Heilsuvernd - 01.02.1972, Side 21
ingurinn látinn bíða í 1 klst., áður en hann er bakaður við fremur
hægan hita í % klst. Borinn fram heitur eða kaldur með þeyttum
rjóma.
Hrá eplakaka
Eplin eru afhýdd, rifin niður á rifjárni, látin í skál í lögum með
létt brúnuðu haframjöli, niðurmuldum makkarónum eða brauð-
mylsnu. Skreytt með þeyttum rjóma. Borið strax fram.
EIGUM VIÐ AÐ TAKA UPP .... ? — Framhald af bls. 19.
leiða úrvals gæðavöru, sem tekur öðru fram, bæði til heimanotkun-
ar og til sölu. Það er út af fyrir sig ekki lítils virði, að neytendur
geti treyst því, að grænmetið, sem þeir kaupa og leggja sér til
munns, sé ekki mengað skaðlegum eiturefnum, sem víða eru notuð
til að verjast meindýrum og jurtasjúkdómum. Þar að auki geymast
matvælin betur og eru bragðbetri. Það þarf ekki annað en að
spyrja eldra fólk, sem fullyrðir, að t.d. kartöflur, sem það kaupir
nú í verzlunum, séu ekki eins góðar og þær, sem ræktaðar voru úti
á landi áður fyrr. Og ástæðan er sú, að þá var eingöngu notaður
búfjáráburður í garðana og engra varnarlyfja þörf. Nú fást sjald-
an bragðgóðar kartöflur, enda nota flestir tilbúinn áburð og alls-
konar lyf gegn illgresi, sveppum og meindýrum auk lyfja til að
koma í veg fyrir, að kartöflurnar spíri í geymslunum. Þetta eru
með öðrum orðum einskonar gervikartöflur, sem að vísu innihalda
flest venjuleg næringarefni þessa jarðarávaxtar, en þær eru eigi
að síður sjúkar og langt frá því að vera boðleg eða fullkomin
matvara.
GAMANMÁL: BÁÐUM SKJÁTLAÐIST
í fyrirlestri fór Voltaire mjög lofsamlegum orðum um lækninn
og skáldið Albrecht von Haller. Einn áheyrenda gat ekki stillt sig
um að benda Voltaire á, að Haller hefði farið niðrandi orðum um
hann. Voltaire leit á manninn, fitjaði upp á nefið og sagði með
undirfurðulegu brosi: „Kannski okkur hafi báðum skjátlazt“.
HEILSUVERND
21