Heilsuvernd - 01.02.1972, Qupperneq 10
vita menn ekki. Þetta er þó eigi eina skýringin á sykursýki, því
að hún getur einnig stafað af truflunum á starfsemi lifrar, heila-
dinguls og annarra innkirtla.
Margir telja ofneyzlu sykurs og annarrar munaðarvöru aðal-
orsök sykursýki. Til þess bendir m.a. sú staðreynd, að í báðum
síðustu heimsstyrjöldum dró verulega úr sykursýki, og sömuleiðis
úr offitu og tannskemmdum, samfara því að sykurneyzla minnkaði.
Sem betur fer, er oft hægt að halda sykursýkinni í skefjum
með viðeigandi mataræði. Ber þar að leggja höfuðáherzluna á að
forðast venjulegan sykur og önnur sætindi, og geta þá flestir
neytt brauð- og mjölmatar í hófi, svo og ávaxta, bæði nýrra og
þurrkaðra, og jafnvel hunangs. Gervisykurefni eru varhugaverð,
hvort heldur cyclamat eða sakkarín, og þeirra er engin þörf, því
að menn geta vanið sig af að sykra mat og drykki. Grænmeti,
rótarávextir, ávextir, mjólkurmatur og önnur fæða úr jurta- og
dýraríkinu í sem náttúrlegustu ástandi tryggir sykursýkissjúkl-
ingum fullkomna næringu og öll þau efni, er líkaminn þarfnast; en
þeir verða vitanlega að láta ýmislegt á móti sér, forðast neyzlu
margskonar „góðgætis" og lifa, að því er sumum kann að virðast,
hálfgerðu meinlætalífi.
Þegar insúlínið fannst, þóttust menn hafa himin höndum tekið,
og vísindamaðurinn Banting, sem uppgötvaði það, hlaut Nóbels-
verðlaun fyrir afrekið. Insúlínið hefir lengt líf fjölda sjúklinga,
og þótt fundizt hafi á síðari árum önnur lyf, sem handhægari eru
og tekin eru inn í töflum, er insúlínið enn þrautalendingin fyrir
marga. Lyf þessi lækna ekki sjúkdóminn, en þau gera sjúklingnum
kleift að lifa nokkurnveginn „eðlilegu“ lífi, þ.e. veita sér ýmis-
konar munað í mat og drykk án þess að stofna sér í bráða lífs-
hættu. Hinu er ekki að leyna, að margir þessara sjúklinga gætu
að mestu eða öllu leyti komizt hjá notkun lyfjanna með þeim
náttúrlegu lifnaðarháttum, sem drepið er á hér á undan.
Slíkir lifnaðarhættir mundu ennfremur útrýma að mestu þessum
hættulega sjúkdómi, sem er ákaflega algengur meðal allra menn-
ingarþjóða. Lyfin hafa engin áhrif á útbreiðslu sykursýkinnar.
Og þrátt fyrir notkun þeirra verður hún fjölda manns að bana.
Margir halda því fram eins og fyrr er sagt, að mikil sykumeyzla
10
HEILSUVERND