Feykir


Feykir - 12.02.2020, Side 5

Feykir - 12.02.2020, Side 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Meistaramót Íslands í fjölþrautum Ísak Óli Íslandsmeistari í sjöþraut Um helgina fór fram Meistaramót Íslands í fjölþrautum í Laugardalshöllinni og gerði Skagfirðingurinn Ísak Óli Traustason, UMSS, gott mót og varð Íslandsmeistari í sjöþraut karla. Í öðru sæti varð Bjarki Rósantsson, Breiðabliki, og í þriðja sæti Andri Fannar Gíslason, KFA. Ísak Óli fékk 5336 stig og segir á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands að það sé hans næst besta þraut frá upphafi, einungis átta stigum frá hans besta árangri sem hann náði á sama móti fyrir ári síðan. Ísak Óli hafði mikla yfirburði á mótinu og sigraði í öllum sjö greinum þrautarinnar. Árangur Ísaks Óla í einstaka greinum: • 60 metrar: 7,14 sekúndur • Langstökk: 7,03 metrar • Kúluvarp: 13,00 metrar • Hástökk: 1,82 metrar • 60 metra grind: 8,41 sekúnda • Stangarstökk: 4,23 metrar • 1000m: 2:46,01 mínútur Í sjöþraut pilta 18-19 ára sigraði Dagur Fannar Einarsson með 4776 stig og í flokki pilta 16-17 ára sigraði Þorleifur Einar Leifsson með 3718 stig. /PF Ísak Óli bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína í sjöþraut og sigraði af öryggi. MYND: BRÍET GUÐMUNDSDÓTTIR. 1. deild kvenna í körfubolta ÍR – Tindastóll - 106-49 Skellur í Hertz-hellinum Tindastólsstúlkur fóru suður yfir Holtavörðuheiði sl. laugardag og léku við lið ÍR í Breiðholtinu. Eftir ágæta byrjun Tindastóls í leiknum tóku Breiðhyltingar yfir leikinn allt til loka og niðurstaðan hörmulegur skellur. Lið ÍR var yfir 45-26 í hálfleik en vont versnaði í síðari hálfleik og lokatölurnar 106-49. Tindastólsliðið hefur átt við meiðsli að stríða nú á nýju ári og það hefur aldeilis ekki verið að hjálpa til. Nú vantaði Kristínu Höllu og Valdísi Ósk og einhverjar stúlkurnar eru að spila meiddar. Engu að síður byrjaði liðið leikinn vel og var yfir 2-8 eftir fjórar mínútur og 6-13 þegar sjö mínútur voru liðnar. Þá vaknaði Hellisbúinn og var ekki ánægður með yfirgang gestanna. Þegar fyrsta leikhluta var lokið var lið ÍR komið yfir, 17-15, og eftir fimm mínútna leik í öðrum leikhluta var staðan 31-17 og nokkuð ljóst í hvað stefndi. Nítján stigum munaði í hálfleik og þó Tess skoraði fyrstu körfu síðari hálfleiks þá hélt lið ÍR áfram að breikka bilið og að lokum var það orðið svo mikið að best er að vera ekkert að segja frá því. Eðlilega tapaðist frákasta- baráttan í Hellinum þar sem sentímetrarnir voru ekki að þvælast fyrir Stólastúlkum. Þá var skotnýtingin ekki upp á marga fiska og til dæmis var Marín Lind sú eina í liðinu sem hitti úr 3ja stiga skotum. Lið Tindastóls tapaði ellefu fleiri boltum en ÍR. Tess var framlagshæst í liði Tindastóls með aðeins sex punkta eftir að hafa gert 13 stig og hirt flest fráköst Stólastúlkna eða sex talsins. Marín Lind var stigahæst með 16 stig en hún setti niður þrjá þrista í sex skotum. Þá gerði Hera Sigrún tíu stig, Karen Lind og Eva Rún fjögur stig hvor og Telma Ösp tvö stig. Í liði ÍR var Króksarinn Birna Eiríks stigahæst með 21 stig, Sigurbjörg Sigurðar gerði 16 stig og Arndís Þórisdóttir 15 stig. Lið Tindastóls er nú að síga aftur úr toppliðunum fjórum sem berjast um sæti í úrslitakeppninni. Það þarf ansi margt að snúast við hjá liðinu til að það geti barist um eitt af fjórum efstu sætunum nú þegar sex umferðum er ólokið. En miði er möguleiki og stefnan hlýtur að vera á að hala inn eins mörg stig og mögulegt er. Áfram Tindastóll! /ÓAB Lið ÍR hefur reynst Stólastúlkum erfitt viðureignar í síðustu leikjum. Hér er Tess í veseni í Síkinu fyrr í vetur. MYND: HJALTI ÁRNA Dominos-deild karla Haukar – Tindastóll - 76-69 Haukar sigraðir í hörkuleik í barátt- unni um 3. sætið Haukar í Hafnarfirði tóku á móti liði Tindastóls á Ásvöllum sl. fimmtudag og er óhætt að fullyrða að leikurinn hafi tekið á taugarnar. Engu að síður var lið Tindastóls yfir frá fyrstu körfu til hinnar síðustu. Jasmin Perkovic átti sinn besta leik fyrir Stólana en kappinn gerði 13 stig og hirti 14 fráköst, helmingi fleiri en Flenard Whitfield í liði Hauka. Döpur hittni af vítalínunni átti stóran þátt í tapi heimamanna en lokatölur leiksins voru 76-79 fyrir Tindastól eftir æsilegar lokamínútur. Liðunum gekk hálf brösuglega að koma boltanum í körfuna fyrstu mínúturnar og staðan 11-14 að loknum fyrsta leikhluta. Simmons átti ágætan sprett fyrir Stólana en það var Hannes sem setti fyrsta þrist leiksins snemma í öðrum leikhluta þrátt fyrir að bæði lið hafi fram að því verið búin að senda nokkrar langdrægar flaugar sem fundu hinsvegar ekki skotmarkið. Í kjölfarið fylgdi góður kafli Tindastólsliðsins sem komst í 13-26 en þá vöknuðu Haukar, með þá Kára Jóns og Emil Barja fremsta í flokki, til lífsins á ný. Munurinn þó yfirleitt þetta tíu til fimmtán stig og það voru heimamenn sem gerðu síðustu fjögur stigin í fyrri hálfleik og komu sér þar með aðeins betur inn í leikinn. Staðan 31-42. Haukar gerðu fyrstu stig síðari hálfleiks og minnkuðu muninn í sjö stig en þá kom frábær kafli Stólanna sem gerðu ellefu stig í röð. Eftir þrist frá Perkovic var staðan 38-56, átján stiga munur, og þá þótti Israel Martin, þjálfara Hauka, nóg komið. Hann tók leikhlé og upp frá því skelltu Hafnfirðingar í lás í vörninni og þeir svöruðu með 11-0 kafla á næstu tveimur og hálfri mínútu. Þá loks komust Stólarnir á blað á ný og staðan 55-62 fyrir Tindastól fyrir lokafjórðunginn. Haukur Óskars setti þrist í byrjun fjórða leikhluta og upp frá því var leikurinn æsispennandi og baráttan í öndvegi. Eftir þrist frá Kára Jóns minnkaði Gerald Robinson muninn í tvö stig þegar hann setti annað vítið sitt niður en Haukum voru mislagðar hendur á línunni, settu aðeins niður 14 af 24 vítum sínum í leiknum á meðan Stólarnir hittu úr 12 af 13 skotum sínum. Mörgum þótti sem Haukar fengju að spila ansi fast á Stólana á þessum kafla án þess að fá villur og mótlætið fór nokkuð í taugar Tindastólsmanna. Strákarnir bognuðu en brotnuðu ekki og Bilic gerði næstu fjögur stigin en þristur frá Kára Jóns minnkaði muninn á ný í tvö stig þegar tæpar tvær mínútur voru eftir. Þá lagði Bilic boltann í körfuna en Hjálmar Stefáns svaraði að bragði. Geiger bætti við tveimur vítum og jók muninn í fjögur stig þegar 20 sekúndur voru til leiksloka. Emil Barja hélt Haukum inni í leiknum með 2 stiga stökkskoti og Haukar voru snöggir að brjóta á Geiger. Hann setti niður fyrra vítið sitt en klikkaði á því síðara, Kári fékk boltann og reyndi skot frá miðlínu en það klikkaði. Lokatölur því 76-69 og lið Tindastóls eitt í þriðja sæti deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir. Jasmin Perkovic hefur ekki alveg slegið í gegn hjá stuðningsmönnum Tindastóls en hann átti frábæran leik í gær og hefur Baldur Þór þjálfari tröllatrú á honum. Hann endaði sem fyrr segir með 13 stig og 14 fráköst og að auki átti hann þrjár stoðsendingar. Sinisa Bilic var með 16 stig, Geiger 12 stig, Simmons 11, Brodnik 10 og Pétur 8. Í liði Hauka var Kári bestur en hann gerði 22 stig, tók fimm fráköst og átti átta stoðsendingar. Whitfield gerði 21 stig og tók sjö fráköst en Emil Barja gerði 11 stig og tók átta fráköst. Nú tekur við bikarvika þar sem Stólarnir mæta liði Stjörnunnar í kvöld og með sigri kemst liðið í sjálfan úrslitaleikinn. Síðan tekur við landsleikjahlé og þann 1. mars hefst lokakafli Dominos-deildarinnar en fjórar umferðir eru eftir. Það er lið Fjölnis sem mætir þá í Síkið. Áfram Tindastóll! /ÓAB 06/2020 5

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.