Heilsuvernd - 01.02.1972, Page 13

Heilsuvernd - 01.02.1972, Page 13
jurtir voru þurrkaðar og blandað saman. Oft drukkum við blóð- bergste eingöngu. Annars var almennasti drykkurinn sýrublanda. Vínföng voru mjög sjaldan höfð um hönd. Samt vissi ég, að faðir minn keypti stundum kút af brennivíni og nokkrar flöskur af öðrum vínum, sjerrýi (einkum messuvíni svokölluðu), portvíni og rommi, og það var stundum tekið á því handa gestum. Og á stór- hátíðum, t.d. á jólunum, var stundum veitt heitt rommpúns. Hvannarætur, fjallagrös og grautar úr þeim voru mikið notuð á sumrum. Faðir minn lét líka nota krækling, sjóða hann og steikja á glóðum, en ég hafði hugmynd um það, að þó að okkur bömunum og foreldrum mínum þætti þetta ágætur matur, var sumt af vinnu- fólkinu, sem fannst þetta óþarfa nýbreytni og taldi það varla mannamat. Ég man eftir því, að maður, sem kom að Heggstöðum einu sinni, var að segja frá því sem merkilegu, að hann hefði komið út í herskipið „Díönu“, sem þá var við mælingar þar norður frá, og höfðu þá foringjar á því skipi keypt af honum krabba, sem hann hafði fengið í netið ásamt þorski, sem hann var að selja þeim, og hann furðaði sig mikið á því, að þeir vildu hirða þá og leggja þvílíkt ómeti sér til munns. Einstöku sinnum fengum við söl. Eftir harða veturinn varð maísbrauð algengt til manneldis. Brauðið var annars oftast nær pottbrauð úr rúgmjöli, ósýrt, bakað undir potti, eða þá flatbrauð, steikt á glóðum. Á jólunum var búið til laufabrauð úr hveiti, kökurnar voru útskomar með kleinujámi og steiktar í feiti. Líka voru þá búnar til úr hveiti kleinur og ýmis- konar sælgætisbrauð. Fyrir utan hátíðir fengum við sjaldan neitt sælgæti, sykurmola við og við, og svo einu sinni eða tvisvar á ári rúsínur, fíkjur og sveskjur, þegar farið hafði verið í kaupstaðinn. Brjóstsykur þekktist varla. Ég man þó eftir, að faðir minn kom einu sinni með eitthvað úr Reykjavíkurferð af „brjóstsykrinum ljúfa“ frá Þorláki Ó. Johnson kaupmanni, sem auglýsti þá vöru mikið, og við börnin vorum mjög hrifin af þessu nýja sælgæti. Fersk aldin sá ég ekki fyrr en löngu síðar, eftir að við vomm flutt til Reykjavíkur, nema hvað við krakkarnir stundum gátum tínt allmikið af krækiberjum og lítið eitt af bláberjum á sumrum. Mjólkurmatur var aðalnæringarefnið auk fisksins, og svo slátur, nýtt á haustin, annars súrsað. Ket var sjaldnar notað, þó man ég HEILSUVERND 13

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.