Feykir - 01.04.2020, Side 6
Þuríður Helga Jónasdóttir er
kona sem hefur leitað fyrir sér á
ýmsum sviðum um ævina og
búið víða en eiginlega má segja
að tómar tilviljanir hafi ráðið
því að hún flutti búferlum í
Skagafjörðinn þar sem hún
hefur nú búið hátt á sjötta ár.
Blaðamaður hitti Helgu, eins og
hún er jafnan kölluð, á Hofsósi
þar sem hún hefur fest kaup á
húsi á besta stað í bænum,
frammi á bökkunum með
glæsilegu útsýni yfir gamla
plássið og höfnina, hafið og
drottninguna Drangey.
„Ég kem hingað 2014, í
ágúst, hafði þá um vorið selt
íbúð og var bara svona með
opinn huga gagnvart einhverju
nýju í mínu lífi. Hafði búið í
Reykjavík þá í nokkur ár og hef
VIÐTAL
Fríða Eyjólfsdóttir
svo sem verið víða í gegnum
tíðina,“ segir Helga þegar hún
er innt eftir því hvað hafi dregið
hana í Skagafjörðinn. „Og ég
rakst á auglýsingu frá Jóhanni
skólastjóra, ég var í Glaumbæ
með ferðamenn en ég vann þá
sem leiðsögumaður á sumrin
og fór marga hringi um landið.
Það var auglýsing um stöðu,
30% smíðar, 30% textíl og 30%
myndmennt, í Grunnskólan-
um austan Vatna og ég hélt það
væri bara Hofsós, ég vissi ekki
betur þá. Svo ég henti inn
umsókn og hugsaði með mér,
já, það er örugglega gaman að
búa á Hofsósi. Og ég fékk sem
Leiðsögumaður, menningarmiðlari, myndlistarmaður, innanhússarkitekt og
húsgagnasmiður. Hvað í ósköpunum fær manneskju með slíka menntun til að
setjast að í pínulitlu þorpi á borð við Hofsós? Varla eru það atvinnutækifærin, eða
hvað? Nú á tímum má stunda ýmsa vinnu svo til hvaðan sem er af byggðu bóli og
svo eru þeir líka sumir sem búa sér til starfsvettvang þar sem þeim best líkar og
vilja setjast að. Og sumum lætur best að hafa alltaf sem flest járn í eldinum og eru
óhræddir við að reyna fyrir sér á nýjum slóðum, hvort heldur sem um atvinnu eða
búsetu er að ræða, nú eða þá bara að fylgja hugsjónum sínum og áhugamálum.
sagt svar en þar sem ég er ekki
með kennararéttindi var ég
ráðin sem leiðbeinandi. Þá var
aðalstaðan við skólann á Hól-
um og ég ákvað þá að leigja
íbúð þar, frekar en hér á Hofs-
ósi, en var samt að kenna á
Hofsósi líka, fyrst og fremst
myndmennt og svo var ég líka
með smíði og textíl fyrsta
veturinn en ég var í 100% vinnu
í grunnskólanum.“ Eftir þrjú ár
sem kennari við grunnskólann
kom svo að því að réttinda-
kennari sótti um stöðu Helgu
og því þurfti að reka hana eins
og hún segir á léttu nótunum.
Um sömu mundir var að losna
50% staða við Háskólann á
Hólum við umsjón nemenda-
garða. „Og af því að ég vildi
bara gjarnan vera áfram í
Skagafirði þá ákvað ég að sækja
um þetta starf á meðan ég væri
að hugsa mig um. Þá var ég líka
byrjuð að kenna við Háskólann,
ég hafði fengið eitt námskeið
við Háskólann á Hólum, við
ferða-máladeildina, sem kallast
Matur og menning. Svo vatt það
líka upp á sig þannig að í dag er
ég að kenna ein fjögur nám-
skeið, sem stundakennari samt,
ég er ekki með fasta stöðu sem
kennari við Háskólann, og í
þessari 50% stöðu við að sjá um
nemendagarðana og það er
svona fastinn í minni atvinnu
núna.“
Dreymdi um hús við sjóinn
Helga bjó á Hólum fyrstu árin í
Skagafirði og þó henni þyki
Hólar frábær staður segir hún
að sjórinn hafi alltaf togað hana
til sín, hún hafi einhverja þörf
fyrir að hafa vítt í kringum sig.
„Þannig að ég var alltaf með
augun opin fyrir því að geta
keypt mér eitthvað hérna,
ekkert endilega á Hofsósi, en
það sem ég var að leita eftir var
kannski lítill landskiki, þetta
eru óskaplega rómantískar pæl-
ingar, sá mig alveg fyrir mér í
litlu húsi úti í sveit en samt með
sjóinn nálægt,“ segir Helga
glettnislega og segist hafa skoð-
að ýmislegt þar til hún var svo
ljónheppin að finna þetta
dásamlega hús sem hún flutti í
fyrir rúmu ári og líður þar alveg
einstaklega vel.
Eins og áður segir hefur
Helga menntun á ýmsum
sviðum. „Ég djóka stundum
með að ég sé með fimm
háskólagráður,“ segir hún
sposk. „Ég er sem sagt innan-
hússarkitekt og hef verið að
taka að mér verkefni í því og
Helga á góðum degi á pallinum við húsið sitt á Hofssósi.
MYNDIR ÚR EINKASAFNI.
Þuríður Helga Jónasdóttir þúsundþjalasmiður á Hofsósi
Innanhússhönnuður með mörgu fleiru
Ásamt Sillu, vinkonu sinni, á Mælifellshnjúk.
6 13/2020