Heilsuvernd - 01.02.1972, Side 18
Hólmfríður Jónsdóttir kr. 2000. Guðlaug Jónsdóttir kr. 300. Trausti
Jónsson kr. 3100. N.N. kr. 125. Marta Guðmundsdóttir kr. 400.
N.N. kr. 400.
Allar þessar gjafir vil ég þakka. Ég vil líka þakka hlýjar óskir
fjölmargra, sem hér hafa dvalið sér til heilsubótar.
Gagnkvæm tillitssemi og skilningur milli sjúklinga og okkar,
sem þjónustuna eigum að veita, er það sem aldrei má rofna, ef
starfsemin á að koma að þeim notum, sem til er ætlazt.
Kærar þakkir. Hugheilar óskir til ykkar allra um blessunar-
ríka framtíð.
Ámi Ásbjarnarson
LíOagigt f dýpum
Þegar talað er um gigtarsjúkdóma í liðum, má skipta þeim í
tvo aðalflokka: 1. Brjóskeyðingu og „kalkanir" í liðamótum, sækir
aðallega á eldra fólk og verður hér kölluð „slitgigt“. 2. Bólgur
innan og utan liðamóta, samfara margskonar skekkjum og bækl-
unum, hér kallað bara liðagigt.
Slitgigtin er ævagamall sjúkdómur, og hefir hún fundizt í mörg-
um dýrum, smáum sem stórum, svo sem hestum, músum, hvölum
og fuglum. Hún hefir fundizt í múmíum frá Egyptalandi, í beina-
grindum apa, sem voru uppi fyrir tveimur milljónum ára, og
jafnvel í skriðdýrum, sem lifðu fyrir hundrað milljónum ára.
Liðagigt er hinsvegar óþekkt í dýrum. Og þótt kynlegt kunni
að virðast, hefir henni ekki verið lýst svo öruggt sé fyrr en um
miðja 19. öld. Hún virðist hafa náð til allra þjóða og kynstofna
manna, en mismunandi útbreidd eftir löndum.
Um orsakir þessara sjúkdóma vita læknavísindin næsta lítið,
ýmsar tilgátur hafa komið fram, en allar eru þær ófullnægjandi.
Ofangreindar upplýsingar eru að mestu úr bók eftir tvo enska
gigtlækna, sem gefin var út 1971.
18
HEILSUVERNO