Heilsuvernd - 01.02.1972, Side 14

Heilsuvernd - 01.02.1972, Side 14
eftir að við fengum ketsúpu með spaðbitum einu sinni í viku, svo og ket með baunum við og við. Ketið var venjulega saltket, hangi- ket aðeins til hátíðabrigða. Nýtt ket var aðeins að fá á haustum, eða ef sérstaklega stóð á, nema fuglaket, sem við fengum oft. Steikt ket þekktist aðeins á hátíðum og í stórveizlum. Selaket fengum við stundum, en ég man, að mér þótti það ekki gott. Aftur á móti var hvalket mikið notað, einkum rengi, súrsað. Þvesti, (magurt hvalkjöt. Ritstj.) og spik var minna notað, nema hvað spikið var brætt saman með mör, og þá kallað bræðingur og notað til viðbits. Skyrgerð var mikil á heimilinu, og súra skyrið geymt allan veturinn og notað í hræring með rúgméli eða byggi. Osta gerði móðir mín líka stundum, mysuosta og mjólkurosta. Mjólkur- afurðir voru ekki seldar, nema máske eitthvað af sméri, sem ekki þótti lakara, þó að það væri orðið súrt. Það var geymt í skinn- belgjum, eins og kæfan, sem alltaf var búin til á haustin, og skinn- belgirnir stóðu svo í röð úti í skemmu á hlaðinu. Venjulega mötuðust menn með sjálfskeiðingum og hornspónum, útskornum með höfðaletri. Hver hafði sinn ask, líka útskorinn, sem var vandlega þveginn eftir máltíðir með hrosshársþvögu. Voru svo askamir settir á vissan stað á bæjarveggnum til að þorna, þegar ekki var úrkoma. Hnífapör voru stundum notuð, þegar heldri gestir komu. Við krakkarnir áttum pjáturkrúsir, sem við fengum mjólk í. Tréílát voru annars algengust, og þurfti oft að gera við þau. GAMANMÁL: UMBURÐARLYNDIR LÆKNAR Heim læknir hafði stranglega bannað einum sjúklinga sinna að reykja og farið hörðum orðum um þennan löst. Nokkru síðar hitti sjúklingurinn lækninn í samkvæmi og sá þá sér til furðu, að hann var reykjandi stóran vindil af áfergju. „Hér sitjið þér reykjandi en hafið harðbannað mér að reykja“. „Já, alveg rétt,“ svaraði læknirinn og brosti kankvíslega. „Lækn- ar eru mjög misstrangir gagnvart sjúklingum sínum, og minn heimilislæknir er einmitt einn af þeim umburðarlyndari“. 14 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.