Heilsuvernd - 01.02.1972, Qupperneq 22
Á víð og dreif
Flúorblöndun vatns bönnuð
í Svíþjóð
Sænska tímaritið Halsa skýrir frá
því, að hinn 18. nóvember 1971 hafi
sænska ríkisþingið samþykkt lög,
sem leggja bann við því, að flúor
sé blandað í neyzluvatn. Flúor-
blöndun hefir verið komið á í mörg-
um borgum víða um lönd til varnar
gegn tannskemmdum, og hafa þess-
ar aðgerðir valdið miklum deilum.
Flúor er sterkt eiturefni, og and-
stæðingar flúorblöndunar telja
þarna um að ræða varhugaverða
mengun. Virðist það sjónarmið hafa
orðið ofan á í sænska þinginu.
Káð við treguni hægðum
Blanda 1 kúfaðri matskeið af
möluðu hörfræi saman við súrmjólk
og láta standa yfir nóttina. Borða
þennan graut að morgninum með
hunangi og nýmjólk.
Spakmæli frá ýmsum þjóðum
Haldið höfðinu köldu, maganum
tómum og fótum heitum (rúss-
neskt).
Máltið án aldina er eins og sam-
kvæmi án hljómlistar (arabiskt).
Nýjungar eru ekki alltaf sannindi
(spánskt).
Enginn skyldi fara á bak við sálu-
sorgara sinn eða lækni (rússneskt).
Guðfræðingurinn hreinsar sam-
vizkuna, læknirinn magann og lög-
fræðingurinn pyngjuna (þýzkt).
Þegar tveir læknar vitja sjúkl-
ings, byrjar kirkjuklukkan að
hringja (spánskt).
Enginn læknir getur bjargað hug-
lausum sjúklingi (spánskt).
Þegar lyf læknar sjúkling, er það
fyrir náð Guðs (kínverskt).
Gerið ekki líkama yðar að apóteki
(franskt).
(The Practitioner)
Bólusetningarskylda afnumin
Nýlega hefir verið frá því skýrt,
að bólusetningarskylda gegn kúa-
bólu hafi verið afnumin í Bretlandi.
1 frönsku tímariti „A table ‘ segir
frá því, að í Bandaríkjunum hafi
almennar bólusetningar gegn kúa-
bólu þegar verið lagðar niður, og
að síðan á árinu 1970 hafi ekki verið
krafizt bólusetningarvottorðs við
komu inn í landið, nema hjá þeim,
sem koma frá löndum, þar sem
bólusótt er landlæg. I sama riti er
frá því sagt, að nýlega hafi frönsku
barni og foreldrum þess verið
dæmdar skaðabætur úr rikissjóði
vegna sjúkdóms, sem barnið hlaut
eftir kúabólusetningu.
Sjúkdómavarnir mikilvægar
Það á alltaf að taka varnirnar
langt fram yfir meðferð sjúkdóm-
anna, segir dr. Theodore Cooper,
sem er forstöðumaður hjartastofn-
unar Bandaríkjanna.
Michael Baker læknir í Washing-
ton sagði nýlega, að hjartaflutning-
ur væri hrein neyðarráðstöfun, sem
telja mætti mjög vafasamt að ætti
nokkurn rétt á sér, en sigur yfir
hjartasjúkdómunum verði aðeins
unninn með varnaraðgerðum.
(Fréttabréf um heilbrigðismál)
22
HEXLSUVERND