Heilsuvernd - 01.02.1972, Page 19

Heilsuvernd - 01.02.1972, Page 19
NIELS BUSK GARÐYRKJUSTJÓRI Eigum við taka upp lífræna ræktun? Hversvegna hefir lífræn ræktun ekki náð útbreiðslu hér á landi, eða hentar hún okkur ekki? Þannig spyrja margir, sem koma í garðyrkjustöð Heilsuhælis NLFÍ. Svarið er því miður á þá leið, að meðan ekki fæst hærra verð fyrir þær vörur, sem framleiddar eru með þessum aðferðum, verða þær ekki almennt teknar upp. Þær eru vinnufrekari og gefa minni uppskeru. En gæði uppskerunnar eru langtum meiri heldur en þegar notaðar eru venjulegar áburðaraðferðir. Þetta gera neyt- endur sér ekki Ijóst og kaupa því lélega vöru, jafnvel þótt betri vara sé á boðstólum. Ég hefi engan hitt, sem komið hefir hér og bragðað á grænmeti úr garðyrkjustöð hælisins án þess að viður- kenna yfirburði ræktunaraðferða okkar að því er varðar bragðgæði. Eigendur heimilisgarða þurfa ekki að horfa í kostnaðinn, sem fyrir þá skiptir ekki miklu máli. Ástæðan til þess að þeir nota ekki þessar aðferðir er sumpart þekkingarskortur, ef til vill líka leti, og svo hitt, að menn vita ekki, hvar er að fá efni til áburðar í garða, svo sem hornspæni eða hornmjöl, sem fæst með því að mala eða saxa horn og klaufir slátraðra húsdýra og er tilvalið í safnhauga með búfjáráburði, ásamt fiskimjöli eða beinamjöli. En þess ber að geta, að meðan ekki er eftirspurn eftir hlutunum, má heldur ekki vænta framboðs. Ef nógu margir mynduðu samtök, væri auðveldara um útvegun á nauðsynlegum efnivið í safnhauga. Og því mega menn ekki gleyma, að hér er að því stefnt að fram- Framhald á bls. 21. r~ HEILSUVERND 19

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.