgerðarfélagið Osk ehf. í Keflavík. Hann er 25 brúttótonn eða 18,7 brúttórúmlestir að stærð og kemur hann í stað 80 brúttótonna báts með sama nafni. Nýja Oskin er fullplanandi og með fellikjöl og er þetta stærsti plastbát- urinn til fiskveiða sem sjósettur hefur verið hérlendis. Hann verð- ur gerður út til netaveiða. „Ég viðurkenni að ég var í upp- hafi hálfkvíðinn að fara af stærri báti yfir á svona miklu minni bát en þær áhyggjur reyndust með öllu ástæðulausar," sagði Einar Þ. Magnússon skipstjóri og útgerðar- maður Oskar KE í samtali við Fiskifréttir. „Ég er alveg heillaður af því hve nýi báturinn kemur vel út. Ég lenti til dæmis í suðvestan- brælu í gær og báturinn var eins og önd á sjónum, flaut mjúklega upp og niður. Aður var maður stífúr í fótunum eftir að hafa staðið veltuna við slíkar aðstæður en núna finn ég ekki lengur fyrir því. Á bátnum er fellikjölur sem er 10 metra langur og nær 40 sentimetra niður úr bátnum. Um leið og ég er kominn á miðinn skelli ég fellikilinum niður, sem gerir það að verkum að báturinn veltur ekkert eftir það og var hann þó góður fyr- ir. Einnig má nefna að á bátnum er hliðarskrúfa sem tengd er við sjálfstýringuna. Þessi búnaður sér algjörlega um að halda réttri stefnu þegar maður er að draga. Það sannaðist vel í rokinu í gær,“ sagði Einar. Þess má geta að Einar hafði í huga að flytja sig yfir í króka- kerfið eftir að hann seldi eldri Óskina, en honum hefur síðan snú- ist hugur og ætlar hann að einbeita sér að netaveiðum. Tvær 450 ha vélar í bátnum eru tvær vélar af gerðinni Cummins og er hvor um sig 450 hestöfl. Ganghraði er 30 sjómílur en eigin þyngd bátsins er 18 tonn. Um borð er 5 tonn metra Palfinger krani sem notaður er fyrir netaniðurleggjara og netaspil og við löndun. Sjótankar sem taka 4 tonn af sjó eru tengdir við tölvu og hægt er að stilla það magn sem rennur í tankana og úr þeim. Um borð eru tvö blóðgunarkör með lyftanlegum botni og stórt þvottakar. í bátnum er vatnskerfi með heitu og köldu vatni. Lúkarinn er rúmgóður með svefnplássi fyrir ljóra. I honum eru öll þægindi til matargerðar, hvíldar og afþrey- ingar. Skipatæki Siglinga-, fiskileitar-, og fjarskiptatæki eru frá Brimrúnu ehf. Meðal tækjanna eru Furuno ratsjá, dýptar- mælir, GPS-áttaviti, sjálfstýring með bóg- skrúfustýringu, TELchart V3 fiski- veiði- og siglingatölva með tví- og þrívídd og c-map sjó- kortum. Við ratsjána, dýptarmæl- inn og siglingatölvuna eru tengd- ir þrír 19“ flatskjáir, einn snýr að dekki og er stjórnað með fjarstýr- ingu þaðan. Dýptarmælirinn tengist tveimur botnstykkjum, 28 og 200 kHz, auk hraða- og hita- nema. í skipinu er bógskrúfustýr- ing frá Brimrúnu sem einnig stýr- ir fellikili. Á veiðum vinnur stýr- ingin þannig að stýrisviðnám ræs- ir bógskrúfuna við ákveðið stefnufrávik. Þegar siglt er hrað- ar en á fjögurra sjómílna ferð slekkur stýringin á hliðarskrúf- unni, hífir upp fellikjölinn og skiptir yfir á eina stýrisdælu í stað tveggja. Við stýringuna eru tengd 2 rafmagnsneyðarhandstýri, inni og úti. Einar Þ. Magnús- son skipstjóri Helmingur Kínaskipanna hefur skipt um eigendur Sigurbjörg ST, eitt Kínaskipanna. (Mynd: Gunnar Jóhannsson). Sigurbjörg til Englands Gengið hefur verið frá sölu á Sigurbjörgu ST 55 til Englands. Skip- ið verður í framtíðinni notað til ýmiss konar hafrannsókna og sjó- mæiinga á vegum Plymouth Marine Laboratory. Sigurbjörg ST er 112 brúttótonna stálskip smíðað í Kína árið 2001. Milligöngu um söl- una hafði skipasalan Álasund ehf. í Keflavík. Um helmingur þeirra fiski- skipa sem smíðuð voru fyrir Is- lendinga í Kína og afhent á árun- um 2000-2002 hafa skipt um eig- endur. Alls voru 16 skip smíðuð fyrir íslenskar útgerðir á þessum tíma, þar af níu svokölluð fjölveiðiskip. Af þeim skipum sem seld hafa verið fóru fjögur til útlanda. Þetta eru miklar breytingar á eignarhaldi nýrra skipa á ekki lengri tíma. Yfirleitt hafa þessi skip hlotið góða dóma en breyttar forsendur hafa ráðið því að þau voru seld að því er næst verður komist. Um mitt sumar 2001 komu ljölveiðiskipin níu til landsins öll á einu bretti með flutningaskipi. Þessi skip eru 116 brúttótonn að stærð. Aðeins þrjú þeirra eru enn í eigu sömu útgerða og þau voru smíðuð fyrir. Það eru Rúna RE, Ársæll Sigurðsson HF og Vestri BA. Skipin sem seld hafa verið til útlanda eru: Ólafur KE sem fór til Grænlands, Eyvindur KE sem seldur var til Noregs og nú síðast var Sigurbjörg ST seld til Eng- lands. Skipin sem seld voru hér heima eru: Sæljón RE sem heitir nú Benni Sæm GK og Nesfiskur gerir út, Garðar BA sem heitir nú Sólborg RE og Utgerðarfélagið Tjaldur gerir út og loks Ymir BA sem ber nafnið Siggi Bjarna GK og Nesfiskur gerir út. Af stærri fiskiskipunum sem smíðuð voru í Kína á þessu tíma- bili eru Helga RE, Stígandi VE, Fossá ÞH og Happasæll KE enn í eigu sömu útgerða og þau voru smíðuð fyrir. Tvö stærri skipanna hafa verið seld: Guðni Ólafsson VE sem fór til Nýja-Sjálands og Björn RE sem seldur var til Vest- mannaeyja og heitir nú Smáey VE sem Bergur-Huginn gerir út. Loks má geta þess að eitt þessara skipa, vinnsluskipið Guðrún Gísladóttir KE, sökk við strendur Noregs árið 2002 þannig að af þessum 16 skip- um eru sjö í eigu upphaflegra aðila. Gunnar Jóhannsson, skipstjóri og útgerðarmaður Sigurbjargar ST segir í samtali við Skip.is að þröng kvótastaða bátsins hafi valdið því að ákveðið var að selja hann. - Það er fjölskyldufyrirtæki, sem gert hefur bátinn út frá því að hann kom nýr til landsins, og þeg- ar við keyptum hann þá urðum við að láta frá okkur hluta kvótans til þess að geta staðið í skilum. Það var ekki hægt að ná endum saman í útgerðinni miðað við það að vera trúr lögum og reglum og það kom auðvitað aldrei annað til greina, segir Gunnar. Báturinn var á hrefnuveiðum í fyrrasumar og Gunnar segist ætla að fá sér minni bát, 30 til 60 tonna, og stunda hrefnuveiðarnar á honum. Þess má geta að það var skipa- salan Álasund ehf. í Reykjanesbæ sem hafði milligöngu um sölu skipsins til Englands. NYIR TIMAR í skoðunum báta og skipa undir 400 brúttótonnum SKIPASKOÐUN ehf. býður allar almennar skoðanir og fyrsta flokks þjónustu. Sérhæfðir skoðunarmenn með mikla þekkingu og reynslu. SSkipaskoðun ehf - Skútahraun 2 220 Hafnarfjörður - GSM: 895 3100 Sími: 550 3100 - Fax: 550 3101 skip@skipaskodun.is - www.skipaskodun.is Skipaskoðun Rækjubátar óskast í viðskipti Dögun ehf á Sauðárkróki óskar eftir rækjubátum í viðskipti frá og með apríl byrjun. Nánari upplýsingar gefur Ágúst Guðmundsson í síma 453 5355 og 894 4650 Dögun ehf. Rækjuvinnsla á Sauðárkróki Dögun

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.