Völundur

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Völundur - 01.04.1935, Qupperneq 6

Völundur - 01.04.1935, Qupperneq 6
4 V ÖLUNDUR margar vörutegundir, sem liggur í augum uppi að við þurfum ekki að sækja til út- landa, vegna þess að við eigum nógan efni- við og nógan hagleik til þess að framleiða þær í landinu. En þar eru líka skráðar margar unnar vörur, sem í fljótu bragði virðist óhjá- kvæmilegt að sækja til útlanda, enda þótt svo sje ekki í raun og veru. Ein af þeim vöru- tegundum er pappírinn. Okkur er innan handar að draga stórmikið úr pappírskaup- um frá útlöndum, án þess að draga úr papp- írsnotkun. Hjer er um vöru að ræða, sem mikið mun- ar um. Árið 1932 keyptum við frá útlöndum 1100 smálestir af pappír og pappírsvörum, og greiddum fyrir slattann 1 milljón og 163 þúsund krónur. Nú er ekki svo að skilja, að við getum sparað þessi kaup alveg. En þó að við gæt- um ekki sparað meira en svo sem Vio hluta þessarar upphæðar, þá er það samt skilding- ur, sem við lítum stórum augum á, þegar um önnur útgjöld er að ræða. Við fyrstu athugun þessa máls rísa tvær spurningar: Höfum við pappírsefni í land- inu, og — getum við búið til pappír? Báðum þessum spurningum má hiklaust svara játandi. Pappír er gerður úr mörgum efnum, svo sem trje, trjeni (efni, sem unnið er úr trje), tuskum úr hör og baðmull, hálmi og alls- konar strái öðru, úrgangi frá hampvinnu, og nýr pappír er gerður úr gömlum pappír. Þetta eru helstu efnin. En fjöldamörg önn- ur efni má nota til pappírsgerðar. Það getur verið að birkið okkar sje ekki eins hentugt til pappírsgerðar og aðrar við- artegundir, sem mest eru notaðar. En það getur líka verið að það sje jafngott eða betra. Og nóg er til af hrísinu. Sag og annar úr- gangur frá trjesmiðjum í Reykjavík væri efni í nokkrar smálestir af pappír. Tuskur höfum við nógar í nokkrar smá- lestir af pappír, — efni, sem annars fer til ónýtis. Við höfum, sum árin, flutt út nokkr- ar smálestir af tuskum, sem útlendingum þykir tilvinnandi að kaupa af okkur — til pappírsgerðar. Þá er með öllu órannsakað hvaða gras- tegundir við eigum hentugar til pappírs- gerðar. Og hver veit nema grámosinn okk- ar sje afbragðs pappírsefni? Hjer í Reykjavík fara ósköpin öll af papp- írshroða til einskis. Það er pappír, sem fell- ur til í prentsmiðjum, bókbandsstofum, skrifstofum, sölubúðum og á heimilum. Við höfum meira að segja flutt út talsvert af pappírsúrgangi sum árin. Útlendingum hef- ir þótt tilvinnandi að borga dálítið fyrir ruslið, auk ómakslauna og flutningskostn- aðar. Þeir búa til úr þessu pappír, sem við svo kaupum og flytjum til landsins aftur. Þessum útflutningi mun nú vera að mestu hætt. Þessu ágæta efni er brent, — þótt það sje nálega einskis virði sem eldsneyti — eða kastað í sorpið. Við pappírsgerð þarf mikinn hita, þegar pappírsmaukið er soðið. Þann hita getum við fengið ókeypis við hverina, því ekki þarf pappírsgerð endilega að vera í Reykjavík eða annars staðar í þjettbýli. Þarna höfum við eitt skilyrði betra til pappírsgerðar en önnur lönd. „Þeir ætla sjer að eignast skip, þótt eng- inn kunni að sigla“, var eitt sinn sagt. En skipin voru samt ekki fyrr komin, en nógir menn voru til sem kunnu að sigla. Og þessu hefur brugðið fyrir á öllum öðrum sviðum. Pappírsgerð útheimtir mikla kunnáttu og dýrar vjelar, ef stefnt er að því, að framleiða margar tegundir og vönduðustu gerðir. En pappír og pappa má gera með lítilli kunnáttu og ódýrum tækjum. Pappírsgerð var víða blátt áfram heimilisiðnaður sums- staðar suður í löndum fyrr á tímum, og á þann hátt framleiddur betri pappír en al- ment er notaður nú. (Handgerður pappír). Kunnáttuleysi kemur ekki til greina sem hemill á framkvæmdum í þessu máli. Við getum sent mann utan til náms. Og hann er eftir eitt ár búinn að læra nóg til þess að

x

Völundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Völundur
https://timarit.is/publication/1623

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.