Feykir


Feykir - 01.04.2020, Blaðsíða 11

Feykir - 01.04.2020, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Jörð Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Feykir spyr... Hefur þú „farið" á einhverja tónleika sem hefur verið boðið upp á í sjónvarpi eða á netinu nú á Covid-tímum? Spurt á Facebook UMSJÓN : frida@feykir.is „Ég horfði á tónleika Helga Björns um helgina og hafði mjög gaman af.“ Halla Guðleifsdóttir Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ótrúlegt - en kannski satt... Spýtustrákinn Gosa þekkja flestir en þannig vildi til að nefið á honum tók að lengjast er hann sagði ósatt. Á frummálinu, ítölsku, var sagan um Gosa fyrst gefin út árið 1883 en hún er eftir ítalska rithöfundinn Carlo Collodi. Ítalska nafn Gosa er Pinocchio og ótrúlegt, en kannski satt, þá þýðir það furuhöfuð. Tilvitnun vikunnar 1. apríl er dagurinn þegar við munum hvað við erum alla hina daga ársins. – Mark Twain „Ég horfði á (fór á) Helga Björns og þetta var mjög flott og skemmtilegt hjá honum, hann er alltaf hress. Hulda Einarsdóttir „Nei, eiginlega ekki. Sá smá frá Eyþóri Inga, annars ekkert.“ Silja Ösp Jóhannesdóttir „Nei, ég get nú varla sagt það, nema ég horfi reglulega á myndböndin frá systrunum í Miðtúni við Hvolsvöll.“ Magnús G. Jóhannesson (því lengur því betra). Það er gott að bera kjúklinginn fram með bökuðum kartöflubátum, fersku salati og góðri ólífuolíu. RÉTTUR 3 Eton mess Þetta er einfaldur eftirréttur en það er gaman að bera hann fram í fallegum glösum. Það er líka auðvelt að breyta honum með því að skipta jarðarberjum út fyrir annan ávöxt eða jafnvel bæta við súkkulaði eða líkjör í rjómann. Þennan rétt er bæði hægt að bera fram í nokkrum litlum glösum eða einni stórri skál. 1 marengsbotn 500 g jarðarber ½ l rjómi vanillusykur Saxið jarðarber smátt. Þeytið rjómann og bætið vanillusykri og u.þ.b. helmingnum af jarðar- berjunum saman við. Skiptið helmingnum af þeytta rjómanum í sex glös. Brjótið marengsbotninn ofan á rjómann í glösunum en skiljið eftir smá til skrauts. Setjið nú restina af rjómanum í glösin og skreytið með restinni af jarðarberjunum og marengsnum. Geymið í kæli í nokkra klukkutíma áður en þið berið réttinn fram. Verði ykkur að góðu! Anna Margret skorar á Þuríði Þorláksdóttur, aðstoðarskóla- stjóra á Blönduósi. Kjúklingur með hvítlauk og sítrónu Matgæðingur vikunnar, Anna Margret Sigurðardóttir, býr á Blönduósi með manninum sínum, Sigurði Þorkelssyni. Hún er kennari í Blönduskóla en hann vinnur hjá N1 pípara. Þau eiga tvo syni, Þorkel og Björn Steinar. Anna Margret er borinn og barnfæddur Blönduósingur en Sigurður er frá Barkarstöðum í Svartárdal og flutti á Blönduós árið 2009. RÉTTUR 1 Blinis Blinis eru litlar lummur sem eru oft bornar fram með lauk og kavíar eða sýrðum rjóma og reyktum laxi. Þessi uppskrift er af bloggsíðunni Albert eldar. 1 bolli hveiti ½ tsk. salt 1 egg 2 msk. góð olía ⅔ bolli mjólk ½ tsk. lyftiduft Aðferð: Blandið öllu saman og steikið blinis (litlar lummur) á pönnu. Látið kólna. Berið fram með sýrðum rjóma og hrognum (kavíar) eða reyktum laxi. RÉTTUR 2 Kjúklingur fylltur með hvítlauk og sítrónu Eldunartíminn á þessum kjúklingi er svolítið langur en smjörið sem er sett undir skinnið á bringunni, sítrónan og það að elda hann í potti með loki gerir það að verkum að hann verður ekki þurr en eldast alveg þannig að kjötið dettur af beinunum. 1 heill kjúklingur 1 sítróna 1 hvítlaukur 100 g smjör sjávarsalt pipar ferskt rósmarín Aðferð: Best er að elda kjúkl- inginn í ofnpotti með loki. Stillið ofn á 200°C hita. Skerið sítrónuna í báta og afhýðið hvítlauksrifin, fyllið kjúklinginn með sítrónu og hvítlauk. Það má líka raða því sem kemst ekki inn í kjúklinginn í kringum hann í pottinum. Skerið smjörið í kubba og setjið það undir skinnið á bring- unni á kjúklingnum. Kryddið með salti, pipar og fersku rós- marín. Eldið kjúklinginn í 1½ - 2 klst. ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR) frida@feykir.is Anna Margrét og Sigurður á Blönduósi matreiða Sigurður og Anna Margrét úti að borða. MYND ÚR EINKASAFNI 13/2020 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Komin er sauðbeit sumstaðar. Samnefnt tímarit eitt var. Höfuðból á Hólsbóndinn. Ég held í næturlampann minn.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.