Dagrenning - 01.06.1939, Blaðsíða 18

Dagrenning - 01.06.1939, Blaðsíða 18
DAGRENNING 316 Hjmító frjptítr. ★ Fyrir nokkru síðan var þeim hjónunum Jónasi John- son og Ingibjörgu, haldið veg- legt samsæti í samkomuhúsi Fi'amnes bygðar í tilefni af þá nýlega afstaðinni giftingu þeirra. Samsætið var afar- fjölmennt, sem lýsti betur en nokkuð annað hinum miklu vinsældum þeina hjóna, víðs- vegar í sveitinni og lengra að. Samsætinu stýrði prestur bygðarinnar, séra Sigurður Ólafsson, af sinni alþekktu lipurð og ljúfmennsku. Gestir skemtu sér við ræðuhöld og söng, og neyttu beztu veitinga sem voru rausnarlega fram- bornar. Kvæði var þeim flutt frá þeim Djúpadals hjónum, Jón- asi og konu hans, og er það kvæði birt á öðrum stað hér í þessu blaði. ★ Sjónleikurinn ‘Misskiln- ingurinn,’' var sýndur í Fram- nes, Hnausa og Víðir, af leik- flokk frá Víðir. Aðsókn var góð í sumum plássunum, og mun fólk hafa haft ánægju af að horfa á þenna gamanleik. ★ Ofsa rigning og hagl kom hér þann 28. þ. m., og gerði haglið miklar skemdir á ökrum bænda. Á sumum stöðum er korn og kálgarðar alveg eyði- lagt; og gluggar í húsum víða brotnir. Haglbilur þessi fór yfir á þriggja til fjögra mílna breiðu svæði, tildæmis í bæn- um Arborg kom sama sem engin rigning og ekkert hagl. Aftur á móti gerði hagl tals- verðar skemdir í Geysirbygð- inni. ★ Á orði er haft, að talsvert af vegum hér í Víðir bygðinni verði mölbornir á þessu sumri. Annars eru vegir yfirleitt í góðu lagi og færir yfirferðar í flestum veðrum. Áreiðan- legajrafa meðráðamenn deild- arinnar, ekki legið á liði sínu, þegar til þess kom, að líta eftir hag deildarinnar. Samt mun nóg hafa verið að þeim fundið á liðnum árum. Það gengur svona fyrir manni. ★

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.