Heilsuvernd - 01.02.1972, Page 20
PÁLlNA R. KJARTANSDÓTTIR
HÚSMÆÐRAKENNARI
Uppskpifftip
Ábætisréttir
Eplakaka
% kg epli 75 g möndlur
150 g ljós púðursykur 125 g smjörlíki eða smjör
150 g brauðmylsna 2 dl rjómi
Eplin eru soðin í mauk í litlu vatni og síðan látin í smurt eld-
fast mót. Gróft söxuðum möndlunum er blandað saman við brauð-
mylsnuna ásamt sykrinum og þetta sett yfir eplamaukið. Smjör-
líkið hnoðað upp úr köldu vatni til þess að ná úr því saltinu; sé
notað smjör, verður kakan miklu betri, og er þá rétt að nota ósaltað
smjör. Smjörlíkið eða smjörið er brætt og því hellt yfir brauð-
mylsnuna. Kakan bökuð við fremur vægan hita í % klst. Borin
fram köld eða heit með þeyttum rjóma.
Brauðbúðingur
Heilhveitibrauð er skorið í þunnar sneiðar, eldfast mót smurt
vel og síðan klætt innan með brauðsneiðum. Þá er látið lag af
niðursneiddum eplum og rúsínum í mótið, ef vill má setja saxaðar
möndlur saman við. Yfir þetta koma brauðsneiðar, þá aftur lag
af eplum og rúsínum, og þannig haldið áfram þar til hátt er orðið
í mótinu. Þá eru 3 egg og 150 g púðursykur þeytt vel saman og
^2 1 af mjólk blandað saman við. Þessu er hellt yfir mótið og búð-
20
HEILSUVERND