Feykir - 12.02.2020, Page 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Meistaramót Íslands í fjölþrautum
Ísak Óli Íslandsmeistari
í sjöþraut
Um helgina fór fram
Meistaramót Íslands í
fjölþrautum í Laugardalshöllinni
og gerði Skagfirðingurinn Ísak
Óli Traustason, UMSS, gott mót
og varð Íslandsmeistari í
sjöþraut karla. Í öðru sæti varð
Bjarki Rósantsson, Breiðabliki,
og í þriðja sæti Andri Fannar
Gíslason, KFA.
Ísak Óli fékk 5336 stig og segir á
heimasíðu Frjálsíþróttasambands
Íslands að það sé hans næst
besta þraut frá upphafi, einungis
átta stigum frá hans besta árangri
sem hann náði á sama móti fyrir
ári síðan. Ísak Óli hafði mikla
yfirburði á mótinu og sigraði í
öllum sjö greinum þrautarinnar.
Árangur Ísaks Óla í einstaka
greinum:
• 60 metrar: 7,14 sekúndur
• Langstökk: 7,03 metrar
• Kúluvarp: 13,00 metrar
• Hástökk: 1,82 metrar
• 60 metra grind: 8,41 sekúnda
• Stangarstökk: 4,23 metrar
• 1000m: 2:46,01 mínútur
Í sjöþraut pilta 18-19 ára sigraði
Dagur Fannar Einarsson með
4776 stig og í flokki pilta 16-17
ára sigraði Þorleifur Einar Leifsson
með 3718 stig. /PF
Ísak Óli bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína í sjöþraut og sigraði af öryggi.
MYND: BRÍET GUÐMUNDSDÓTTIR.
1. deild kvenna í körfubolta ÍR – Tindastóll - 106-49
Skellur í Hertz-hellinum
Tindastólsstúlkur fóru suður
yfir Holtavörðuheiði sl.
laugardag og léku við lið ÍR í
Breiðholtinu. Eftir ágæta
byrjun Tindastóls í leiknum
tóku Breiðhyltingar yfir leikinn
allt til loka og niðurstaðan
hörmulegur skellur. Lið ÍR var
yfir 45-26 í hálfleik en vont
versnaði í síðari hálfleik og
lokatölurnar 106-49.
Tindastólsliðið hefur átt við
meiðsli að stríða nú á nýju ári og
það hefur aldeilis ekki verið að
hjálpa til. Nú vantaði Kristínu
Höllu og Valdísi Ósk og einhverjar
stúlkurnar eru að spila meiddar.
Engu að síður byrjaði liðið leikinn
vel og var yfir 2-8 eftir fjórar
mínútur og 6-13 þegar sjö
mínútur voru liðnar. Þá vaknaði
Hellisbúinn og var ekki ánægður
með yfirgang gestanna. Þegar
fyrsta leikhluta var lokið var lið ÍR
komið yfir, 17-15, og eftir fimm
mínútna leik í öðrum leikhluta
var staðan 31-17 og nokkuð
ljóst í hvað stefndi. Nítján stigum
munaði í hálfleik og þó Tess
skoraði fyrstu körfu síðari
hálfleiks þá hélt lið ÍR áfram að
breikka bilið og að lokum var það
orðið svo mikið að best er að
vera ekkert að segja frá því.
Eðlilega tapaðist frákasta-
baráttan í Hellinum þar sem
sentímetrarnir voru ekki að
þvælast fyrir Stólastúlkum. Þá
var skotnýtingin ekki upp á
marga fiska og til dæmis var
Marín Lind sú eina í liðinu sem
hitti úr 3ja stiga skotum. Lið
Tindastóls tapaði ellefu fleiri
boltum en ÍR.
Tess var framlagshæst í liði
Tindastóls með aðeins sex
punkta eftir að hafa gert 13 stig
og hirt flest fráköst Stólastúlkna
eða sex talsins. Marín Lind var
stigahæst með 16 stig en hún
setti niður þrjá þrista í sex
skotum. Þá gerði Hera Sigrún tíu
stig, Karen Lind og Eva Rún
fjögur stig hvor og Telma Ösp tvö
stig. Í liði ÍR var Króksarinn Birna
Eiríks stigahæst með 21 stig,
Sigurbjörg Sigurðar gerði 16 stig
og Arndís Þórisdóttir 15 stig.
Lið Tindastóls er nú að síga aftur
úr toppliðunum fjórum sem
berjast um sæti í úrslitakeppninni.
Það þarf ansi margt að snúast
við hjá liðinu til að það geti barist
um eitt af fjórum efstu sætunum
nú þegar sex umferðum er
ólokið. En miði er möguleiki og
stefnan hlýtur að vera á að hala
inn eins mörg stig og mögulegt
er. Áfram Tindastóll! /ÓAB
Lið ÍR hefur reynst Stólastúlkum erfitt viðureignar í síðustu leikjum. Hér er Tess í
veseni í Síkinu fyrr í vetur. MYND: HJALTI ÁRNA
Dominos-deild karla Haukar – Tindastóll - 76-69
Haukar
sigraðir í
hörkuleik
í barátt-
unni um
3. sætið
Haukar í Hafnarfirði tóku á móti
liði Tindastóls á Ásvöllum sl.
fimmtudag og er óhætt að
fullyrða að leikurinn hafi tekið á
taugarnar. Engu að síður var lið
Tindastóls yfir frá fyrstu körfu til
hinnar síðustu. Jasmin Perkovic
átti sinn besta leik fyrir Stólana
en kappinn gerði 13 stig og hirti
14 fráköst, helmingi fleiri en
Flenard Whitfield í liði Hauka.
Döpur hittni af vítalínunni átti
stóran þátt í tapi heimamanna
en lokatölur leiksins voru 76-79
fyrir Tindastól eftir æsilegar
lokamínútur.
Liðunum gekk hálf brösuglega að
koma boltanum í körfuna fyrstu
mínúturnar og staðan 11-14 að
loknum fyrsta leikhluta. Simmons átti
ágætan sprett fyrir Stólana en það var
Hannes sem setti fyrsta þrist leiksins
snemma í öðrum leikhluta þrátt fyrir
að bæði lið hafi fram að því verið búin
að senda nokkrar langdrægar flaugar
sem fundu hinsvegar ekki skotmarkið.
Í kjölfarið fylgdi góður kafli
Tindastólsliðsins sem komst í 13-26
en þá vöknuðu Haukar, með þá Kára
Jóns og Emil Barja fremsta í flokki, til
lífsins á ný. Munurinn þó yfirleitt þetta
tíu til fimmtán stig og það voru
heimamenn sem gerðu síðustu fjögur
stigin í fyrri hálfleik og komu sér þar
með aðeins betur inn í leikinn. Staðan
31-42.
Haukar gerðu fyrstu stig síðari
hálfleiks og minnkuðu muninn í sjö
stig en þá kom frábær kafli Stólanna
sem gerðu ellefu stig í röð. Eftir þrist
frá Perkovic var staðan 38-56, átján
stiga munur, og þá þótti Israel Martin,
þjálfara Hauka, nóg komið. Hann tók
leikhlé og upp frá því skelltu
Hafnfirðingar í lás í vörninni og þeir
svöruðu með 11-0 kafla á næstu
tveimur og hálfri mínútu. Þá loks
komust Stólarnir á blað á ný og
staðan 55-62 fyrir Tindastól fyrir
lokafjórðunginn. Haukur Óskars setti
þrist í byrjun fjórða leikhluta og upp
frá því var leikurinn æsispennandi og
baráttan í öndvegi. Eftir þrist frá Kára
Jóns minnkaði Gerald Robinson
muninn í tvö stig þegar hann setti
annað vítið sitt niður en Haukum voru
mislagðar hendur á línunni, settu
aðeins niður 14 af 24 vítum sínum í
leiknum á meðan Stólarnir hittu úr 12
af 13 skotum sínum.
Mörgum þótti sem Haukar fengju að
spila ansi fast á Stólana á þessum
kafla án þess að fá villur og mótlætið
fór nokkuð í taugar Tindastólsmanna.
Strákarnir bognuðu en brotnuðu ekki
og Bilic gerði næstu fjögur stigin en
þristur frá Kára Jóns minnkaði muninn
á ný í tvö stig þegar tæpar tvær
mínútur voru eftir. Þá lagði Bilic
boltann í körfuna en Hjálmar Stefáns
svaraði að bragði. Geiger bætti við
tveimur vítum og jók muninn í fjögur
stig þegar 20 sekúndur voru til
leiksloka. Emil Barja hélt Haukum inni
í leiknum með 2 stiga stökkskoti og
Haukar voru snöggir að brjóta á
Geiger. Hann setti niður fyrra vítið sitt
en klikkaði á því síðara, Kári fékk
boltann og reyndi skot frá miðlínu en
það klikkaði. Lokatölur því 76-69 og
lið Tindastóls eitt í þriðja sæti
deildarinnar þegar fjórar umferðir eru
eftir.
Jasmin Perkovic hefur ekki alveg
slegið í gegn hjá stuðningsmönnum
Tindastóls en hann átti frábæran leik í
gær og hefur Baldur Þór þjálfari
tröllatrú á honum. Hann endaði sem
fyrr segir með 13 stig og 14 fráköst og
að auki átti hann þrjár stoðsendingar.
Sinisa Bilic var með 16 stig, Geiger
12 stig, Simmons 11, Brodnik 10 og
Pétur 8. Í liði Hauka var Kári bestur en
hann gerði 22 stig, tók fimm fráköst
og átti átta stoðsendingar. Whitfield
gerði 21 stig og tók sjö fráköst en Emil
Barja gerði 11 stig og tók átta fráköst.
Nú tekur við bikarvika þar sem
Stólarnir mæta liði Stjörnunnar í kvöld
og með sigri kemst liðið í sjálfan
úrslitaleikinn. Síðan tekur við
landsleikjahlé og þann 1. mars hefst
lokakafli Dominos-deildarinnar en
fjórar umferðir eru eftir. Það er lið
Fjölnis sem mætir þá í Síkið. Áfram
Tindastóll! /ÓAB
06/2020 5