Völundur - 01.04.1935, Blaðsíða 3
Völimdur
Tímarit iðnverkamanna , . fife- •
RITSTJÓRI:
Pjetur G. Guðmundssou
AFGREIÐSLA:
Fjólugötu 25. Sími 4471
REYKJAVÍK
1. tölublað
Apríl 1935
1. árgangur
Inngangur.
Iðnaður er orðinn svo gildur þáttur í at-
vinnulífi þjóðarinnar og iðnaðarmenn svo
fjölmenn stjett, að ekki má lengur dragast,
að til sje málgagn í landinu, sem hafi það
hlutverk að ræða áhugamál og hagsmuna-
mál iðnaðar í landinu yfirleitt.
Um nokkur undanfarin ár hefur verið
gefið út Tímarit iðnaðarmanna, sem er mál-
gagn atvinnurekenda í iðnaði, og er ekkert
við það að athuga þótt atvinnurekendur hafi
sjerstakt málgagn fyrir sig, þegar þeir telja
þess þörf. En þörf fyrir málgagn, sem ræði
einnig áhugamál og hagsmunamál iðnverka-
manna, er jafn brýn samt.
Miklum fjölda manna hættir til að líta á
iðnaðinn einungis sem tekniskt fyrirbrigði.
Afskifti að iðnaðarmálum eigi þess vegna
að lúta að því, að efla verkkunnáttu í iðnaði.
Þetta er merkilegur þáttur í iðnaðarmál-
um, sem sjálfsagt er að gefa hinn fylsta
gaum. En þetta er ekki nema einn þáttur af
mörgum.
Miklu færri menn — en margir þó — líta
á stjórn iðnaðarframkvæmda sem aðalat-
riði. Afskifti þeirra manna hníga að lang-
mestu leyti í eina átt: að koma eignar- og
framkvæmdayfirráðum á hendur fárra
manna, þeim sjálfum fyrst og fremst til
hagnaðar, en gera verkamennina í iðnaði
að framleiðslutækjum, — að arðnýta vinnu
fjöldans til hagnaðar fáeinum einstakling-
um. Þessi skoðun hlýtur altaf að vera skað-
leg fyrir iðnverkamenn sjerstaklega, og
reyndar fyrir iðnaðarmálin alment. Þessir
arðveiðimenn viðurkenna aldrei rjett iðn-
verkamanna til afskifta af iðnaðarmálum
alment. Þeir líta á verkamennina sem verk-
færi, en ekki sem aðila í iðnaðarmálum.
„Þú átt bara að vinna og þegja“, sagði at-
vinnurekandi einn við mig fyrir mörgum ár-
um. — Hann gerði með þessu ekki annað en
færa í orðabúning skoðun, sem býr með
flestum atvinnurekendum í iðnaði. — Við
skulum sjá, hvort hið nýstofnaða Samband
iðnverkamanna framkallar ekki þessa skoð-
un hjá mörgum þeirra.
Þá eru enn menn, — og þeir ekki fáir, —
sem einungis líta á iðnaðarmálin frá sjón-
armiði kaupmannsins, sem vilja efla iðnað-
arframleiðsluna með það fyrir augum, að
framleiðslan geti orðið gróðavænleg versl-
unarvara. Verslun með iðnaðarvörur er
merkilegur þáttur í iðnaðarmálum, ef hún
er skipulögð með almenningshag fyrir aug-
um.
Enn er það ótalið, sem virðist hafa verið
minstur gaumur gefinn fram að þessu, að
iðnaðurinn í landinu er orðinn atvinnugrein,
sem þúsundir manna byggja líf sitt á. Þetta
er gildasti þátturinn í iðnaðarmálunum og
sá, sem mestan gaum verður að gefa. Þessi
atvinnugrein er ekki að eins afkomuskilyrði
fyrir þá einstaklinga, sem vinna að iðnaði.
Hún er hagfræðilegt stórmál, sem grípur
inn í allar aðrar atvinnugreinar. Hún er ein
af veigamestu hornsteinunum undir velfarn-
aði allrar þjóðarinnar.
Skipulagning iðnaðarins sem atvinnu-
greinar, samhliða eflingu verkkunnáttu í
iðnaði, eru þeir þættirnir í iðnaðarmálum